Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 1
F I M M T U D A G U R 8. S E P T E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 210. tölublað 104. árgangur
FYLLIR UPP Í
TÓMARÚM Í
KÖRFUNNI
STYRKING
KRÓNUNNAR
OG ÁÆTLANIR
NÝR AÐALHLJÓM-
SVEITARSTJÓRI
SINFÓNÍUNNAR
VIÐSKIPTAMOGGINN YAN PASCAL TORTELIER 30ELDRI ALDURSHÓPAR 12
Frír ís
fyrir
krakka!
Nánar ábls 5
í september
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Martin Wolf Aðalgreinandi Financial
Times um efnahagsmál undanfarin 20 ár.
„Sambandið verður meira Mið-
jarðarhafssinnað og austrænna en
áður og því ekki jafntengt hug-
myndum frjálslyndis og lýðræðis og
áður,“ segir Martin Wolf, dálkahöf-
undur og aðstoðarritstjóri
Financial Times, um afleiðingar
brotthvarfs Breta fyrir Evrópu-
sambandið. „Ég tel það mikinn
skaða fyrir Evrópu.“
Í viðtali í ViðskiptaMogganum í
dag segir Wolf að Ísland sé mun
nánara Bretlandi en hinum stóru
ríkjunum innan ESB og því sé sam-
bandið óvinsamlegri staður fyrir
Íslendinga en það var áður.
Útganga Breta gerir
ESB óvinsamlegra
fyrir Íslendinga
Sigtryggur Sigtryggsson
Kristján H. Johannessen
Miklum umhverfislegum ávinningi
má ná með því að auka notkun
landrafmagns um borð í skipum í
höfn. Nýta skipin sér þá innlenda
raforku sem framleidd er á um-
hverfisvænan og endurnýjanlegan
máta í stað þess að brenna skipa-
olíu í ljósavélum sínum. Þetta er
niðurstaða Darra Eyþórssonar um-
hverfisverkfræðings sem gerði for-
könnun á aukinni notkun endan-
nýjanlegra orkugjafa við
Faxaflóahafnir.
Kostnaðarsamar endurbætur
Niðurstaða könnunar Darra er
sú að með auknum landtengingum
í höfnum Faxaflóahafna mætti
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda við hafnirnar sem nemur allt
að 17.5 kt CO2-ígilda(koldíoxíðs) á
ári, en það samsvarar 3,9% heildar-
útstreymis frá íslenskum sjávarút-
vegi.
Að auki myndu þessar aðgerðir
draga úr útstreymi annarra meng-
unarefna og svifryks svo nemur
fjölda tonna á ári. Fram kemur í
skýrslu Darra að kostnaður við
nauðsynlegar endurbætur á raf-
dreifikerfi Faxaflóahafna til að
unnt sé að ná þessum umhverf-
islega ávinningi sé verulegur, eða
um 5,5 milljarðar króna samkvæmt
lauslegri kostnaðaráætlun. Á Seyð-
isfirði hafa íbúar vakið athygli á
efna- og hávaðamengun frá ljósa-
vélum stórskipa sem sækja höfnina
heim. Segjast sumir þeirra eiga
erfitt með svefn vegna „druna“
ljósavélanna sem „heyrast um allt
byggðarlagið“. Er þess nú krafist
að skipin taki rafmagn sitt úr landi.
Rafmagn minnkar mengun
Með því að tengja skip í höfnum við raforkukerfið má draga stórlega úr mengun
Sumir íbúar Seyðisfjarðar segja mikið ónæði stafa af ljósavélum stórra skipa
MSkip tengi sig við land »4 og 18
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Landspítalinn Gerð var úttekt á
rekstri og starfsemi spítalans.
Ráðgjafarfyrirtækið McKinsey &
Company leggur til aðgerðir í sjö lið-
um varðandi rekstrarhagkvæmni og
stöðu Landspítalans. Skýrsla fyrir-
tækisins var kynnt í gær. Þar er
sjónum m.a. beint að afköstum á
spítalanum og rekstrarhagkvæmni.
Einnig að nýtingu fjármuna og gæð-
um heilbrigðisþjónustunnar.
„Þrátt fyrir aðdáunarverða
frammistöðu á síðustu árum er ekki
allt eins og best verður á kosið í ís-
lenska heilbrigðiskerfinu. Það skort-
ir skýrari verkaskiptingu milli hinna
ýmsu veitenda heilbrigðisþjónust-
unnar og sömuleiðis stjórntæki sem
gera kleift að stýra þróuninni,“ segir
í lokaniðurstöðum. „Nú þegar verið
er að auka framlög til heilbrigðis-
mála á Íslandi hefur skapast einstakt
tækifæri til að takast á við þessi
vandamál og tryggja að íslenska
heilbrigðiskerfið veiti gæðaþjónustu
á öllum sviðum á hagkvæman hátt.
Með skýrri stefnu í heilbrigðiskerf-
inu og auknum fjárveitingum þangað
sem þörfin er mest verður tryggt að
fjárfestingarnar nýtist sem best sem
leiðir til sterkara og hagkvæmara
kerfis.“ »2
Skarpari verkaskiptingu
Ábendingar um ýmsar lagfæringar í heilbrigðiskerfinu
Ólympíumót fatlaðra var sett við hátíðlega og
sérlega litríka athöfn á Maracana-leikvanginum
í brasilísku borginni Ríó de Janeiro í gærkvöld.
Fimm Íslendingar taka þátt í mótinu og Helgi
Sveinsson spjótkastari keppir fyrstur þeirra
annað kvöld en hann er talinn eiga góða mögu-
leika á verðlaunum. Jón Margeir Sverrisson var
fánaberi Íslands og fer hér fyrir íslenska hópn-
um. » Íþróttir
Litrík setningarathöfn Ólympíumóts fatlaðra
Ljósmynd/Sverrir Gíslason
Fimm Íslendingar á meðal þátttakenda í Ríó de Janeiro
Stjörnuskoð-
unarfélag Sel-
tjarnarness hef-
ur hafið
undirbúning
vegna almyrkva
á sólu sem verð-
ur 12. ágúst
2026, eða eftir
tæpan áratug.
„Það má búast
við miklum
straumi erlendra ferðamanna hing-
að til lands til að sjá almyrkvann og
þetta mun gerast á háannatíma í
ferðamennskunni í ágúst,“ segir
Sævar Helgi Bragason, formaður
Stjörnuskoðunarfélagsins. »6
Búa sig undir
almyrkva 2026
Sævar Helgi
Bragason
Eva Pandora Baldursdóttir sigr-
aði í endurteknu prófkjöri Pírata í
Norðvesturkjördæmi. Gunnari
Ingiberg Guðmundssyni var hins
vegar raðað langoftast frambjóð-
enda í efsta sæti á listanum í kosn-
ingunni sem lauk í gær. Röðuðu 86
honum efst á lista en til sam-
anburðar var Eva Pandora sett 49
sinnum efst á lista.
Prófkjörskerfi Pírata er svoköll-
uð Schultze-aðferð þar sem fram-
bjóðendur keppa innbyrðis og var
Evu Pandóru raðað oftar ofar á
lista en Gunnari og því hlýtur hún
efsta sætið á listanum. Gunnari var
raðað 17 sinnum í neðsta sæti á list-
anum en Evu Pandoru aldrei. »8
Eva efst en Gunnar
oftar í efsta sæti