Ægir - 01.02.2016, Blaðsíða 32
Tölvustýring
umbyltir fiskvinnslu-
vélum Vélfags
Á sjávarútvegssýningunni í Brussel í lok apríl mun fiskvinnsluvéla-
framleiðandinn Vélfag ehf. í Ólafsfirði kynna tölvustýringar sem
fyrirtækið er að innleiða í sínum vélum. Þessa dagana er að ljúka
forritun og hönnun tölvustýringarkerfisins en verkfræðistofan Raf-
tákn á Akureyri annast forritunarþátt verkefnisins.
„Aðalmarkmiðið er að bæta
nýtingu enn frekar og gera allar
innstillingar til muna fljótlegri
þegar t.d. er verið að skipta á
milli fisktegunda. Í vélinni verð-
ur búnaður sem nemur og
mælir hvern einasta fisk sem í
hana fer og stillir vélin sig sjálf
fyrir hann á nokkrum milli-
skúndum. Það má kannski orða
það svo að flökunarvélin bjóði
með þessum búnaði upp á
nokkurs konar „persónuflökun“
fyrir hvern einasta fisk og það
mun skila aukinni nýtingu. Tím-
inn sem áður hefur farið í inn-
stillingar nánast hverfur og þar
með lengist keyrslutími í
vinnslu,“ segir Bjarmi.
Góð yfirsýn á stjórnborði
Í flökunarvélum eru geta mörg
stillingaratriði í búnaði haft
áhrif á flökunina en í stað þess
að búnaður er stilltur handvirkt
stillir vélin sig sjálf með servo-
tjökkum. Sá sem stýrir vélinni
hefur yfirsýn í gegnum tölvu-
skjá á allar stillingar, upplýsing-
ar um afköst, nýtingu, getur
brugðist strax við flakagöllum
og lagfært meðan á keyrslu
stendur og þannig mætti áfram
telja. Stjórnborðið er snertiskjár,
ekki ólíkt stærri gerð af spjald-
tölvu. Allur tölvubúnaðurinn er
frá Siemens og segir Bjarmi
hann þrautreyndan í iðnvélum.
„Í stórum dráttum erum við
að færa um 70% af stillanlegum
þáttum í vélinni yfir í tölvustýr-
ingu en undir þetta falla yfir
90% af þeim stillingum sem
32
Tölvustýrða flökunarvélin M725.