Ægir - 01.08.2015, Side 14
14
„Það má segja að matvælavinnsla af þessum toga hafi verið okkar
ær og kýr í á þriðja áratug. Við störfuðum í nokkur ár hjá Bakkavör
og síðar unnum við báðir hjá fyrirtækinu Fram Foods, sem má segja
að hafi verið afsprengi Bakkavarar,“ segir Halldór Þórarinsson,
matvælaverkfræðingur og annar framkvæmdastjóra Marhólma
ehf. í Vestmannaeyjum, en hann á ásamt Hilmari Ásgeirssyni, iðn-
aðartæknifræðingi, fjórðungshlut í fyrirtækinu á móti Vinnslustöð-
inni. Fimmtán ársverk eru hjá Marhólmum í Eyjum, auk þeirra Hall-
dórs og Hilmars.
Loðnuhrogn fyrir sushi
Marhólmar hafa sérhæft sig í
vinnslu á síld, loðnuhrognum
og þorskhrognum og er fram-
leiðslan seld á neytendamark-
aði í Evrópu og Bandaríkjunum.
Fyrirtækið framleiðir bæði undir
eigin vörumerkjum og merkj-
um kaupenda.
„Binna, framkvæmdastjóra
Vinnslustöðvarinnar í Vest-
mannayjum, kynntumst við
þegar hann var í stjórn Fram
Foods og þá urðu til þau tengsl
sem urðu til þess að við fórum í
samstarf við Vinnslustöðina og
ákváðum að byggja upp fyrir-
tækið hér í Eyjum. Hér er gott
aðgengi að hráefni og mikil
þekking á sjávarútvegi. Síðan
má ekki gleyma því að Vest-
mannaeyjar eru síðasta útskip-
unarhöfn áður en skipin sigla á
erlendar hafnir. Við höfðum áð-
ur byggt upp góð markaðssam-
bönd og við nýttum
okkur þau þegar
við fórum af stað.“
Úr loðnuhrognum
framleiða Marhólmar
„Masago“ sem er notað í
sushi bæði í Bandaríkj-
unum og Evrópu. „Sushi-
markaðurinn er stór og
vaxandi út um allan
heim,“ segir Halldór.
Sykursöltuð þorskhrogn eru
framleidd fyrir Bretlandsmark-
að. Þar eru hrognin unnin
áfram og þeim blandað í ídýfur
fyrir neytendamarkað.
Góð ímynd íslenskrar saltsíldar
Það er ár og dagur síðan síld
var söltuð upp á gamla mátann
í Eyjum, þar til Marhólmar tóku
upp þráðinn þar sem frá var
horfið. Fyrirtækið saltar ferska
síld frá Vinnslustöðinni í tunnur
og pakkar henni síðan í neyt-
endaumbúðir og selur til Finn-
lands. Síldinni er bæði pakkað í
umbúðir undir finnskum vöru-
merkjum og einnig er hún seld
undir vörumerki Marhólma,
„Vestmans“. Í Finnlandi starfar
Jussi Pekka Mäntylä á vegum
fyrirtækisins Marhólma Oy sem
annast sölu og dreifingu síldar-
innar þar í landi. „Við þekktum
þennan markað vel því Fram
Foods rak þar verksmiðju í
nokkur ár og sömuleiðis kynnt-
umst við finnska markaðnum
þegar við störfuðum hjá Bakka-
vör. Tengslanet okkar er því
gott í Finnlandi og þar dreifum
við okkar vörum í um 2000
verslanir. Ísland hefur alltaf haft
góða ímynd í Finnlandi og
neysla íslenskrar saltsíldar þar á
sér langa og ríka hefð, alveg frá
því að þarlend skip veiddu síld
á Íslandsmiðum og söltuðu
hana. Við byggjum á þeirri
gömlu hefð að borða íslenska
saltsíld og það kemur skýrt
fram á neytendaum-
búðunum að
síldin sé
íslensk
Halldór Þórarinsson, annar framkvæmdastjóra Marhólma.
Myndir: Óskar P. Friðriksson.
Marhólmar í Vestmannaeyjum
Síldin slær
í gegn
í Finnlandi
Marhólmar nota þetta vörumerki
– nafnið vísar til Vestmannaeyja.
Loðnuhrogn eða „Masago“ eru seld til Bandaríkjanna og Evrópu þar
sem þau eru notuð í sushi.
Síldin er seld í neytendapakkn-
ingum í Finnlandi undir annars
vegar vörumerki Marhólma og
hins vegar vörumerkjum kaup-
enda.
V
estm
a
n
n
a
ey
ja
r