Ægir - 01.08.2015, Side 25
25
um vert að atvinna í sveitar-
félögunum sé fjölbreytt, að allir
finni eitthvað við sitt hæfi,
bæði konur og karlar, þeir sem
hafa litla menntun og þeir sem
hafa aflað sér meiri menntun-
ar.“
Útgerð og fiskvinnsla standa
traustum fótum
Auk fiskeldis stendur hefð-
bundin útgerð og fiskvinnsla
þar einnig traustum fótum.
Sjávarútvegsfyrirtækið Oddi, út-
gerð og vinnsla er með öfluga
starfsemi á Patreksfirði, gerir út
tvo báta, Brimnes og Núp, sem
sjá fiskvinnslu í landi fyrir hrá-
efni en að auki er Vestri BA mik-
ilvægur hlekkur í hráefnisöflun
Odda. Fleiri bátar koma einnig
að hráefnisöflun fyrir vinnsluna.
Oddi vinnur úr tæplega
4000 tonnum af hráefni á ári og
hefur hin síðari ár eflt vinnslu á
ferskum flökum og flakahlut-
um. Afurðirnar eru að stórum
hluta fluttar með flugi á erlenda
markaði. Þá er Oddi einn stærsti
framleiðandi steinbítsafurða
hér á landi og er sá hluti fram-
leiðslunnar mikilvægur fyrir
frystihús félagsins. Einnig hefur
félagið starfrækt saltfiskvinnslu
og er eitt hið stærsta hér á landi
á því sviði.
Gjöful fiskimið innan seilingar
„Bolfiskkvótinn hér í byggðar-
laginu hefur verið í svipuðu
horfi undanfarin 5 ár, það hafa
litlar breytingar orðið þar á. Við
horfum auðvitað til þess að
kvótinn aukist hér enda er til
mikils að vinna að hinn hefð-
bundi sjávarútvegur gangi vel.
Útgerð og fiskvinnsla hefur ver-
ið kjölfestan í atvinnulífi sveitar-
félagsins í áraraðir og skiptir
miklu að svo verði áfram. Hér er
rekið öflugt og framsækið fyrir-
tæki á því sviði sem á sér langa
sögu að baki. Við búum svo vel
að hér innan seilingar eru gjöful
fiskimið, það er auðvitað alveg
út í hött að nýta þau ekki sem
best af heimamönnum. Það
hlýtur að vera hagstæðast fyrir
alla,“ segir Ásthildur.
Ekki hafa öll eggin í sömu
körfunni
Hún telur farsælast að samhliða
aukinni uppbyggingu fiskeldis í
sveitarfélaginu starfi einnig
traust félag í hinni hefðbundnu
vinnslu. „Þetta styður hvort
annað. Og það er líka gott að
hafa ekki öll eggin í sömu körf-
unni og geta boðið upp á fjöl-
breytta möguleika í atvinnulíf-
inu,“ segir Ásthildur. „Það er
mjög gott hljóð í okkur í Vestur-
byggð, veðrið hefur leikið við
okkur í haust og aflabrögð hafa
verið góð. Þá eru allir ánægðir.“
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri í Vesturbyggð telur farsælast að
samhliða aukinni uppbyggingu fiskeldis í sveitarfélaginu starfi einnig
traust félag í hinni hefðbundnu vinnslu. „Þetta styður hvort annað og það
er líka gott að hafa ekki öll eggin í sömu körfunni og að geta boðið upp á
fjölbreytta möguleika í atvinnulífinu.“