Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 NÝR ISUZU D-MAX VERÐ FRÁ 6.990.000kr. SJÁLFSKIPTUR, 6 GÍRA Isuzu D-Max Lux, leðursæti, 17" álfelgur, hiti í sætum, hraðastillir, rafdrifið bílstjórasæti, handfrjáls símabúnaður (Bluetooth) o.m.fl. EYÐSLA AÐEINS 8,4 L/1OO KM* 280.000 KR. KAUPAUKI NÚNA FYLGIR ÖLLUM ISUZU D-MAX DRÁTTARBEISLI OG HEITKLÆÐNING Á PALLINN *M ið a ð vi ð e yð sl u tö lu r fr á fr a m le ið a n d a á b e in sk ip tu m b íl í b lö n d u ð u m a ks tr i. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is 3.5OOkg NÝTT GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 7 7 1 6 7 Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, tók fyrstu skóflustunguna fyrir húsbyggingu á Strikinu 1 í gær en það er síðasta húsið sem byggt er í Sjálandinu. 42 íbúð- ir verða í húsinu og þá verða komnar um 230 íbúðir fyr- ir fólk 60 ára og eldra í hverfið en samanlagt eru um 760 íbúðir í hverfinu. „Það er ánægjulegt að hverfið skuli vera að klárast. Þetta er mjög vinsælt hverfi í ósnortinni náttúru, nálægt sjó og á miðju höfuðborg- arsvæðinu sem mörgum þykir jákvætt,“ sagði Gunnar Einarsson í samtali við Morgunblaðið í gær. Morgunblaðið/Ófeigur Nýtt hús fyrir 60 ára og eldri í Garðabæ Guðmundur Sigurðs- son læknir lést á Land- spítalanum í Fossvogi 5. september, 74 ára að aldri. Guðmundur fæddist 20. júlí 1942 á Ísafirði, sonur hjónanna Krist- ínar Guðmundsdóttur og Sigurðar Guð- mundssonar bak- arameistara. Guðmundur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri 1961, kandídats- prófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1967 og meist- araprófi í heimilislækningum (M.Cl.Sc) frá University of Western Ontario í Kanada 1987. Að loknu læknanámi á Íslandi starfaði Guðmundur fyrst sem að- stoðarlæknir á Landspítalanum og frá 1971 til 1982 sem héraðs- og heilsugæslulæknir á Egilsstöðum og víðar um Austurland. Hann var Clinical Teaching Fellow í heim- ilislækningum við Victoria Hospital í Ontario samhliða eigin framhalds- námi 1982-1984. Guðmundur gegndi alloft störfum sem settur landlæknir eða settur aðstoðarlandlæknir. Um tíma var hann lektor í heimilislækn- ingum við Háskóla Íslands. Hann var heilsugæslulæknir við Heilsu- gæslustöðina á Seltjarnarnesi 1985 til 2004 og við Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík 2004-2016. Á meðan Guðmundur starfaði á Egilsstöðum hafði hann forystu í rannsóknum til að undirbúa tölvu- skráningu sjúkraskráa fyrir heilsugæslu- stöðvar. Verkefninu, sem kennt var við Eg- ilsstaði var ætlað að gera heilsugæsluna skilvirkari og öruggari, með því að byggja upp skráningarkerfi ein- staklingsbundinna upplýsinga um heilsu- far sjúklinga og tölvu- færslu þeirra. Egils- staðarannsóknin var brautryðjandaverk á þessu sviði og varð víða til fyrirmyndar, ekki aðeins á Norðurlöndum heldur einnig annars staðar í Evrópu. Guðmundur var um árabil tilsjón- armaður Tölvunefndar, fyrirrennara Persónuverndar, varðandi öryggi persónuupplýsinga um heilsufar. Guðmundur var í stjórn Lækna- félags Íslands 1972-1979. Hann var formaður Rauða kross deildar Fljótsdalshéraðs og Borgarfjarðar eystra 1974-1978. Hann var í stjórn og jafnframt framkvæmdastjóri Flugfélags Austurlands frá stofnun þess til 1982. Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er Guðrún Þorbjarnardóttir, B.A. í latínu. Dóttir þeirra er Anna, læknir við Karolínska sjúkrahúsið í Stokk- hólmi. Guðmundur var áður kvænt- ur Bergljótu Jónsdóttur Eiríksson lækni. Hún lést 1971. Börn þeirra eru Jón, búsettur í Hveragerði, Sig- urður, verkfræðingur í Reykjavík og Kristín, atferlisfræðingur, lektor við Háskólann á Akureyri. Andlát Guðmundur Sigurðsson Jarðskjálfti upp á 3,5 stig varð í Mýrdalsjökli klukkan 08.58 í gær- morgun. Fáir eftirskjálftar urðu í kjölfarið og ekki fylgdi neinn órói í kjölfarið. Svo virtist sem jarð- skjálftinn hafi verið stakur skjálfti, að sögn sérfræðings á vakt. Jarðvársvið Veðurstofu Íslands vaktar svæðið vel. Nokkrir skjálft- ar yfir 3 stig hafa mælst í jöklinum í sumar og tveir um 4,5 að stærð. Skjálftahrina hófst 29. ágúst. 3,5 stiga skjálfti Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálf- stæðisflokks í umhverfis- og skipu- lagsráði Reykjavíkurborgar, lagði fram tillögu í gær þess efnis að skipulagið á flugvallarsvæðinu yrði endurskoðað með það að markmiði að opna neyðarbrautina á ný. „Þetta er mikið hagsmunamál fyrir þjóðina alla, flugöryggið og sjúkra- flugið að við eigum að nýta okkur þessi ákveðnu tímamót þegar inn- anríkisráðherra hefur óskað eftir viðræðum um flug- völlinn við borg- arstjóra og þings- ályktunartillaga liggur fyrir um þjóð- aratkvæðagreiðslu,“ segir Marta. Um sé að ræða mál sem hafi verið keyrt í gegn í mikilli andstöðu við borg- arbúa og landsmenn allra og því nauðsynlegt að sinna því. Marta Guðjónsdóttir Neyðarbrautin verði opnuð á ný

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.