Ægir - 01.02.2016, Síða 21
21
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100
útflutnings. Sum þeirra hafa
alla verkþætti á eigin hendi, allt
frá eldi, vinnslu, til markaðs-
setningar og afurðasölu. En
hvað markaðsmálin varðar eru
líka dæmi um að fyrirtækin eigi
á því svið samstarfsaðila erlend-
is og hafi þannig aðgang að
stórum sölukerfum erlendis.
Þessu til viðbótar eru síðan stór
innlend fyrirtæki í fiskeldi, t.d.
Samherji og Hraðfrystihúsið
Gunnvör, sem nýta sín fisksölu-
kerfi og viðskiptasambönd til
að koma framleiðslu sinni á
markað og loks má nefna ís-
lensk fisksölufyrirtæki sem
einnig bjóða fiskeldisfyrirtækj-
unum þjónustu sína í markaðs-
málum og sölu. Með öðrum
orðum er mjög mismunandi
eftir hvaða skipulagi fiskeldis-
fyrirtækin starfa,“ segir Guð-
bergur.
Erum smáframleiðendur á
heimsvísu
Framleiðsla fiskeldisfyritækja á
Íslandi er að langstærstum
hluta lax og bleikja og er áætl-
að að útflutningstekjur hafi á
síðasta ári numið um 9,3 millj-
örðum króna. Með aukinni
framleiðslu í ár eru miklar líkur á
að veltan aukist en sveiflur á af-
urðamörkuðum ráða mestu þar
um.
„Verð á laxi hefur verið mjög
hátt og útlit fyrir að svo verði
áfram en afurðaverð á bleikju
var hins vegar lægra árið 2015
en 2014. Afurðaverðið ræður
miklu um þróunina,“ segir Guð-
bergur en nú um stundir eiga
stórir framleiðendur í Chile
undir högg að sækja með eldis-
lax á Bandaríkjamarkaði og á
því græða t.d. Norðmenn og
um leið hérlendir framleiðend-
ur, enda fer stór hluti af eldis-
laxi héðan vestur um haf. Af
þessum sökum segir Guðberg-
ur allt benda til að verð verði
áfram gott á eldislaxi í ár, líkt og
verið hafi.
„Í þessu samhengi þarf líka
að hafa í huga að framleiðslan
frá Íslandi er mjög lítið brot af
heildarmyndinni. Við framleidd-
um í heild um 8800 tonn af eld-
isfiski í fyrra en til samanburðar
má nefna sem dæmi að Færey-
ingar framleiddu í fyrra um 80
þúsund tonn af eldislaxi aðal-
lega inn á Bandaríkjamarkað
þar sem hann er að stórum
hluta notaður í sushi-fram-
leiðslu. Ég reikna með að við
aukum framleiðsluna í ár um
3-4000 þúsund tonn en erum
engu að síður örsmáir framleið-
endur á heimsmarkaði fyrir eld-
isfisk.“
Erlent eignarhald jákvætt
Fiskeldi á Íslandi er ung grein í
uppbyggingu og ólíku saman
að jafna við t.d. norskt fiskeldi.
Íslensku fyrirtækin eru mjög
smá í þeim samanburði, auk
þess sem öll stoðþjónusta við
greinina er mun þróaðri í Nor-
egi en hér er. Um 20 fyrirtæki
eru hér á landi í fiskeldi en þau
sem teljast stór eru innan við
fjórðungur af heildinni. Þá er
um að ræða fyrirtæki sem velta
yfir 2 milljörðum króna á ári og
þau standa að baki um 80%
framleiðslunnar.
„Fiskeldisfyrirtæki á Íslandi
eru fyrst og fremst í uppbygg-
ingarfasa, þau eru að eflast og
stækka. Við sjáum aðkomu inn-
lendra og öflugra sjávarútvegs-
fyrirtækja í fiskeldið og líka
dæmi um erlent eignaraðild.
Hvort tveggja er að mínu mati
styrkur fyrir greinina og til þess
fallið að efla hana enn frekar til
framtíðar. Greinin þarf bæði á
þolinmóðu fjármagni og þekk-
ingu að halda til að byggja sig
upp. Fyrirtæki í fiskeldi í dag eru
til muna sterkari en áður var og
um flest er sú uppbygging sem
nú er í greininni ólík fyrri vaxtar-
skeiðum fiskeldis á Íslandi,“
segir Guðbergur.
Sóknarfæri fyrir íslenskt
atvinnulíf
Í huga Guðbergs leikur enginn
vafi á að Íslendingar eigi að
nýta tækifæri til að auka fiskeldi
á komandi árum.
„Ef við ætlum að vera mat-
vælaframleiðendur og nýta
okkar auðlindir, sjóinn kringum
landið og ferskvatnið sem nóg
er af á landi, þá er fiskeldi kjörin
atvinnugrein. Í samanburði við
flest annað er mjög hagkvæmt
að byggja þessa atvinnugrein
upp, hún er atvinnuskapandi,
getur dreifst um landið, nýtir
húsnæði sem víða er nóg af,
krefst ekki mikilla fjárfestinga í
nýjum mannvirkjum og svo
framvegis. Með öðrum orðum
er hvert starf í fiskeldi ódýrt í
samanburði við margar aðrar
atvinnugreinar og þetta er
grein sem starfar undir ströng-
um umhverfis og gæðakröfum.
Þess vegna sé ég mikil tækifæri
og spái því að hún vaxi næstu
áratugina,“ segir Guðbergur.
Útflutningur eldisfisks nam á síðasta ári röskum 9 milljörðum króna.
Reiknað er með 20-30% aukningu í framleiðslu eldisfisks hér á landi í
ár.