Morgunblaðið - 08.09.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.09.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 SÓLTÚN KYNNIR öRYggIS- og þjÓNuSTuíbÚðIR Um íbúðirnar Nýjar og bjartar tveggja til fjögurra herbergja íbúðir í fimm hæða húsi, að meðaltali um 95 m2 að stærð, til sölu fyrir 60 ára og eldri. Yfirbyggðar suðursvalir. Stæði í upphitaðri bílageymslu, auk þess sem geymsla fylgir öllum íbúðum. íbúðirnar eru staðsettar í Sóltúni 1–3, beint á móti Sóltúni hjúkrunarheimili. Frábær staðsetning miðsvæðis og stutt í alla þjónustu í nágrenninu. Kynntu þér íbúðirnar, verðskrá og aðrar upplýsingar á www.soltunibudir.is eða hafðu samband við okkur og bókaðu fund. Sóltún 1 ehf | Laugavegi 182 | 105 Reykjavík Sími 563 1440 | soltunibudir@soltunibudir.is | www.soltunibudir.is Po RT hö nn un Til sölu fyrir 60 ára og eldri í Sóltúni 1-3, Reykjavík. Verð frá kr. 39.800.000. íbúðirnar verða afhentar vorið 2017 Íslensku liðin á Ólympíu-skákmótinu í Bakú í Aserba-ídsjan hafa byrjað af feiknakrafti og í opna flokknum eru Íslendingar með átta stig af tíu mögulegum eftir fimm umferðir og sitja í 7.-25. sæti ásamt ýmsum stór- þjóðum skákarinnar. Hjörvar Steinn Grétarsson og Bragi Þorfinnsson hafa unnið allar skákir sínar, Hjörv- ar hefur teflt í öllum fimm umferð- unum en Bragi hefur hvílt einu sinni. Leita þarf aftur til Ólympíumótsins í Buenos Aires 1939 til að finna viðlíka sigurgöngu en þá vann Jón Guð- mundssonar allar tíu skákir sínar í úrslitakeppninni en Íslendingar unnu Copa Argentina, sigurlaun b- riðils. Fróðleiksfúsum er bent á ágæta vefsíðu, olimpbase.org, þar sem rakin eru úrslit og skákir Ól- ympíumótanna frá upphafi. Í gær var frídagur en sjötta um- ferð fer fram í dag og þá mæta Ís- lendingar Tyrkjum í opna flokknum en í kvennaflokknum eru mótherj- arnir Perú. Kvennaliðið vann Eng- lendinga í 3. umferð og Moldóvíu í 4. umferð. Með miklu harðfylgi tókst Lenku Ptacnikovu og Hallgerði Helgu að knýja fram sigur í báðum skákum sínum af miklu harðfylgi. Taflmennska Hallgerðar í lokakafla skákarinnar við England var af- burðagóð. Í miklu tímahraki tókst Lenku að snúa töpuðu tafli við og sigra í viðureigninni við Moldóvíu. Vinningshlutfall hennar er 80%. Þó að smávegis bakslag hafi komið hjá íslensku kvennasveitinni er frammi- staðan góð. Hollendingar, Úkraínumenn og Indverjar leiða opna flokkinn með 10 stig en mikla athygli vakti er Úkra- ínumenn unnu Rússa, 2 ½ : 1 ½ í 4. umferð. Í kvennaflokki eru Rússar og Úkraínumenn í efsta sæti með 10 stig. Íslenska sveitin er í 44. –58. sæti með sex stig. Hinn ágæti meðbyr sem lið Ís- lands í opna flokknum hefur fengið gefur vonir um hátt sæti en vel heppnaður lokasprettur er vitaskuld forsenda þess. Sveitin hefur einu sinni teflt „upp fyrir sig“ en tapaði þá 1:3 fyrir Tékkum. Þar vann Hjörvar Steinn hinn öfluga stór- meistara Laznicka á sannfærandi hátt: Ól 2016; 2. umferð: Hjörvar Steinn Grétarsson – Viktor Laznicka Móttekið drottningarbragð 1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. e4 Rf6 4. e5 Rd5 5. Bxc4 Rb6 6. Bd3 Rc6 7. Re2 Bg4 8. Be3 Dd7 9. Rbc3 O-O-O 10. a4!? Peðsfórn sem Hjörvar hafði greinilega skoðað fyrir skákina þar sem svipuð staða hafði komið fyrir áður í skákum Tékkans. Atburða- rásin í næstu leikjum er þvinguð. 