Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 6

Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 6
Tveir piltar frá Alsír og Marokkó komu til Breiðdalsvíkur í gærmorg- un og óskuðu eftir hæli á Íslandi. Að sögn lögreglunnar á Egils- stöðum höfðu þeir komið með Nor- rænu og farið til Breiðdalsvíkur á puttanum og fótgangandi um 120 kílómetra leið. Piltarnir munu fá viðeigandi málsmeðferð í samstarfi við Útlendingastofnun. Piltarnir kváðust vera 16 og 17 ára gamlir og því voru barnaverndaryfirvöld einnig upplýst um hagi þeirra. Töluvert margir hælisleitendur komu til landsins með Norrænu í vor en síðan þá hefur verið lítið um slíkar heimsóknir, að sögn lögregl- unnar. Tveir piltar óskuðu eftir hæli á Breiðdalsvík 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða lagerstarfsmann? VIÐTAL Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Félagarnir í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness eru byrjaðir und- irbúning fyrir almyrkvann á sólu sem verður eftir tæp 10 ár, eða nánar tiltekið hinn 12. ágúst 2026. „Við byrjuðum að undirbúa þetta um leið og sólmyrkvinn í fyrra kláraðist. Hann var upphitunin fyr- ir stóra atburðinn sem verður í ágúst 2026. Nú vitum við hvað við getum gert betur,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður félags- ins. Eins og lesandur muna eflaust sást deildarmyrkvi á sólu á Íslandi hinn 20. mars í fyrra. Stjörnuskoð- unarfélagið pantaði 75 þúsund sól- myrkvagleraugu fyrir atburðinn, gaf íslenskum skólabörnum 55 þús- und gleraugu en seldi afganginn til almennings fyrir kostnaði. Þessi fjöldi dugði ekki og seldust gler- augun upp. Engu að síður sat félagið upp með skuld að upphæð 450 þúsund krónur vegna virðisaukskatts til ríkisins en með hjálp almennings voru þau mál leyst farsællega. „Við munum pottþétt panta gler- augu í tæka tíð fyrir 2026. Við þurf- um örugglega að panta talsvert fleiri gleraugu en í fyrra. Það ætti ekki að verða neitt mál því við er- um komin með góð tengsl við fram- leiðandann í Þýskalandi.“ Sævar Helgi segir að Íslendingar verði að undirbúa þennan mikla at- burð sem sólmyrkvinn er og und- irbúningurinn þurfi að hefjast í tæka tíð. „Það má búast við miklum straumi erlendra ferðamanna hing- að til lands til að sjá almyrkvann og þetta mun gerast á háannatíma í ferðamennskunni í ágúst,“ segir Sævar Helgi. Hann segir að svona atburðir laði að sér mörg þúsund manns og þar sem Ísland liggi í alfaraleið mitt á milli Evrópu og Ameríku megi bú- ast við óvenjumiklum fjölda. Margt í boði á Íslandi Sævar Helgi fór til Indónesíu ásamt tveimur félögum sínum í mars á þessu ári gagngert til þess að fylgjast með almyrkva þar. Myrkvinn var 9. mars og mörg þús- und manns voru þangað komin til að fylgjast með þessu mikla nátt- úruundri. „Við vorum nokkuð hepp- in með veður, það þykknaði upp um morguninn og en síðan létti til og við sáum allt sem við vildum sjá. Fólk tekur áhættuna á því að skil- yrði séu góð og myrkvinn sjáist vel en því er auðvitað ekki hægt að treysta. „Ef veðrið verður ekki al- veg upp á það besta 12. ágúst 2026 hefur Ísland upp á ýmislegt annað að bjóða svo ferðin hingað þarf ekki endilega að verða fýluferð.“ Að sögn Sævars Helga þurfa ferðaþjónustan og yfirvöld að gera ráðstafanir í tæka tíð fyrir al- myrkvann 2026. „Besti staðurinn verður Látrabjarg. Það verður næst miðlínunni og jafnframt næst þeim stað þar sem myrkvinn stend- ur lengst yfir. Ef við ætlum að koma hundruðum eða þúsundum manns þar fyrir í einu þarf að und- irbúa það vel,“ segir hann. Annar heppilegur staður verður Snæfellsnesið. „Þar verða örugg- lega þúsundir manna sem hafa áhuga á því að upplifa þennan at- burð og taka myndir af almyrkv- aðri sól með Snæfellsjökul í bak- sýn.“ Almyrkvinn verður á afar heppilegum tíma, rétt fyrir klukkan sex að kveldi. „Ég vona að við Íslendingar stöndum okkur vel og hjálpum er- lendum ferðamönnunum að upplifa þennan einstaka viðburð árið 2026,“ segir Sævar Helgi að lokum. Morgunblaðið/Golli Sævar Helgi stjörnuskoðari „Gera þarf ráðstafanir í tæka tíð fyrir almyrkvann 2026.