Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 29
29
Unnið samkvæmt markmiðum
um minni losun kolefnis
Svavar segir að með nýjum
skipum sem komin eru og
væntanleg í fiskiskipaflotann
hér á landi leggi sjávarútveginn
verulegt lóð á vogarskálar
stjórnvalda til að ná markmiði
um minni kolefnislosun. „Þegar
ákvörðun var tekin um kaup HB
Granda á nýju skipunum fimm
ákváðum við að velja dieselvél-
ar og þann besta mengunar-
varnabúnað sem völ er á. Þetta
eru sparneytin skip og um-
hverfismálin voru sannarlega
einn mikilvægur þáttur sem
horft var til í aðdraganda
ákvörðunar um smíði skip-
anna,“ segir Svavar.
Segja má að umhverfismál
séu í sjálfu sér mjög samofin
starfsemi í sjávarútvegi og sínu
stærsti þátturinn er að sjálf-
sögðu verndun fiskistofnanna
og umgengni um fiskimiðin.
Svavar segir HB Granda hafa á
sínum tíma undirstrikað áherslu
sína á þennan málaflokk með
aðild að sjálfseignarstofnuninni
Ábyrgum fiskveiðum sem stofn-
uð var árið 2011 og hefur orðið
æ sýnilegri hluti af greininni.
Sjávarútvegur
án mengunar er
raunhæft markmið
Svavar Svavarsson, deildarstjóri viðskiptaþróunar HB Granda hf. Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson
„Að mínu mati væri mjög æskilegt ef stjórnvöld og sjávarútvegurinn tækju saman höndum um að setja
sér í sameiningu það markmið að íslenskur sjávarútvegur verði í framtíðinni rekinn án þess að valda
mengun. Þannig væri yfirlýst stefna að t.d. öll íslensk fiskiskip verði innan ákveðins tíma knúin öðrum
orkugjöfum en jarðefnaeldsneyti. Þetta er að mínu mati raunhæft markmið, bæði með tilliti til vaxandi
áhuga innan greinarinnar á umhverfismálum og ekki síður framþróunar í tæknibúnaði sem orðið hefur
og mun verða í náinni framtíð,“ segir Svavar Svavarsson, deildarstjóri viðskiptaþróunar HB Granda hf.
Fyrirtækið er þessi misserin að stíga ýmis framþróunarskref sem tengjast umhverfismálum, rekur raf-
knúna fiskimjölsverksmiðju á Vopnafirði, tók nýverið í notkun eigin sorpflokkunarstöð og mun á þriggja
ára tímabili fá fimm nýsmíðuð fiskiskip búin nýjustu tækni í orkunýtingu og mengunarvörnum.
Í októbermánuði tók HB Grandi í notkun eigin
sorpflokkunarstöð á athafnasvæði sínu við
Norðurgarð í Reykjavík. Stöðin fékk nafnið
Svanur en meðal gesta á opnunarhátíðinni
var Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra.
Við þetta tækifæri sagði Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, forstjóri HB Granda, að stjórnendur
fyrirtækisins telji sér skylt að ganga um um-
hverfið af eins mikilli ábyrgð og frekast sé
unnt.
„Að fenginni reynslu á Vopnafirði var okkur
ljóst að við gátum með flokkunarstöð sem
þessari komist hjá því að urða tugi tonna af
alls kyns endurnýjanlegu efni. Við viljum ein-
faldlega sýna viljann í verki og því er þessi
bygging hér komin. Þó svo að nokkrar krónur
fáist fyrir sumt að því sem fer til endurvinnslu í
stað urðunar mun það varla duga fyrir rekstr-
arkostnaði, hvað þá að það muni nokkurn
tíma fást eitthvað upp í stofnkostnaðinn,“
sagði Vilhjálmur.
Efnt var til nafnasamkeppni meðal starfs-
fólks og sendu 80 þeirra inn samtals rösklega
400 tillögur. Fjórir starfsmenn lögðu til nafnið
Svanur, flokkunarstöð sem varð fyrir vali dóm-
nefndar.
Flokkunarstöðin Svanur í notkun
Flokkunarstöðin Svanur.