10. … Rxe5 11. Bb5 c6 12. dxe5 Dxd1 13. Rxd1 cxb5 14. axb5 Kb8 15. e6! (sjá stöðumynd). Þessi skemmtilegi peðsleikur sem er dæmigerður fyrir hinn dýna- míska stíl Hjörvars virðist hafa sleg- ið Laznicka út af laginu. Hann á þó að geta varist. 15. … Bxe6 16. Bf4+ Kc8 17. Hc1+ Kd7 18. Hc7+ Ke8 19. Hxb7 g5!? A7-peðið er í hættu og falli það er b-peðið farið að ógna. Annar mögu- leiki var 19. … Bd5. 20. Bxg5 Hg8 21. Be3 Ha8? Tapleikurinn. Kannski hefur Laz- nicka óttast að hrókurinn lokaðist af eftir 21. … Hxg2! 22. Rg3 og misst af 22. … Bd5! Og 22. Rf4 má svara með 22. … Bg4! o.s.frv. Jafnvægi ríkir eftir 22. Hxa7 Rd5. 22. Bxb6 axb6 23. Hxb6 Bc4 24. Rec3 Hg5 25. Re3 Bd3 26. f4 Hc5 27. Kf2 Bg7 28. Hd1 Allir menn hvíts eru komnir á stjá og eftirleikurinn er auðveldur. 28. … Bxc3 29. Hxd3 Bxb2 30. Kf3 f5 31. Hb7 Hd8 32. Hb3 Bd4 33. b6 Hdc8 34. Hd3 Hd8 35. Hb3 Hdc8 36. Ha7 Hb8 37. b7 Kd7 38. Hd3 – og svartur gafst upp. Hjörvar og Bragi hafa unnið allar skákir sínar í Bakú Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Við taflborðið Íslenska ólympíusveitin: Hjörvar Steinn Gunnarsson, Jó- hann Hjartarson, Guðmundur Kjartansson og Bragi Þorfinnsson. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is „Við erum ekki að fara í verkfall á næstunni. Auðvitað er það tæki sem hægt er að grípa til en við erum ekki komin á þann stað,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunn- skólakennara. En grunnskólakenn- arar hafa í tvígang fellt kjarasamn- inga. „Við erum að meta stöðuna og skoða möguleikana. Þetta eru bara svo stór mál að við erum ennþá að vinna í þessu. Þetta er ekki eitthvað sem við hristum fram úr erminni.“ En nú virðast félagsmenn ykkar hafa fengið ýmsar úrbætur en samt eru menn ósáttir? „Við náðum ágætu samkomulagi um ýmsar breytingar. En á endan- um eru menn ekki sáttir við krónu- töluna sem er í þessum samningum,“ segir Ólafur. Búið að ljúka flestum samn- ingum hjá sveitarfélögunum Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og formaður samn- inganefndarinnar, segir að þau bíði Morgunblaðið/Ómar Gleði Þótt kennararnir í grunnskólum séu ekki sáttir með kjör sín er verk- fall ekki yfirvofandi á næstunni að sögn formanns stéttarfélags þeirra. Ekki búist við verk- falli á næstunni Ólafur Loftsson Inga Rún Ólafsdóttir þess að hitta fulltrúa grunnskóla- kennaranna. „Við höfum ekkert hitt þau síðan samningurinn var felldur,“ segir Inga Rún. Er einhver verkfallshrina að skella á okkur? „Við erum með 63 viðsemjendur og erum búin að ljúka samningum við alla nema grunnskólakennara og félag kennara og stjórnenda í tónlist- arskólunum. Annars eru allir samn- ingar undirritaðir og gilda út mars árið 2019.“ Hvað ber á milli í þessum samn- ingum við grunnskólakennarana? „Það er ljóst að þær kröfur sem hafa verið á borðinu eru ekki í sam- ræmi við vilja félagsmanna.“  Hafa fellt samninga í tvígang

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.