Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
KörfuboltamaðurinnBrynjar Þór Björnsson,er flestum körfubolta-áhugamönnum vel
kunnur, enda sexfaldur Íslands-
meistari, leikjahæsti leikmaður
KR frá upphafi og landsliðsmaður
í körfubolta, en hann hefur spilað
46 landsleiki fyrir Íslands hönd.
Brynjar hefur undanfarið
unnið að undirbúningi körfubolta-
námskeiðs sem hann mun halda nú
í vetur, en námskeiðinu er m.a.
ætlað að fylla upp í það tómarúm
sem margir finna fyrir eftir að
þeir hætta körfuboltaiðkun á vett-
vangi íþróttafélaganna.
Æfingar Brynjars Þórs verða
þó ekki með þeim hætti að skipt sé
í tvö lið og spilað. Hann telur að
eftirspurn sé eftir einstaklingsmið-
uðum æfingum.
„Ég hef oft hugsað til þess
hvað gerist þegar ferlinum lýkur
og körfubolti er mjög þægilegur
hvað það varðar að þú þarft ekki
marga á æfingu til þess að geta
tekið virkilega vel á því. Þú þarft
bara einn bolta og eina körfu. Mér
finnst einn skemmtilegasti hlutinn
af körfuboltanum vera að fara með
einhverjum að skjóta, taka á því
þannig,“ segir hann.
Fyrir alla, konur og karla
Brynjar segir að allir séu vel-
komnir á æfingarnar, konur og
karlar, ungir sem aldnir.
„Þetta er námskeið fyrir
áhugamenn, t.d. fyrrverandi leik-
menn og leikkonur. Þetta er öðru-
Fólk á að vera kóf-
sveitt í lok æfingar
Fyrir þá sem vilja fylla upp í það tómarúm sem þeir finna eftir að þeir hætta
körfuboltaiðkun hjá íþróttafélögum ætti námskeið landsliðsmannsins Brynjars
Þórs að vera tilvalið. Hann segir það vera meira en „bumbubolta“ því hjá honum
ætti fólk aðeins að geta bætt leikinn sinn. Námskeiðin eru fyrir alla sem eru eldri
en 26 ára og langar að spila körfubolta og fara þau af stað í næstu viku.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Karfa Brynjar Þór Björnsson skýtur á körfu í leik KR - Grindavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigur Brynjar er margfaldur Íslandsmeistari með KR í körfubolta karla.
Fyrsta Leikhúskaffi vetrarins verður
í dag, fimmtudaginn 8. september, á
sjálfan bókasafnsdaginn. Dagskráin
hefst kl. 17:30 í Borgarbókasafninu
Kringlunni, en þar mun leikstjóri
Bláa hnattarins, Bergur Þór Ingólfs-
son, segja gestum frá uppsetningu
Borgarleikhússins á leikritinu. Eftir
kynninguna verður rölt yfir í Borg-
arleikhúsið þar sem gestir fá stutta
kynningu á leikmynd og annarri um-
gjörð sýningarinnar.
Í lok Leikhúskaffis býðst gestum
10% afsláttur af miðum á Bláa
hnöttinn.
Á þessu leikári munu Borgarleik-
húsið og Borgarbókasafnið bjóða
upp á þrjá viðburði undir heitinu
Leikhúskaffi, í tengslum við
sviðsetningar Borgarleikhússins á
Bláa hnettinum, Sölku Völku og
Elly. Gestum er boðið í Borg-
arbókasafnið Kringlunni þrjá
fimmtudagseftirmiðdaga þar sem
spjallað er við aðstandendur sýn-
inganna sem um ræðir ásamt því
að rölta yfir í Borgarleikhúsið og fá
skoðunarferð og kynningu á leik-
mynd og annarri umgjörð sýning-
anna.
Fyrsta Leikhúskaffi vetrarins í Borgarbókasafninu Kringlunni
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Leikarar Margir vildu í áheyrnarprufur í vor fyrir leikritið um Bláa hnöttinn.
Ræðir og fræðir um Bláa hnöttinn
Menntavísindasvið stendur fyrir ráð-
stefnu um læsi í víðum skilningi í dag
við Háskóla Íslands. Ráðstefnan ber
heitið „Fjölbreyttar leiðir til læsis“
og er henni ætlað að skapa vettvang
fyrir sérfræðinga, fræðimenn og
kennara til að kynna verkefni er lúta
að læsi. Aðalfyrirlesarar ráðstefn-
unnar verða Noella Mackenzie, dós-
ent í læsi við Charles Sturt-háskóla,
Ástralíu, Hrafnhildur Ragnarsdóttir,
prófessor við HÍ, og Jón Torfi Jón-
asson við HÍ. Einnig verður boðið upp
á málstofur þar sem m.a. verður
greint frá gagnvirkum lestri, læsi í
leikskólum, mikilvægi orðaforða,
nýju lestrarnámskeiði og viðhorfi
barna til lestrar og tækni.
Endilega …
… kíkið á ráð-
stefnu um læsi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Læsi Verkefni um læsi verða kynnt.
Aðalbjörg Jónsdóttir prjónakona og
Bókaútgáfan Sæmundur fagna í
dag útkomu bókarinnar Prjónað af
fingrum fram, í Eymundsson á
Skólavörðustíg kl. 17, en í bókinni
er fjallað um ævistarf prjónakon-
unnar Aðalbjargar Jónsdóttur sem
fædd er árið 1916 og verður því
100 ára síðar á þessu hausti. Á
bókarkápu kemur fram að bókin sé
helguð fáguðu handverki og list-
sköpun Aðalbjargar, sem er sam-
ofin lífshlaupi hennar og minn-
ingum. Bókin er einnig innlegg til
tóvinnusögu okkar. Aðalbjörg sýndi
með afgerandi hætti hverju hugur
og hönd fá áorkað þegar hæfileik-
arnir fá að njóta sín. Hún beinlínis
prjónaði af fingrum fram undurfína
samkvæmiskjóla, útprjónaða í fjöl-
breyttum mynstrum og formum, og
brá ljósi á eiginleika og sérstöðu
íslensku ullarinnar. En þrátt fyrir
glæsilegt framlag Aðalbjargar til
listsköpunar og merkan þátt henn-
ar í menningarsögu og reynslu-
heimi kvenna og atburðasögu þjóð-
arinnar, hefur hún tilheyrt hinum
þögla hópi kvenna þegar fjallað er
um afrek á opinberum vettvangi.
Höfundur bókar er Kristín Schmid-
hauser Jónsdóttir.
Fagnið með 99 ára prjónakonu í dag
Fágað handverk og listsköpun
Aðalbjargar Jónsdóttur
Aðalbjörg Hugur og hönd fá miklu áorkað þegar hæfileikar fá að njóta sín.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Enn snjallara heyrnartæki
Beltone Legend
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004