“ Fleiri sólmyrkva- gleraugu pöntuð næst  Almyrkvinn á sólu 2026 sést best á Látrabjargi Umhverfisstofnun byrjaði í sumar að vakta fimm strandir víðsvegar um landið til að reyna að finna út uppruna ruslsins sem þangað skol- ar. Hver hann er, meta það magn sem safnast yfir ákveðið tímabil og fjarlægja það að lokum. Fyrirfram afmörkuð svæði á hverri strönd eru vöktuð en 100 metra kafli í Surtsey, Bakkavík á Seltjarnarnesi, Búðavík á Snæfellsnesi og Rauðasandi á Vestfjörðum voru valin. Umhverf- isstofnun vinnur verkefnið í sam- starfi við sveitarfélög og landeig- endur. Í haust verður Vestmanneyjum bætt við og Horn- ströndum sumarið 2017. „Með þessu verkefni erum við að reyna að finna uppruna ruslsins sem er grundvöllur fyrir því að grípa til aðgerða til að minnka rusl í hafi,“ segir Jóhanna Björk Weiss- happel, sérfræðingur í haf- og vatnsteymi Umhverfisstofnunnar sem sér um verkefnið. „Reynslan, til dæmis á Hornströndum þar sem enginn byggð er nálægt, sýnir að mikið rusl kemur frá sjávarútvegi og frá öðrum löndum með sjáv- arstraumum. Við viljum vita hvað er að koma á okkar strendur, hvaðan ruslið kem- ur og hve stór hluti er t.d. plast. Þær þjóðir sem hafa beitt þessari aðferðarfræði hafa fundið út að allt upp í um 80% ruslsins er plast.“ Umhverfisstofnun notast við að- ferðafræði frá framkvæmdastjórn OSPAR og uppfyllir Ísland þar með hluta af aðgerðaráætlun OSPAR- samningsins, sem Ísland hefur sam- þykkt, um að draga úr skaðsemi úr- gangs í hafi og á ströndum. OSP- AR-samningurinn er um verndun Norðaustur-Atlantshafsins. Strand- irnar þurfa að uppfylla ákveðin skil- yrði og er ruslið flokkað mjög ít- arlega, talið og skráð í samræmi við leiðbeiningar OSPAR, t.d. ekki stórgrýtt, að lágmarki 100 m löng, opin fyrir hafi og líklegt að rusl safnist þar fyrir. „Þetta er ítarlegt verkefni og er fyrstu niðurstaðna að vænta í lok ársins.“ segir Jó- hanna. benedikt@mbl.is Ljósmynd/Borgþór Magnússon Rusl Surtsey var hreinsuð í sumar en þar safnaðist mikið rusl. Reyna að finna út upp- runa ruslsins í sjónum Sævar Helgi fór ásamt félögum sínum til Indónesíu og fylgdist þar með almyrkva 9. mars sl. „Við reiknuðum það út að hver sekúnda í þeim myrkva hafi kostað okkur fimm þúsund krónur,“ segir Sævar Helgi, en myrkvinn stóð yfir í þrjár mínútur og 20 sekúndur. „Þetta var dýr ferð en hverrar einustu krónu virði. Þetta var eitthvað það magnaðasta sem ég hef nokkru sinni séð í náttúrunni. Það var gull- fallegt að sjá kol- svart tunglið fyrir sólinni og sjá sól- vindinn streyma út í geiminn úr krón- unni. Ég fæ ennþá gæsahúð þegar ég hugsa um þetta.“ Almyrkri verður í Bandaríkj- unum 21. ágúst á næsta ári og í Argentínu árið eftir. „Ég fer pott- þétt á báða staðina,“ segir Sævar Helgi. Sekúndan kostaði 5 þúsund SKOÐAÐI ALMYRKVA Í INDÓNESÍU Gallerí Fold stóð fyrir myndlistar- uppboði í byrjun vikunar og mátti þar finna mörg afbragðsverk, m.a. eftir gömlu meistarana. Þannig voru t.a.m. fimm verk boðin upp eft- ir Ásgrím Jónsson og níu eftir Jó- hannes S. Kjarval. Á uppboðinu mátti einnig finna verk eftir Louisu Matthíasdóttur, sem nefnist Melónur og paprika, og var það metið á 6-7 milljónir króna. Jóhann Ágúst Hansen, listmuna- sali og sérfræðingur hjá Galleríi Fold, segir verkið hafa verið slegið á 5 milljónir. „Við vorum einnig með annað verk eftir hana á síðasta upp- boði, af Engey og Viðey, og var það líka metið á 6-7 milljónir. Sú mynd fór á 5,6 milljónir,“ segir Jóhann Ágúst og bætir við að í Bandaríkj- unum, þar sem Louisa bjó mestallt sitt líf, seljast myndir hennar á sam- bærilegu verði og hér. Þá mátti einnig sjá fallegt verk af Reynisfjalli og Reynisdröngum eftir Þórarin B. Þorláksson sem metið var á um 5 milljónir og slegið á 4,9 milljónir. Að sögn Jóhanns Ágústar fékk séra Jes A. Gíslason, þáverandi prestur í Mýrdalsþingum, verkið að gjöf frá Mýrdælingum árið 1907 er þeir héldu honum skilnaðarsamsæti. Einstök mynd eftir Kjarval Meðal fágætra verka má nefna mynd eftir Kjarval sem m.a. sýnir Bessastaði. „Við höfum ekki fundið annað verk eftir Kjarval þar sem hann málar húsin á Bessastöðum og er hún því nokkuð einstök fyrir þær sakir,“ segir Jóhann Ágúst, en verk- ið fór á 3,6 milljónir. khj@mbl.is Meistararnir boðnir upp Morgunblaðið/Ófeigur List Fjölskylda eftir Jóhannes S. Kjarval var meðal verkanna á uppboðinu.  Sum verkanna seldust á um 5 milljónir króna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.