Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 www.facebook.com/spennandi 30 - 60% afsláttur af gjafavöru - rýmum fyrir nýjum vörum - Vertu upplýstur! blattafram.is FELST AÐGERÐALEYSI ÞITT Í AÐ SAMÞYKKJA KYNFERÐISOFBELDI? Nýjar vörur Kíktu á heimasíðuna lifstykkjabudin.is LAUGAVEGI 82 101 REYKJAVÍK SÍMI 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Póstsendum Laugavegi 63 • S: 551 4422 Glæsilegar haustyfirhafnir Skoðið laxdal.is Verð 29.900 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Tuttugu og einn starfsmaður í Kópavogi stundar nú nám í leikskólakennarafræðum með styrk frá bænum. Fyrir tveimur árum endurskoðaði Kópa- vogsbær reglur um styrki til starfsmanna leik- skóla til náms í leikskólakennarafræðum en bær- inn hefur styrkt starfsmenn til náms í þónokkur ár. Með endurskoðuninni var markmiðið að fjölga leikskólakennurum í leikskólum bæjarins. Vonast er til að hlutfall fagmenntaðra starfsmanna hækki í þeim tilgangi að efla faglegt starf og auka stöð- ugleika í starfsmannahaldi í leikskólunum. Nú eru 10 starfsmenn í námi til leikskólakenn- ara, sumir á öðru eða þriðja ári. Þá eru 11 há- skólagengnir í námi til að ná sér í leyfisbréf leik- skólakennara og þrír eru í meistaranámi. Þeir sem eru með háskólamenntun þurfa einungis að bæta við sig tveimur árum til að ná sér í leyfisbréf sem leikskólakennarar. Fimm hafa þegar lokið þessum áfanga á styrk frá bænum. „Það er mjög mikilvægt að styrkja faglegt starf í leikskólunum. því við viljum vera leiðandi í uppeldi, menntun og þjóunstu við börn og foreldra. Áhersla Kópa- vogs er að bjóða börnum skapandi og ánægjulegt starfsumhverfi, þar sem áherslan er á menntun, mannauð, öryggi, samvinnu og gæði. Með þessu erum við að leggja grunninn að svo mörgu og ef við erum með gott fólk sem hefur menntun og áhuga á þessu starfi þá stöndum við að sjálfsögðu miklu betur og aukum stöðugleikann,“ segir Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Kópavogsbæjar. Launað leyfi og bókastyrkur Styrkirnir til þeirra nemenda sem eru í leik- skólakennaranáminu, þ.e. 5 ára náminu, eru í formi launaðs leyfis þegar þeir eru í verknámi og staðlotum, en starfsmenn í námi geta tekið launað leyfi í allt að 35 virka daga á ári í allt að sjö ár vegna námsins. Jafnframt fá starfsmenn 5% viðbóðarstarfs- hlutfall á námstíma, að því gefnu að starfsmenn séu í hlutastarfi með námi, þ.e. ef starfsmaður er í 25% starfi þá fær hann 30% laun á meðan á nám- inu stendur á þeim forsendum að gera má auknar faglegar kröfur til viðkomandi. Starfsmenn geta einnig sótt um styrk fyrir skólagjöldum og náms- bókum, en hann hljóðar upp á 100.000 krónur á skólaári. Allir þeir sem njóta styrk til náms eru skuld- bundnir til að starfa við leikskóla Kópavogs í að minnsta kosti tvö ár að námi loknu í að lágmarki 50% stöðuhlutfalli. Anna Birna segir að þetta hafi vissulega aukinn kostnað í för með sér fyrir sveitarfélagið en miðað við ávinninginn sé kostnaðurinn ekkert ofboðs- lega mikill. „Mikil starfsmannavelta og miklar fjarvistir kosta líka mikið fyrir utan þau áhrif sem þetta hefur á börnin. Við á menntasviði höfum verið mjög ánægð með þetta framtak því það er líka viðurkenning á því starfi sem fer fram á leik- skólunum.“ Laðar starfsfólk að Leikskólastjórar í Kópavogi eru mjög ánægðir með verkefnið að sögn Önnu Birnu. „Það er gott þegar þú ert að ráða fólk að geta kynnt eitthvað svona, þetta laðar tvímælalaust að,“ segir Anna Birna. „Við höfum verið að fá heilmikið af fólki út á þetta, fyrir marga er mjög eftirsóknarvert að geta stundað nám og starf með þessum hætti og fengið til þess styrk. Þetta hefur borið meiri ár- angur en við gerðum ráð fyrir í upphafi því áhug- inn er svo mikill. Það hlýtur að skila sér í enn betra starfi á leikskólunum eftir því sem fram líða stundir.“ Mannaráðningar hafa gengið misjafnlega á leikskólum á höfuðborgarsvæðinu í haust. Anna Birna segir að þær hafi gengið betur en oft áður í leikskólum Kópavogs. „Upplifun okkar hér er að það sé meiri stöðugleiki í starfsmannahaldinu en verið hefur, en það finna allir fyrir því að það verður stöðugt erfiðara að ráða fólk í allar stöður innan leikskólanna.“ Fleiri sveitarfélög styrkja leikskólastarfsmenn til náms, fyrst til þess var Ölfuss og auk Kópavogs eru Hafnarfjörður og Seltjarnarnes meðal þeirra sveitarfélaga sem veita námsstyrki til starfs- manna leikskóla. Bærinn styrkir starfsmenn leikskóla til kennaranáms  Markmiðið að fjölga leikskólakennurum, auka faglegt starf og stöðugleika Morgunblaðið/Ásdís Leikskóli Styrkir til til starfsfólks leikskólanna í leikskólafræðum hafa gefið góða raun. mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.