Ægir - 01.08.2015, Side 24
24
„Það er alveg ljóst að sú mikla
uppbygging sem orðið hefur í
fiskeldinu hér um slóðir hefur
styrkt byggðarlagið til muna og
skiptir verulegu máli. Íbúum
hefur fjölgað um tæplega 200
manns frá því þessi uppbygg-
ing hófst. Sem er ánægjuleg
þróun, eykur slagkraft byggð-
arlagins og blæs mönnum
bjartsýni í brjóst,“ segir Ásthild-
ur Sturludóttir, bæjarstjóri í
Vesturbyggð.
Undanfarin fimm ár hefur
fiskeldi skipað æ stærri sess í at-
vinnulífi svæðisins, umsvifin
hafa aukist jafnt og þétt og útlit
fyrir að sú þróun haldi áfram.
Þannig hafa Fjarðalax og Dýr-
fiskur áform um að ríflega sex-
falda eldi á laxi og regnbogasil-
ungi í Patreksfirði og Tálkna-
firði, úr 3000 tonnum í allt að 19
þúsund tonn. Frummat fyrir-
tækjanna vegna umhverfis-
áhrifa þessarar aukningar er nú
til kynningar hjá Skipulags-
stofnun og rennur frestur til að
gera athugasemdir við hana út í
byrjun desember.
Íbúum hefur fjölgað umtalsvert
Ásthildur bendir á að sam-
kvæmt umhverfismatinu muni
fyrirhuguð aukning hafa veru-
lega jákvæð áhrif á hagræna og
félagslega þætti í byggðarlag-
inu, auka atvinnu og verð-
mætasköpun. Margfeldisáhrif af
fiskeldi vestra hafa einnig orðið
þau að tekist hefur á umliðnum
árum að snúa íbúaþróun við.
Íbúar í Vesturbyggð eru nú
1030 talsins og hefur fjölgað
um ríflega 170 manns.
„Uppbygging fiskeldis hér
um slóðir hefur styrkt okkur og
munar verulega um þessa fjölg-
un sem orðið hefur í sveitar-
félaginu. Þetta er góð þróun og
við erum lánsöm að hún er á já-
kvæðum nótum, mörg sveitar-
félög á landsbyggðinni eiga
undir högg að sækja og hafa
misst frá sér fólk. Við vonum að
með áframhaldandi uppbygg-
ingu hér munum við brátt ná
vopnum okkar og sjá svipaða
íbúatölu og hér var fyrir nokkr-
um árum, um 1400 manna
byggð,“ segir Ásthildur.
Lítið af lausu húsnæði
Hún segir að þó svo íbúum hafi
fjölgað sé enn sem komið er
ekki mikið um nýbyggingar
húsnæðis. „Hér var töluvert af
lausu húsnæði áður og það er
nú allt í notkun, allar íbúðir sem
Vesturbyggð átti eru í útleigu
og þá eru þess dæmi að sumar-
bústaðir hafi verið teknir í
gagnið sem heilsárshús. Staðan
er sú að lítið er um laust hús-
næði sem stendur,“ segir hún.
Auk þess sem fiskeldi hafi vaxið
og dafnað með fjölgun starfs-
manna hefur ferðaþjónustu í
héraðinu einnig vaxið fiskur
um hrygg líkt og á öðrum stöð-
um á landinu. „Þetta helst í
hendur og hefur einnig jákvæð
áhrif á samfélagið. Það er mikils
Ásthildur Sturludóttir
bæjarstjóri í Vesturbyggð
Uppbygg-
ing í fisk-
eldi hefur
styrkt
byggðar-
lagið
V
iðta
l