Morgunblaðið - 08.09.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 08.09.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 SMYRJA SÍMJÚK Á BRAUÐIÐ Síðumúla 20, 108 Reykjavík • Sími 551 8258 • storkurinn.is Opið: Mán.-Fö s. 11-18 Lau. 11 -15 Námskeið í prjóni og hekli storkurinn.is Meginþorri skattgreiðenda mun búa við lægri skattprósentu í nýju kerfi en nú er. Lægra skattþrepið verður 25% en tekjur yfir 7,8 millj- ónum á ári skattleggjast með 43% skatti. Útreikningar starfshópsins benda til að 90% einstaklinga myndu greiða skatta í lægra þrepi og 80% sambúðarfólks. Í skýrslu starfshópsins eru áhrif breytinganna metin, eftir tekjubilum og fjölskylduhag. Hluti þeirra er birtur hér með. Tekið er fram að ekki er tekið tillit til afnáms vaxta- bóta sem umbylt gætu samanburð- inum, hluta gjaldenda í óhag. Hækkun ráðstöfunartekna í ein- stökum dæmum er oftast á bilinu 2 til 5% en fer í einu dæmanna niður í óbreytt ástand og öðru upp í 14% hækkun. Ef litið er til tekjubila í greiningu starfshópsins sést að almennt hækka ráðstöfunartekjur mest í tekjulægsta bilinu, hjá einstaklingum með 200- 400 þúsund kr. mánaðarlaun og fólki í sambúð með 200 til 750 þúsund á mánuði. Mesta einstaka hækkunin er hjá fólki í sambúð með þrjú börn á framfæri. Heildarráðstöfunar- tekjur þess gætu hækkað um 14%, úr 5,4 í 6,1 milljón á ári. Þessi hlut- fallshækkun sker sig nokkuð úr. Einstaklingur með eitt barn myndi hins vegar borga sömu skatta. Ráðstöfunartekjur allra hækka  Breytingar á tekjuskattskerfinu myndu koma flestum til góða sam- kvæmt greiningu sérfræðinganefndar Mismunagreining eftir tekjubilum og fjölskyldumynstri* *Ekki er tekið tillit til afnáms vaxtabóta en skoða þyrfti þau áhrif í framhaldinu. Heimild: Forsætisráðuneytið 14 12 10 8 6 4 2 0 Fólk í sambúð með tvö börn 14 12 10 8 6 4 2 0 Barnlaust fólk í sambúð 200 - 750 þús. á mánuði 200 - 750 þús. á mánuði 751 - 1.300 þús. á mánuði 751 - 1.300 þús. á mánuði 1.301 - 2.200 þús. á mánuði 1.301 - 2.200 þús. á mánuði 8 6 4 2 0 Barnlaus einstaklingur 200 - 400 þús. á mánuði 401 - 650 þús. á mánuði 651 - 1.100 þús. á mánuði 8 6 4 2 0 Einstaklingur með tvö börn 200 - 400 þús. á mánuði 401 - 650 þús. á mánuði 651 - 1.100 þús. á mánuði Meðalráðstöfunartekjur í milljónum á ári með barnabótum í núverandi kerfi Meðalráðstöfunartekjur í milljónum á ári með barnabótum eftir breytingatillögu 2,9 3,5 4,8 5,1 2,9 3,7 5,1 5,6 4,6 5,0 9,0 9,0 7,0 7,2 13,6 13,6 4,8 5,2 9,2 9,2 7,4 7,5 14,4 14,4 +4% +3% +3% +3% +5% +3% +5% +5% +2% +6% +7% +9% Tillögurnar » Lagt er til að skattþrepin verði tvö, 25 og 43%. Tekjur yfir 7,8 milljónir á ári skatt- leggjast í efra þrepi. Megin- þorri skattgreiðenda myndi lenda í lægra þrepinu. » Samsköttun verði hætt og allir gjaldendur meðhöndlaðir á sama hátt. » Barnabótum verði breytt og vaxtabætur lagðar niður. Stuðningi beint að tekjulægra fólki. