Ægir - 01.02.2016, Page 38
38
K
rossg
á
ta
F
réttir
Nú laust fyrir páska lét uppsjáv-
arskipið Birtingur NS, áður
Börkur NS, úr höfn í Neskaup-
stað áleiðis til Las Palmas á Kan-
aríeyjum. Skipið hefur verið selt
pólsku fyrirtæki sem ber heitið
Atlantex og mun skipið fá nafn-
ið Janus þegar það verður
formlega afhent hinum nýja
eiganda í Las Palmas.
Á heimasíðu Síldarvinnsl-
unnar segir að skipið eigi sér
merka sögu.
„Skipið var smíðað í Þránd-
heimi í Noregi árið 1968 fyrir
norskt fyrirtæki en átti heima-
höfn í Hamilton á Bermudaeyj-
um. Fyrstu árin var það gert út
til nótaveiða við strendur Afríku
en útgerðin gekk afar illa. Árið
1973 festi Síldarvinnslan kaup á
skipinu og kom það í fyrsta sinn
til heimahafnar í Neskaupstað
hinn 10. febrúar það ár. Skipinu
var gefið nafnið Börkur og
vegna stærðarinnar og mikillar
burðargetu var það gjarnan
nefnt „Stóri-Börkur“. Og nafn
skipsins var Börkur allt til ársins
2012 en þá fékk það nafnið Birt-
ingur. Í upphafi var skipið keypt
með loðnuveiðar og kolmunna-
veiðar í huga.“
Teknar hafa verið saman
aflatölur skipsins þessi 43 ár
sem það var í eigu Síldarvinnsl-
unnar. Heildaraflinn nemur
1.546.235 tonnum „og eru líkur
á að ekkert íslenskt fiskiskip
hafi borið jafn mikinn afla að
landi. Vissulega var aflinn mis-
jafn á milli ára, minnstur var
hann í loðnuveiðibanninu
1982-1983, en mestur á árun-
um 2002 og 2003. Á árinu 2002
var afli skipsins 82.317 tonn og
á árinu 2003 83.825 tonn,“ segir
á heimasíðu SVN.
Aflaði 1.546.235 tonna!