Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 4

Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Stórskipaumferð hefur aukist mjög við strendur landsins undan- farin ár og leika skemmtiferðaskip þar stórt hlutverk. Margar hafnir geta boðið togurum og smærri skipum upp á landtengingu til að minnka útblástur skipa í höfnum, en stærstu skipin, s.s. skemmti- ferðaskip, þurfa hins vegar að ganga á ljósavélum til að halda nauðsynlegum búnaði í gangi eftir að slökkt hefur verið á aðalvélum. Sigurður Gunnarsson, íbúi á Seyðisfirði, ritaði nýverið grein sem birt er á vefsíðu Austurfrétta, en þar vekur hann athygli á efna- og hávaðamengun vegna stórskipa í höfninni, m.a. frá farþegaferjunni Norrænu. „Verst er það þó á veturna þeg- ar ferjan er hér tvo sólarhringa í hverri viku. Drunur ljósavélanna heyrast um allt byggðarlagið og fjöldi fólks, þ. á m. ég, sefur þá með eyrnatappa. Þá kvarta sumir yfir því að þeir eigi erfitt með svefn meðan ferjan er í höfn,“ rit- ar Sigurður í grein sinni. Þá hefur hópur íbúa á Seyðis- firði krafist þess í erindi til bæj- aryfirvalda að skip sem sækja bæ- inn heim taki rafmagn úr landi. Vísar hópurinn til evrópskrar reglugerðar sem kveður á um að skip sem leggja að bryggju lengur en tvo tíma eigi að tengja sig við rafmagn sé þess kostur. Þörf á miklum tækjabúnaði „Svona stór skip, eins og far- þegaskip, geta ekki tengt sig í landi eins og aðstæður eru á Seyðisfirði í dag. Til þess þarf væntanlega að stækka spenni- stöðvar og stofnstrengi,“ segir Finnur Magnússon, deildarstjóri rekstrarsviðs Rarik á Austurlandi, og heldur áfram: „Ef við fáum formlegt erindi um að gera það, þá verðum við að sjálfsögðu við því.“ Gísli Gíslason, formaður Hafna- sambands Íslands og hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir það „mjög kostnaðarsamt“ verkefni að setja upp þann búnað sem nauðsynlegur er til að landtengja stór skip. „Öll umræða er hins vegar í þessa áttina. En menn eru að reyna að finna út úr því hvað hægt er að gera innan skynsamlegs ramma,“ segir Gísli og bætir við: „Ríkið verður að koma að borðinu því það er alveg útilokað fyrir hafnirnar að leysa mál sem þessi. […] Svona pakki fyrir höfn eins og á Seyðisfirði myndi ekki bara tæma sjóðinn heldur koma þeim í verulegan mínus til langs tíma.“ Ljósavélar skipa fara illa í bæjarbúa Morgunblaðið/Árni Sæberg Nálægð Íbúar segjast eiga erfitt með svefn vegna hávaða frá Norrænu.  Íbúar á Seyðisfirði hafa lýst yfir óánægju sinni með hávaða- og loftmengun frá stórum skipum  Er þess krafist að skipin tengi sig við land  Mjög kostnaðarsamt, segir formaður Hafnasambands Íslands Í samar hafa staðið yfir viðgerðir á Orkuveitu- húsinu við Bæjarháls og miðar verkinu ágætlega að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsingafull- trúa Orkuveitunnar. Eins og fram kom í fyrri fréttum komu í ljós miklar rakaskemmdir í húsinu. Skemmdirnar eru bundnar við vesturhluta byggingarinnar, en skemmdanna hefur hvorki orðið vart í austur- hlutanum né í svokölluðu Norðurhúsi, þar sem dótturfyrirtækið Veitur er með sína starfsemi. Nú er unnið að viðgerðum á þremur hæðum inn- anhúss auk endurnýjunar á utanhússklæðningu. Útlit er fyrir að fyrsta áfanga viðgerða ljúki um mánaðamótin október-nóvember, að sögn Eiríks. Innanhússviðgerðirnar munu standa eitthvað fram á næsta sumar. Þegar lagt var upp með viðgerðirnar var um- fangið óljóst en það var gróflega áætlað út frá stikkprufum á ástandi veggja. „Hingað til hefur þörf fyrir viðgerðir verið í samræmi við það sem prufurnar gáfu tilefni til að ætla og ekkert óvænt hefur komið upp,“ segir Eríkur. Að hans sögn er ennþá nokkur óvissa varðandi framhaldið og því liggur ekki fyrir hver kostn- aðurinn verður. Hann mun þó örugglega nema hundruðum milljóna króna, að sögn Eiríks. „Starfsfólk finnur auðvitað vel fyrir fram- kvæmdunum í húsinu og sumir þurftu að flytja sig til. Einn leigjendanna í húsinu var nýfluttur út þegar framkvæmdirnar byrjuðu og því áttum við auðveldara með að hliðra til svo betur færi um starfsfólk meðan á þessu stendur,“ sagði Ei- ríkur að lokum. