Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Árni Páll Árnason, þingmaðurSamfylkingarinnar, kvaddi sér hljóðs á Alþingi á þriðjudag og sagði að sér væri „brugðið við fréttaflutningi af því gerræði og því virðingarleysi fyrir réttum leik- reglum lýðræðisins sem hefur birst í prófkjöri Pírata í Norðvesturkjör- dæmi.“    Árni Páll vitnaði ítalsmann flokksins í kjördæm- inu, sem hafi sagt að sá sem hafi náð kjöri í prófkjöri flokksins hafi fengið 20-30 manns til að ganga í flokkinn til að kjósa sig og sagt svo orðrétt: „… samkvæmt þeim töl- fræðigögnum sem voru birt um kosninguna, þá kusu 18 af þessum eingöngu hann og engan annan í prófkjörinu …“    Og Árni Páll bætti við: „Hér eruhrikaleg ummæli viðhöfð. Annaðhvort hafa Píratar brotið gegn grundvallarreglum lýðræð- isins um frjálsar kosningar og gegn skýrum ákvæðum laga um per- sónuvernd með því að hafa atkvæði fólks rekjanleg eða þá að talsmaður flokksins er að bera út róg um ein- staka þátttakendur í lýðræðislegri kosningu. Hvor skýringin sem er ætti að duga til að dæma þessa stjórnmálahreyfingu úr leik.“    Hann spurði ennfremur hversvegna prófkjörið á höf- uðborgarsvæðinu hefði ekki verið ógilt þegar í ljós hefði komið að fjöldi hefði gengið í flokkinn fyrir það og kosið aðeins einn frambjóð- anda. „Er það af því að þar var rétta fólkið kosið?“ bætti hann við.    Þingmönnum Pírata var ekkiskemmt og runnu þeir hver af öðrum í ræðustólinn, en sannast sagna voru svörin ekki mjög trú- verðug. Árni Páll Árnason Stjórnmálahreyf- ing dæmd úr leik STAKSTEINAR Rafhitun Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element), hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar og flest annað til rafhitunar. Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki sem hafa sannað sig með áralangri reynslu. Rafhitarar fyrir heita potta Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði • Sími: 565 3265 • rafhitun.is íslensk framleiðsla í 20 ár Hiti í bústaðinn Veður víða um heim 7.9., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 11 rigning Akureyri 11 skýjað Nuuk 5 rigning Þórshöfn 11 léttskýjað Ósló 23 heiðskírt Kaupmannahöfn 21 skýjað Stokkhólmur 23 heiðskírt Helsinki 19 heiðskírt Lúxemborg 24 heiðskírt Brussel 26 heiðskírt Dublin 16 skýjað Glasgow 20 skýjað London 27 heiðskírt París 26 heiðskírt Amsterdam 27 heiðskírt Hamborg 26 heiðskírt Berlín 25 heiðskírt Vín 25 léttskýjað Moskva 16 heiðskírt Algarve 26 heiðskírt Madríd 38 heiðskírt Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 29 léttskýjað Róm 21 léttskýjað Aþena 27 rigning Winnipeg 14 skýjað Montreal 24 skýjað New York 25 rigning Chicago 28 rigning Orlando 28 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:33 20:19 ÍSAFJÖRÐUR 6:33 20:28 SIGLUFJÖRÐUR 6:16 20:12 DJÚPIVOGUR 6:01 19:49 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Eva Pandora Baldursdóttir sigraði í endurteknu prófkjöri Pírata í Norð- vesturkjördæmi sem lauk í gær. Í þetta skiptið völdu Píratar á lands- vísu á listann en ekki aðeins þeir sem búsettir eru í kjördæminu. Fimm frambjóðendur drógu sig úr framboði frá