Ægir - 01.02.2016, Síða 26
26
„Tilkoma FleXicut skurðarvélar-
innar hjá okkur var einn áfangi
á miklu lengri þróunarbraut
sem við erum á hvað varðar
tækniþróun fyrir hvítfisk-
vinnslu. Á vissan hátt getum
við sagt að tækniþróun fyrir
fiskiðnað sé sagan endalausa
því við erum stöðugt að vinna
að því með fiskiðnaðinum að
sjá út hvar við getum komið að
málum með tæknilausnir og
framþróun til virðisauka fyrir
iðnaðinn. FleXicut vélin er
hjartað í heildarlínu vélbúnað-
ar frá Marel fyrir hvítfisk til
næstu framtíðar en við erum
komin á fulla ferð með þróun á
fleiri tækninýjungum í vinnsl-
unni,“ segir Kristján Hallvarðs-
son, framkvæmdastjóri vöru-
þróunar hjá Marel.
Með FleXicut vatnsskurðar-
vélinni sem Marel kynnti form-
lega á sjávarútvegssýningunni í
Brussel 2014 kom fyrirtækið
fram með búnað til að skera
beingarð úr fiskflökum á vél-
rænan hátt, auk þess sem vélin
opnaði fiskvinnslum möguleika
á niðurskurði á flökunum með
vatnsskurði og hnífum í bita,
með eða án roðs. Þetta tækni-
skref leysir mörg handtökin af
hólmi í fiskvinnslunum en mikil-
vægur þáttur í þróunarferli
búnaðarins sneri að nýtingu við
beingarðsskurðinn og afköst-
um, fyrir svo utan sjálfa sjálf-
virknivæðinguna. Að sönnu er
það mikil bylting frá því sem
áður tíðkaðist að nú fari fiskflök
eftir snyrtingu í gegnum vél-
búnað og komi á örfáum sek-
úndum í nákvæmlega þeim
bitastærðum sem óskað er eftir
á sama tíma sem hámörkunar á
nýtingu hráefnis er gætt.
Nú eru fjórar FleXicut vélar
komnar í notkun í fiskvinnslum
hér á landi, þar af eru tvær
þeirra hlið við hlið í nýju
vinnsluhúsi Vísis hf. í Grindavík.
Hjá Norway Seafoods í Dan-
mörku er reynsla einnig komin
á þessa tæknilausn Marel.
„Við erum að upplifa miklar
breytingar í fiskvinnslunni þessi
misserin og árin. Umbreyting
hennar er hafin og mun halda
áfram. Fiskiðnaðurinn þarf sinn
tíma til að átta sig á möguleik-
Tvær FleXicut vélar eru í nýrri fiskvinnslu Vísis hf. í Grindavík.
Flökin koma niðurhlutuð í nákvæma bita úr skurðarvélinni og halda
áfram í afurðaflokkun og pökkun.
F
isk
v
in
n
slu
tæ
k
n
i