Morgunblaðið - 08.09.2016, Side 13
Morgunblaðið/Golli
vísi möguleiki til að hreyfa sig og
fólk getur komið og stundað ein-
staklingsmiðaðar körfuboltaæf-
ingar. Þetta eru ekki liðsæfingar,
heldur er meira verið að æfa skot,
drippl og allt sem við kemur ein-
staklingnum,“ segir Brynjar Þór.
„Ég miða við aldurinn 26-27
ára og upp úr, alla þá sem langar
til að koma og spila körfubolta.
Það eru margir sem eru í svona
„bumbubolta“ einhvers staðar,
þar sem skipt er í lið og hlaupið
er upp og niður. Menn fá tak-
markað út úr því og verða ekkert
mikið betri í körfubolta við það.
Hjá okkur ættirðu aðeins að geta
bætt leikinn þinn og jafnframt
fengið líkamlega útrás,“ segir
hann.
Svipað þeim æfingum sem
eru í meistaraflokkum
Æfingarnar munu fara fram á
þriðjudögum og fimmtudögum, frá
klukkan 12:00 til 12:50 og er gert
ráð fyrir að þátttakendur geti not-
að hádegishlé í vinnu til að mæta á
æfingar.
„Markmiðið er að það verði
ákveðin uppbygging í þessu. Fólk
verði orðið kófsveitt í lok æfingar
og finni fyrir því að tekið hafi ver-
ið á því,“ segir hann.
„Þessu svipar til æfinga hjá
þeim sem spila með meistaraflokki
eða í atvinnumennsku. Þeir fara
yfirleitt á tvær æfingar á dag og
þá er önnur æfingin svona ein-
staklingsmiðuð þar sem farið er
yfir það þegar þú ert að koma að
„screeni“, þú dripplar að keilum
og þarft að skjóta, hlaupa á milli
staða og skjóta, þannig að það er
verið að líkja eftir leik. Þetta er
öðruvísi en á liðsæfingum þar sem
þjálfarinn setur upp strategíur og
fleira í þeim dúr,“ segir Brynjar
Þór.
Líkt og að æfa sveifluna
Brynjar Þór segir að þó svo
að um nýja hugmynd sé að ræða,
þá sé hún ekki algjörlega úr
lausu lofti gripin. Karfan sé ekki
ósvipuð golfi að þessu leyti, skot-
höndin jafngildi sveiflunni, sem
þurfi ávallt að halda við.
„Golf er næststærsta íþróttin
á Íslandi á eftir fótbolta. Stór
hluti þeirra sem stunda golf hef-
ur farið í einkatíma og bætt
sveifluna. Þetta er ekki ósvipað,
menn geta komið og bætt sig í
drippli og skotum meðal annars,“
segir hann.
„Það verður farið mikið í
skotæfingar og hver og einn fær
blað í hendur til að geta skrifað
niður tölfræðina, hvað hann nær
að hitta mörgum sinnum. Í lok
námskeiðsins eiga menn svo að
geta séð hvort þeir hafa bætt sig
eða ekki. Markmiðið er auðvitað
að prósentan fari upp á við. Svo
verða dripplæfingar, til dæmis
þar sem dripplað er með einni og
tveimur höndum, dripplað á
staðnum ásamt því að drippla
upp og niður völlinn.“
Námskeið í allt haust
Brynjar Þór segist strax finna
fyrir miklum áhuga á námskeið-
inu. „Það er töluverð skráning bú-
in að vera á fyrstu námskeiðin.
Mörgum finnst þetta áhugavert og
þeim sem ég hef talað við finnst
þetta sniðug hugmynd, að gefa
fólki fleiri valkosti en að fara í
ræktina,“ segir Brynjar Þór.
Brynjar Þór Hann er sex-
faldur Íslandsmeistari,
leikjahæsti leikmaður KR
frá upphafi og landsliðs-
maður í körfubolta.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016
SJÓNMÆLINGAR
ERU OKKAR FAG
Tímapantanir:
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Velkomin í
verslun okkar
á fríhafnar-
svæðinu
í Leifsstöð
Á LEIÐ TIL ÚTLANDA
Rússland í dag: opinber samskipti við
nágranna í vestri, nefnist norræn
ráðstefnuröð um samskipti Rúss-
lands og Norðurlanda í Norræna hús-
inu og er á dagskrá á morgun kl.
8.30. Frummælandi er Mikhail Zygar
og eftir erindi hans verður hann tek-
inn tali. Zygar er án efa einn áhuga-
verðasti fjölmiðlamaður Rússlands.
Hann hóf feril sinn sem stríðsfrétta-
maður en er þekktastur í dag sem
metsöluhöfundur og stofnandi og að-
alfréttastjóri Dozhd, einu óháðu sjón-
varpsstöðvarinnar í Rússlandi. Sjón-
varpsstöðin sýndi m.a. frá götu-
mótmælunum í Moskvu 2011 og 2012
og hefur fjallað á gagnrýnan hátt um
ástandið í Úkraínu og í rússneskum
stjórnmálum almennt. Mikhail gaf út
bókina „All the Kremlin’s Men: Inside
the Court of Vladimir Putin“ árið
2015, en bókin vermdi efsta sæti
metsölulista í Rússlandi í fjóra mán-
uði eftir að hún kom út. Bókin hefur
verið þýdd á fjölda tungumála og
kemur út á ensku í september 2016.
Ráðstefna í Norræna húsinu
Erindi Mikhail Zygar fjölmiðlamaður.
Rússland í dag
Fyrsta námskeiðið hefst næsta
þriðjudag 13. sept. og lýkur 6.
okt. Þátttökugjald er 25.000
krónur en aðeins tíu sæti eru á
hverju námskeiði. Námskeiðið
fer fram í KR-heimilinu í hádeg-
inu á þriðjudögum og fimmtu-
dögum og er hvert námskeið í
heild átta skipti. Stefnt er að
því að bjóða einnig upp á nám-
skeið á næsta ári.
Tíu sæti á
námskeiði
HEFST NÆSTA ÞRIÐJUDAG