Ægir - 01.08.2015, Síða 22
22
Fyrirtækið Arcticus Sea Pro-
ducts á Hjalteyri við Eyjafjörð
hefur þróað nýja vörulínu í
harðfiski; þurrkaða fiskbita úr
marningi. Framleiðsluna selur
fyrirtækið undir eigin merkjum
í stærstu matvöruverslunum
landsins, auk þess að framleiða
undir vörumerkjum annarra.
Forsvarsmenn Arcticus Sea Pro-
cucts segja einnig tækifæri á
erlendum mörkuðum; sending-
ar hafa farið til Færeyja og við-
ræður eru við söluaðila í Sví-
þjóð, Þýskalandi og víðar.
Sömuleiðis var sending með
bitafiski á leið til Nígeríu fyrr á
árinu þegar sá markaður lokaði
en vonir standa til að úr rætist
þar, enda mikil hefð þar um
slóðir fyrir neyslu þurrkaðra
fiskafurða.
Markaðurinn tók vörunni vel
Arcticus Sea Products hóf starf-
semi árið 2012 og þá í fram-
leiðslu á fiskibollum, orlyhjúp-
uðum þorskbitum og græn-
metisbuffi fyrir neytendamark-
að og mötuneyti. Varan náði
fljótt góðri fótfestu á mörkuð-
um en eigendur fyrirtækisins
ákváðu í framhaldinu að láta
reyna á þá hugmynd að fram-
leiða bitaharðfisk úr marningi.
Slíkt hafði ekki verið gert hér á
landi áður.
„Þróunarferlið tók okkur um
það bil eitt ár og unnum við að-
allega að þessu á Akranesi þar
sem við fengum aðgang að
þurrkklefa, auk þess sem Ástþór
Vilmar Jóhannsson, kjötiðnað-
armaður þar í bæ, vann með
okkur að vöruþróuninni. Í fram-
haldinu fengum við síðan
vinnslusal á Hjalteyri þar sem
við settum vinnsluna upp, m.a.
mjög stóran og öflugan tölvu-
stýrðan þurrkklefa og loks tók-
um við á leigu tækjalínu sem
mótar fiskbitana úr fiskmarn-
ingnum. Fyrsta lögunin fór í
þurrk um síðustu áramót og
síðan þá hefur þetta verkefni
vaxið upp í að vera stærsti þátt-
ur starfseminnar,“ segir Stein-
grímur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri og einn aðaleig-
enda fyrirtækisins. Annar aðal-
eigandi í dag er Rúnar Friðriks-
son en einnig eiga Hannes
Helgason og Sveinn Rafnsson
hlut í fyrirtækinu, sem og áður-
nefndur Ástþór Vilmar Jóhanns-
son.
Framleiða bitafisk
úr marningi
Eigendur og starfsmenn Arcticus Sea Products á Hjalteyri með framleiðsluvöru sína, bitafisk úr marningi, sem seld er í verslunum hér á landi og
áhugi er fyrir á erlendum mörkuðum. Frá vinstri: Hannes Helgason, Rúnar Friðriksson, framleiðslustjóri, Steingrímur Magnússon, framkvæmda-
stjóri, Vikar Mar og Friðrik Friðriksson, gæðastjóri.
Bitarnir mótaðir í þar til gerðri
vél og fara þaðan í þurrkklefann.