Ægir - 01.08.2015, Side 33
33
nokkuð framandi enda Neptune
ehf. eina hérlenda fyrirtækið
sem starfi á þessum alþjóðlega
samkeppnismarkaði. Ágúst seg-
ir sínar rætur vera við sjávarsíð-
una. „Ég hef verið við fjöruna
frá blautu barnsbeini, fæddur á
Patreksfirði árið 1967 og var þar
meira og minna framyfir tvítugt
og var öll sumur til sjós á togur-
um, t.d. Sigurey og Þrym, og
vertíðarbátnum Patreki. Þessi
tenging mín við sjóinn áður fyrr
kom sér vel því ég vissi í stórum
dráttum út á hvað sjómennska
gekk en tæknilega séð var ég
svo sem ekki vel með á nótun-
um þegar við byrjuðum með
Neptune ehf. Eftir að ég hætti
sjómennskunni fór ég að starfa
hjá Kassagerð Reykjavíkur við
sölu á umbúðum til sjávarút-
vegsins og þannig hélt ég
áfram góðum tengslum við
sjávarútveginn. Neptune, sem
áður hafði verið gert út frá
Grænlandi og þar áður var
Helga Björg á Skagaströnd, var
okkar fyrsta skip og síðan keypt-
um við annað skip árið 2009,
gamla Harðbak, sem nú heitir
Poseidon, en til þess skips
þekkti ég nokkuð því um tíma
hafði ég verið þar í áhöfn,“ segir
Ágúst.
Í grunninn eru tíu menn í
áhöfn hvors rannsóknarskips
Neptune ehf. – þar af fjórir í brú
og þrír í vél. Síðan kemur um
borð mikill fjöldi sérfræðinga
sem tengjast viðkomandi verk-
efnum. Um borð í Neptune er
rými fyrir fast að fjörutíu manns
en í Poseidon eru kojur fyrir 33.
Skipstjórar beggja skipa eru
fyrrverandi skipstjórar hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa, Guð-
mundur Guðmundsson fylgir
sínu gamla skipi Harðbaki og er
áfram í brúnni á Poseidon og
Ragnar Elísson er skipstjóri á
Neptune.
Sem fyrr segir var Neptune
ehf. stofnað árið 2008 og frá
upphafi hefur Ágúst átt hlut í
fyrirtækinu á móti erlendum
aðilum. „Draumastaðan er að
koma þessu fyrirtæki alfarið til
Íslands í þeim skilningi að fyrir-
tækið verði að fullu í íslenskri
eigu og ég get upplýst að ég
hef verið að vinna að undan-
förnu að því.“
Ráðagóðir íslenskir sjómenn
Ágúst segir að frá upphafi hafi
verið lögð áhersla á að hafa ís-
lenskar áhafnir á skipunum og
stærstur hluti þeirra kemur frá
Akureyri. „Þó svo að vinnu-
brögðin um borð í rannsóknar-
skipunum séu á margan hátt
frábrugðin því sem menn
þekkja frá fiskiskipunum eiga ís-
lenskir sjómenn auðvelt með
að tileinka sér þau, þeir eru
harðduglegir og ráðagóðir ef
upp koma einhver vandamál
sem þarf að leysa úr. Þeir ein-
faldlega finna lausnir á staðn-
um og það hefur vakið nokkra
undrun og aðdáun erlendra
rannsóknarmanna. Við höfum
fengið lof fyrir viðbragðsflýti og
hversu úrræðagóðir við erum
og ekki síst fyrir þá þjónustu
sem við veitum rannsóknar-
mönnunum. Þetta skiptir allt
miklu máli í hörðum sam-
keppnisheimi. Allar slíkar já-
kvæðar einkunnir eru gulls
ígildi.
Það er enginn vafi í mínum
huga að við höfum náð að
byggja upp gott orðspor á
þeim rúmu sjö árum sem við
höfum verið í rekstri. Ef svo væri
ekki myndum við ekki fá verk-
efni aftur og aftur frá stóru olíu-
félögunum og fyrirtækjum sem
starfa í tengslum við uppsetn-
ingu vindmylla. Orðsporið er
okkar verðmæti og til þess að fá
að bjóða í verk þurfum við að
geta sýnt fram á að við séu
traustsins verðir. Og það er
nokkuð sem byggist ekki upp á
einni nóttu. Í stóra samhenginu
erum við pínulítið fyrirtæki sem
kannski má jafnframt segja að
sé á vissan hátt okkar styrkur.
Áhafnir skipanna vinna sam-
kvæmt mjög ströngum reglum
og ISO-stöðlum, sem eru ansi
mikið frábrugðnir því sem
menn eiga að venjast á fiski-
skipum. Þessar reglur, sem við-
skiptavinir okkar gera kröfur
um, lúta meðal annars að ör-
yggismálum og öllum þeim að-
gerðum sem farið er í um borð.
Og sumir af okkar viðskiptavin-
um passa vel upp á, vegna nátt-
úruverndarsjónarmiða, að rann-
sóknirnar trufli ekki sjávarspen-
dýr. Það er því að mörgu að
hyggja í þessu sambandi.
Við getum verið lengi úti –
Gott orðspor er
okkar verðmæti
- segir Ágúst H. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Neptune ehf.,
sem gerir út rannsóknarskipin Neptune og Poseidon
Rannsóknarskip Neptune ehf. á Pollinum á Akureyri – Neptune EA-41
og Poseidon EA-303.
Hér er verið að undirbúa bergmálsrannsóknir með því koma „streamer“
skynjara fyrir borð.