Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 2

Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. 664 6991 www.sveinnoskar.is sveinnoskar@sveinnoskar.isStétt með stétt Kynslóð með kynslóð Þriðja til fjórða sæti Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi 10. september 2016 Kosningaskrifstofa Hlíðasmára 11, efstu hæð. 201 Kópavogi. Svein Óskar áAlþingi Styðjum Litfögur blómabreiða verður mikilvægur hluti af leikmyndinni í óperunni Évgení Onegin sem frumsýnd verður í Hörpu 22. október nk. Eva Óperan Évgení Onegin eftir Pjotr Tchai- kovsky er byggð á samnefndri skáldsögu í ljóð- um eftir þjóðskáld Rússa, Alexander Púshkin. Signý Berger leikmyndahönnuður var ásamt hópi sjálfboðaliða frá Póllandi að undirbúa blómahafið í gærkvöldi. Morgunblaðið/Ófeigur Litfögur blómabreiða breiddist um Hörpu Íslenska óperan frumsýnir óperuna Évgení Onegin 22. október Maður á fertugsaldri slasaðist alvar- lega þegar hann féll fjóra til fimm metra þar sem hann var við vinnu sína á Hafnartorgi, í grunninum hjá Kolaportinu, um fjögurleytið í gær. Hann var fluttur á slysadeild Land- spítalans og síðan lagður inn á gjör- gæsludeild. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, sagði að fallvörnum hefði verið ábótavant á vinnustaðn- um. Framkvæmdir voru stöðvaðar þar til búið yrði að bæta úr fallvörnum og breyta verkferlum þannig að fall- hætta væri ekki lengur til staðar. Eyjólfur sagði atvikið vera afar al- varlegt. Verið var að færa til girðingu þegar maðurinn féll. Hann var ekki í öryggislínu. „Við teljum að menn eigi að vera í öryggislínum þegar unnið er á brúnum sem þessum,“ sagði Eyjólf- ur. Féll fjóra til fimm metra Morgunblaðið/Ófeigur Hafnartorg Maður féll og slasaðist alvarlega við vinnu sína í gær. Guðni Einarsson Anna Sigríður Einarsdóttir Stytta þarf meðallengd þess tíma sem sjúklingur liggur á Landspítal- anum, efla krafta sérfræðilækna í heilsugæslu og öldrunar og endur- hæfingarþjónustu, setja reglur um samræmda skráningu og innleiða nýtt fjármögnunarkerfi á næstu fjórum árum. Þetta er meðal þeirra tillagna sem ráðgjafarfyrirtækið McKinsey & Company leggur til í skýrslu sem fyrirtækið vann fyrir velferðarráðuneytið í nánu samstarfi við fulltrúa ráðuneytisins, Embætti landlæknis og Landspítalann. „Þetta er pakki sem gefur okkur færi á að eiga samtal um stöðuna eins og hún er,“ sagði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra þegar skýrslan var kynnt í gær. Hann kvaðst telja skýrsluna veita ákveð- inn grunn til að kanna hvernig end- urbæta mætti kerfið. Titill skýrsl- unnar er Lykill að fullnýtingu tækifæra Landspítalans – Íslenska heilbrigðiskerfið á krossgötum. Hana er að finna á vef velferðarráðu- neytisins. Þar er m.a. horft til af- kasta á Landspítalanum, rekstrar- hagkvæmni og framleiðni vinnuafls. Einnig er fjallað um nýtingu fjár- muna, gæði veittrar heilbrigðisþjón- ustu og samspil Landspítalans við aðra hluta heilbrigðiskerfisins, þ.á m. heilsugæsluna og sérfræði- lækna á eigin stofum. Skýrsluhöfundar nefna niður- skurð á framlögum til heilbrigðis- kerfisins í kjölfar bankahrunsins. „Til að grípa hið einstaka tækifæri sem sem felst í því að útgjöld eru aukin á ný til íslenska heilbrigðis- kerfisins eru lagðar til sjö aðgerðir til að styrkja íslenska heilbrigðis- kerfið á leið sinni fram á við.“ Tillögur um aðgerðir Í fyrsta lagi skal beina kröftum að því að stytta meðallengd þess tíma sem sjúklingur liggur inni sem er talin vera birtingarmynd fjölda vandamála á Landspítalanum. „Spít- alinn mun þurfa að fjárfesta í auk- inni getu til klínískra ákvarðana, styrkja innri ferla og losa um af- kastagetu á deildum í þessu skyni.“ Í öðru lagi er lagt til að efla krafta sérfræðilækna í heilsugæslu og öldr- unar- og endurhæfingarþjónustu. Tengja þurfi starfsemi Landspítal- ans betur við starfsemi annarra veit- enda heilbrigðisþjónustu. Í þriðja lagi skal taka meðvitaða ákvörðun byggða á staðreyndum um skipulag einkastofa sérfræðilækna. „Einkastofur ættu að veita sérfræði- læknisþjónustu einungis á þeim svið- um þar sem kostir þess eru augljósir,“ segir m.a. í ráðleggingunum. Í fjórða lagi á að setja reglur um samræmda skráningu og innleiða nýtt fjármögnunarkerfi. Mælt er með því að setja reglur um samræmda skrán- ingu heilbrigðisþjónustu sem nái jafnt til opinberra aðila og einkaaðila, allt frá heilsugæslu til sérfræðiþjónustu. Í fimmta lagi skal kanna fýsileika þess að koma á sameiginlegu „lóð- réttu“ stjórnskipulagi í heilbrigðis- kerfinu. Það myndi fela í sér sameig- inlega stjórnun á Landspítalanum, umdæmisspítölum, heilsugæslunni og öldrunarþjónustu. Í sjötta lagi skal hagnýta upplýs- ingatækni eins og frekast er unnt og í sjöunda lagi er mælt með því að beina nýjum fjárframlögum í þessar að- gerðir. Einstakt tækifæri heilbrigðiskerfisins  Ráðgjafarfyrirtækið McKinsey & Company gerir tillögur um aðgerðir til að bæta starfsemi Land- spítalans  Aukin fjárframlög verði notuð til að stuðla að breytingum og bótum á heilbrigðiskerfinu Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Landspítalinn Niðurstaða greiningar McKinsey & Company liggur fyrir. Kanadíska poppstjarnan Justin Bie- ber lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær. Hópur aðdáenda mætti þar til að berja goðið augum. Fagn- aðarstunur fóru um hópinn þegar Bieber steig út úr einkaþotunni klæddur grárri hettupeysu. Sumir aðdáendanna felldu tár af geðs- hræringu. Bieber fór síðan ásamt sam- ferðafólki sínu upp í þyrlu sem flutti það á áfangastað, sem ekki er vitað hver er. Bieber mun koma fram á tón- leikum í Kórnum í Kópavogi í kvöld og annað kvöld. Í gærkvöldi voru örfáir miðar á tónleikana í kvöld óseldir. Umferðartakmarkanir vegna tónleikanna taka gildi í Kórahverfi klukkan 16.00 í dag. Mikil eftirvænting og tár féllu  Justin Bieber kom í gær Morgunblaðið/HMH Kom og fór Justin Bieber flaug frá Reykjavíkurflugvelli í þyrlu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.