Ægir - 01.02.2016, Side 34
34
Eskja hf. hefur gert samning
við Skagann hf. og samstarfs-
fyrirtæki þess fyrirtækis, Kæl-
ismiðjuna Frost og Rafeyri ehf.
á Akureyri um smíði og upp-
setningu búnaðar í nýtt upp-
sjávarfrystihús á Eskifirði sem
taka á til starfa í september.
Fyrirtækin þrjú hafa reynslu af
samstarfi í hliðstæðum verk-
efnum í Færeyjum. Byggt verð-
ur um 7000 fermetra stálgrind-
arhús fyrir uppsjávarvinnsluna
en áformað er að uppsjávar-
vinnsluskipi Eskju, Aðalsteini
Jónssyni, verði skipt út þegar
verksmiðjan kemst í gagnið.
Tæknivæddasta
uppsjávarvinnslan hingað til
„Smíði búnaðar er þegar hafin
en þetta er langstærsta land-
vinnsluverkefnið hjá okkur á
komandi mánuðum,“ segir Ing-
ólfur Árnason, framkvæmda-
stjóri Skagans hf. Hann segir
stefnt að 7-900 tonna vinnslu-
getu í húsinu en verksmiðjan
verður á flestan hátt sambæri-
lega þeim sem fyrirtækið hafði
með höndum í Færeyjum.
„Við getum sagt að við séum
þarna að fara einu skrefi lengra
í tækni og gera verksmiðjuna
enn fullkomnari en við höfum
séð áður. Það mun koma fram í
öllum þáttum hennar, allt frá
flokkun yfir í vigtun, við verðum
með nýjar lausnir við frystana
og ýmislegt fleira áhugavert
verður þarna. Heilt yfir erum við
að tala um meiri sjálfvirkni og
auðveldari yfirsýn og stjórnun á
henni. Með öðrum orðum
næsta kynslóð miðað við fær-
eysku verksmiðjurnar,“ segir
Ingólfur.
Fjölmörg önnur íslensk fyrir-
tæki koma að verkefninu. Þar
má nefna Þorgeir & Ellert á
Akranesi, 3X á Ísafirði, Marel hf.
og Style ehf. í Garðabæ, SR
vélaverkstæði á Siglufirði, Verk-
fræðistofuna Eflu og fleiri.
Ofurkælda hráefnið stóra frétt
hvítfiskvinnslunnar
Þessa dagana er Skaginn hf.,
ásamt systurfyrirtæki sínu, 3X
Technology á Ísafirði, að smíða
að smíða lestar- og vinnslukerfi
í nýjan togara HB Granda, Eng-
ey, en hann kemur til landsins í
sumar frá Tyrklandi. Búnaður-
inn verður settur niður hér á
landi en vinnslu- og kælikerfi
skipsins byggir á ofurkælingar-
tækninni sem fyrirtækin hafa
þróað og komin er góð reynsla
á í togaranum Málmey SK.
„Fyrir fiskvinnsluna er auð-
vitað stóra fréttin hve frábært
hráefni ofurkældi fiskurinn í
Málmey hefur reynst vera. Við
höfum aldrei séð svona hráefni
áður. Framhaldið hjá okkur í
hvítfiskvinnslunni er að halda
áfram tækniþróun í vinnslu á
þessu hráefni,“ segir Ingólfur.
Samið um nýtt uppsjávar-
frystihús á Eskifirði
Það verða mikil umsvif á Eskifirði næstu mánuði en nýja uppsjávarfrystihúsið á að komast í gagnið í september.
Skaginn hf.
Ingólfur Árnason, framkvæmda-
stjóri Skagans hf.