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Viðgerð á Orkuveituhúsinu miðar vel Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Umsókn fyrirtækisins Iceland Resources um framkvæmdaleyfi til rannsókna á magni gulls í bergi í Þormóðsdal var hafnað af skipulags- nefnd Mosfellsbæjar. Er þar m.a. tilekið að ekki sé gert ráð fyrir námurekstri í að- alskipulagi bæjarins og er umsókninni hafnað af þeim ástæðum. Bryndís Haraldsdóttir, formaður bæjar- stjórnar Mosfellsbæjar og skipulagsnefndar, segir að það sé mat sérfræðinga að ekki sé hægt að veita framkvæmdaleyfi nema það byggist á aðalskipulagi eða deiliskipulagi. „Það er ekki fyrir hendi í þessu tilfelli. Þó að skipulagsstofnun hafi sagt að þetta væri minniháttar mál sem ekki þurfi umhverf- ismat, þá eru þeir samt sammála þeirri skil- greiningu okkar að einhverja forsendu þurfi í skipulagi til þess að veita þetta framkvæmda- leyfi,“ segir Bryndís. Áður hafa verið boraðar rannsóknarborhol- ur í Þormóðsdal, síðast árið 2006. Bryndís segir að skipulagslög hafi breyst síðan þá og lög um framkvæmdaleyfi hafi ekki verið til staðar þá. „Stefna okkar í aðalskipulagi hefur almennt verið sú að loka námum,“ segir Bryndís. Aðspurð hvort málinu sé endanlega lokið frá hendi bæjarins segir Bryndís að í það minnsta þyrfti að breyta aðalskipulagi á þann hátt að námugröftur yrði leyfilegur. Síður en svo áfall fyrir áformin Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, fram- kvæmdastjóri Iceland Resourcesm, segir að málinu sé síður en svo lokið. Hann sagði þó í gær að fyrirtækið ætti eftir að kynna sér bet- ur hvaða rök lægju að baki synjun á fram- kvæmdaleyfi. „Við eigum eftir að fá formlegt svar frá bænum. Við teljum okkur ekki vera að fara fram á framkvæmdir sem þurfi að vera inni á skipulagi á þessu stigi. Núna er hugmyndin eingöngu að framkvæma rann- sóknir,“ segir hann. Aðspurður segir Vilhjálmur synjunina síð- ur en svo áfall fyrir áformin um gullleitina. „Við eigum eftir að fara í gegnum margar svona hindranir á leiðinni. Það má lýsa þessu sem verkefni innan verkefnis. Ef þetta þarf að fara á (aðal)skipulag þá þurfum við að ræða við bæjaryfirvöld um að aðlaga skipu- lagið þessum málum, en fyrstu viðbrögð okk- ar eru þau að þetta þurfi ekki að vera inni á skipulagi. Þetta er ekkert bakslag, þetta eru bara tafir,“ segir Vilhjálmur. Fá ekki framkvæmdaleyfi til gullleitar  Mosfellsbær hafnaði Iceland Resources  Ein hindrum af mörgum, segir framkvæmdastjóri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálf- stæðisflokksins og mennta- málaráðherra, og Þorsteinn Páls- son, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráð- herra, hafa ákveðið að ganga til liðs við Viðreisn. Þorgerður Katrín greindi frá ákvörðun sinni með tísti á Twitter í gær. Hún tók þar fram að Þor- steinn hefði einnig ákveðið að ganga til liðs við Viðreisn. Þorsteinn staðfesti í gær að Þor- gerður ætlaði í framboð fyrir Við- reisn en sagði að sjálfur ætlaði hann ekki að bjóða sig fram. gudni@mbl.is Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Þorsteinn Pálsson Þorgerður og Þorsteinn í Viðreisn Bíll fór út af Vatnsnesvegi í Vest- ur-Húnavatnssýslu og valt í gær. Tvö voru í bílnum og sluppu þau við meiðsli. Þetta er fjórða um- ferðaróhappið sem verður á Vatnsnesvegi á síðustu fimm dög- um, að sögn lögreglunnar á Blönduósi. Valt á Vatnsnesvegi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.