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ráðstöfunartekjur fólks í öllum tekjuhópum myndu hækka ef tillög- um sérfræðinga um breytingar á tekjuskattskerfinu yrði hrint í fram- kvæmd. Breytingarnar eru mismun- andi eftir tekjum og fjölda barna á framfæri en algengasta hækkun ráð- stöfunartekna er á bilinu 2-5%. Í samanburðinum er að vísu ekki tekið tillit til tillagna um afnám vaxtabóta sem ruglað getur einstök dæmi. Tillögur sjálfstæðrar verkefnis- stjórnar um breytingar og umbætur á skattkerfinu taka til allra þátta skattkerfisins, bæði beinna og óbeinna skatta. Hér er aðeins fjallað um áhrif tillagna um þá meginþætti sem stýra tekjuskattsbyrði. Lægri skattprósenta Lagt er til að tekin verði upp tvö skattþrep og persónuafslættinum breytt, samsköttun sambúðarfólks verði hætt, vaxtabótakerfið fellt nið- ur og því sem sparast með því beint til lágtekjuhópa með útborganlegum persónuafslætti og barnabótum beint í ríkara mæli til tekjulágra for- eldra. Dögun mun bjóða fram lista í öllum kjördæmum fyrir komandi alþingiskosningar og hefur tilkynnt skipan í fimm efstu sætin í Reykja- víkurkjördæmunum og Suð- vesturkjördæmi. Í tilkynn- ingu frá Dögun segir að flokkurinn vilji sameinast um það sem geti breytt ís- lensku þjóðfélagi úr ranglátu í réttlátt. Listinn í Reykjavík suður 1: Helga Þórðardóttir kennari og formaður Dögunar. 2: Ása Lind Finnbogadóttir framhaldsskóla- kennari.3: Jóhann Már Sigurbjörns- son formaður Samtaka leigjenda. 4: Sigríður Fossberg Thorlacius nemi. 5: Árni Gunnarsson. Listinn í Reykjavík norður 1: Hólmsteinn A. Brekkan fram- kvæmdastjóri Samtaka leigjenda. 2: Ásta Dís Guð- jónsdóttir formaður Sjálfs- bjargar á höfuðborgarsvæð- inu.3: Pálmi Einarsson iðnhönnuður. 4: Gunnar Skúli Ármannsson læknir. 5: Sigrún Viðarsdóttir. Suðurkjördæmi 1: Ragnar Þór Ingólfsson stjórnarmaður í VR. 2: Dr. Ásta Bryndís Schram lektor í HÍ. 3: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson framhaldsskólakennari. 4: Baldvin Björgvinsson raffræðingur og kennari. 5: Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir. Dögun býður fram í öllum kjördæmunum sex í haust  Listar eru skipaðir í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi Helga Þórðardóttir Hólmsteinn A. Brekkan Ragnar Þór Ingólfsson Ísland er í 5. sæti í sínum riðli í opnum flokki eftir 12 umferðir af 17 á heims- leikunum í brids, sem fara fram í Worclaw í Pól- landi. Keppt er í þremur riðlum og fara fimm efstu sveitirnar í hverjum riðli áfram í 16 liða úrslit, sem hefjast á laugardag, auk liðsins sem er stigahæst í 6. sæti. Í kvennaflokki er Ísland áfram í 14. sæti og á ekki möguleika á að komast í úrslit. Ísland tapaði í gær fyrir Banda- ríkjunum í opna flokknum en vann bæði Argentínu og Noreg en öll þessi lið eru að berjast um sæti í úr- slitum. Í dag spilar Ísland við Mexíkó, Líbanon og Pólland. Í kvennaflokki vann Ísland Pal- estínu og Danmörku en tapaði fyrir Pólverjum. Liðið spilar í dag við Kanada, Hong Kong og Frakkland. Áfram í baráttu um úrslitasæti í brids

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.