fyrra prófkjöri sem Pí- ratar höfnuðu að staðfesta í mið- lægri kosningu allra Pírata. Þar á meðal dró Þórður Guðsteinn Pét- ursson, sem var í efsta sæti í fyrra prófkjörinu, framboð sitt til baka. Eva Pandora lenti í fjórða sæti í því prófkjöri og Gunnar Ingiberg Guð- mundsson í sjötta en hann varð í öðru sæti nú. Athygli vekur að Gunnari var raðað langoftast frambjóðenda í efsta sæti á listanum í þeirri kosn- ingu sem lauk í gær. Röðuðu 86 honum efst á lista en til saman- burðar var Eva Pandora sett 49 sinnum efst á lista. Prófkjörskerfi Pírata er svoköll- uð Schulze-aðferð þar sem fram- bjóðendur keppa innbyrðis og var Evu Pandóru oftar raðað ofar á lista en Gunnari og því hlýtur hún efsta sæti á listanum. Í því sam- hengi ber að taka það fram að Gunnari var raðað 17 sinnum í ell- efta og neðsta sæti á listanum en Evu Pandoru aldrei. Í heild var Evu raðað 233 á lista en Gunnari 236 sinnum. Endurskoðunar mögulega þörf Smári McCarthy, sem er í fram- boði í Suðurkjördæmi fyrir kom- andi alþingiskosningarnar, er einn þeirra sem komu að innleiðingu Schulze-kosningakerfisins. Spurður hvort ástæða sé til þess að ætla að fólki hafi verið smalað gegn Gunn- ari Inga í ljósi þess hve pólaríseruð kosning hans er, segir Smári svo ekki þurfa að vera, en eins og fram hefur komið er smölun óheimil hjá flokknum. „Ég hef litlar áhyggjur af þessu. Það er aldrei hægt að stýra kosningahegðun. Maður verð- ur að treysta fólki í lýðræðisstarfi. Þó svo að við bönnum smölun er aldrei alveg hægt að staðfesta hana 100 prósent. Þetta er meira siðferð- isleg spurning sem hver og einn þarf að spyrja sig. Sumir líta þó á þetta sem meira áhyggjuefni en ég,“ segir Smári. Hann viðurkennir að Schulze-kerfið sé nokkuð flókið sem mögulega þurfi að endurskoða. „En kosturinn er sá að þetta tekur tillit til allra atkvæða,“ segir Smári. Morgunblaðið/Ómar Prófkjör Píratar hafa nú lokið vali á lista í Norðvesturkjördæmi. Eva efst í próf- kjöri Pírata í NV  Gunnari var raðað 86 sinnum í efsta sæti en Evu 49 sinnum  Eva oftar ofar Eva Pandora Baldursdóttir Smári McCarthy Náttúrufræðistofnun Íslands leggur til að fyrirkomulag rjúpnaveiða á þessu ári verið með sama hætti og undanfarin þrjú ár. Þá var leyft að veiða rjúpur í tólf daga á ári. Stofn- unin leggur til að ráðlögð rjúpna- veiði verði 40.000 fuglar í haust en á síðasta ári veiddust 54.000 rjúpur. Náttúrufræðistofnun hefur sent umhverfis- og auðlindaráðherra mat sitt á veiðiþoli rjúpnastofnsins 2016. Forsendur matsins byggjast á þeirri stefnu stjórnvalda að rjúpnaveiðar skuli vera sjálfbærar. Rjúpnastofn- inn er nú í niðursveiflu um landið austanvert en í lágmarki um landið vestanvert. Óvíst er hvenær næsta uppsveifla hefst. Viðkoma rjúpunnar hefur versnað á síðustu tíu árum og varð ekki nein breyting á því á þessu ári. Rjúpnafjöldinn í haust er vel undir meðallagi miðað við síðustu 50 ár. gudni@mbl.is Ráðleggingar um rjúpnaveiði í haust  Ráðlögð veiði í haust 40.000 fuglar Morgunblaðið/Golli Rjúpnaveiðar Lagt er til að leyft verið að veiða í 12 daga í haust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.