Morgunblaðið - 08.09.2016, Side 16

Morgunblaðið - 08.09.2016, Side 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Allt fyrir eldhúsið Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–18. Þú færð ASKO hjá Progastro Þvottavél A-W6444W • Tromla úr stáli • Tekur 8 eða 11 kg • Ætluð í 10.000 tíma eða 5.000 þvotta Þurrkari A-T756HPW • Barkalaus • Tekur 8 • Hljóðstyrkur 66db • Orkunýting A+++ • Með varmadælu Inspired by Scandinavia Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Nær fimmtíu milljónir barna í heim- inum hafa flust frá heimkynnum sín- um af einhverjum ástæðum og þar af flúðu 28 milljónir hernaðarátök eða ofsóknir, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Barnahjálpar Samein- uðu þjóðanna, UNICEF. Af þeim sem hafa flúið heimkynni sín vegna átaka hafa um tíu milljónir barna fengið réttarstöðu flótta- manna samkvæmt sáttmála Samein- uðu þjóðanna frá 1951. Um milljón barna til viðbótar hefur sótt um hæli utan heimalands síns en ekki enn fengið réttarstöðu flóttamanna. Þar að auki er talið að um sautján millj- ónir barna dvelji enn í heimalandi sínu eftir að hafa flúið átök í heima- héruðum sínum. Þótt börn séu aðeins þriðjungur íbúa jarðar er tæpur helmingur þeirra sem hafa fengið stöðu flótta- manna á barnsaldri. Börnum með stöðu flóttamanna hefur fjölgað um 75% á fimm árum og um 45% þeirra komu frá Sýrlandi og Afganistan. Þrjú af hverjum fjórum þessara skráðu flóttabarna komu frá alls tíu löndum. Sjö af hverjum tíu börnum sem sóttu um hæli í Evrópu komu frá Sýrlandi, Afganistan og Írak. Börnum sem flýja heimaland sitt án foreldra sinna hefur stórfjölgað. Þau voru alls um 100.000 í 78 löndum í fyrra, þrisvar sinnum fleiri en árið áður. Mörg barnanna sem hafa flúið átök í heimalandi sínu hafa orðið fyr- ir miklu sálrænu áfalli vegna stríðs- hörmunganna. Þau þurfa oft að leggja líf sitt í hættu á flóttanum, hundruð þeirra hafa til að mynda drukknað í Miðjarðarhafi og á fleiri flóttaleiðum. Algengt er að börnin þjáist af vannæringu eða vessaþurrð vegna skorts á drykkjarvatni og þau eiga á hættu að verða hneppt í ánauð, beitt kynferðislegu ofbeldi eða jafnvel myrt. Í skýrslunni er gerður greinar- munur á hugtökunum flóttamaður, sem á rétt á vernd samkvæmt sátt- mála Sameinuðu þjóðanna, og far- andmaður, sem hefur flust eða flúið frá heimkynnum sínum af einhverj- um ástæðum. Á meðal farandmanna er flóttafólk, sem hefur hrökklast frá heimkynnum sínum vegna átaka, og einnig fólk sem hefur flust vegna sárrar fátæktar í leit að betra lífi. 20 milljónir barna flúðu fátækt Í skýrslunni kemur fram að auk þeirra 28 milljóna sem hafa flúið hernaðarátök hafa um 20 milljónir barna flúið sára fátækt eða ofbeldi glæpahópa. Mörg þessara barna eiga á hættu að vera handtekin, hneppt í ánauð eða sæta annars kon- ar misnotkun vegna þess að þau eru ekki með vegabréf eða önnur skil- ríki, auk þess sem réttarstaða þeirra er óljós og lítið eftirlit er með því að réttindi þeirra séu virt. Einn af hverjum átta farandmönn- um í öllum heiminum er á barnsaldri, eða um 31 milljón barna af 244 millj- ónum farandmanna. Hafa hag af farandmönnum Í skýrslunni segir að auðug lönd geti haft verulegan ávinning af því að taka á móti flótta- og farandmönn- um. Rannsókn á áhrifum innflytj- enda á hagkerfi auðugra landa hafi leitt í ljós að þeir hafi greitt meira í skatta og lagt meira fé til samfélags- ins en þeir hafi fengið í félagslegar bætur eða aðstoð. Þeir hafi í mörg- um tilvikum bætt úr skorti á vinnu- afli og stuðlað að hagvexti og ný- sköpun í löndunum þar sem þeir settust að. Í skýrslunni eru ríki sem hafa full- gilt barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna hvött til að virða öll ákvæði hans. Bent er á að samkvæmt sátt- málanum ber ríkjunum skylda til að virða réttindi allra barna, óháð því hvort þau fæddust í öðru landi. Lagt er til að ríki heims grípi þeg- ar í stað til aðgerða á sex sviðum til að vernda flótta- og farandbörn:  Tryggja að börn sem eru á flótta, einkum þau sem ferðast ein, verði ekki fyrir misnotkun og ofbeldi, t.a.m. með því að styrkja barna- verndarstofnanir, berjast skipulega gegn mansali og sjá þeim fyrir sér- stökum talsmönnum með það fyrir augum að hagsmunir barnanna verði hafðir í fyrirrúmi.  Hætta að hneppa börn, sem sækja um stöðu flóttamanna, í varðhald.  Halda fjölskyldum saman til að tryggja hagsmuni barna, auðvelda fjölskyldusameiningu og tryggja réttarstöðu þeirra.  Tryggja öllum flótta- og farand- börnum aðgang að skólum, heil- brigðisþjónustu og annarri grunn- þjónustu.  Beita sér fyrir aðgerðum gegn or- sökum þess að stórir hópar fólks leggja á flótta frá heimkynnum sín- um.  Vinna gegn útlendingahatri, mis- munun og öðrum þáttum sem valda því að flótta- og farandmenn eru í jaðri samfélagsins. Um 28 milljónir barna á flótta vegna hernaðarátaka  Um 45% flóttafólks eru á barnsaldri  Börnum sem flýja ein síns liðs fjölgar AFP Börn á flótta Farandmenn á landamærum Ungverjalands og Serbíu. Tæpur helmingur þeirra sem hafa fengið stöðu flóttamanna er á barnsaldri. Flestir í Asíu og Afríku » Flest þeirra tíu milljóna barna sem hafa réttarstöðu flóttamanna dvelja í þeim heimshluta sem þau fæddust í. » Tyrkland er það land sem hefur tekið við flestu flótta- fólki. Næstu níu lönd á listan- um yfir þau sem eru með flesta flóttamenn eru öll í Asíu eða Afríku. Fimmti hver íbúi Líbanons er flóttamaður. » Einn af hverjum níu sem hafa fengið stöðu flóttamanna dvelur í Evrópu, eða alls um 1,8 milljónir. Um milljón til við- bótar hefur sótt um hæli í Evr- ópu. Um milljón múslíma er nú komin til Mekka í því skyni að taka þátt í árlegri pílagrímsför, haj, sem mun hefjast á laugardaginn kemur. Gert er ráð fyrir að alls komi um tvær milljónir manna til borgarinnar vegna trúarhátíðar- innar. Pílagrímsförin til Mekka, fæðingarborgar Múhameðs spámanns, er einn af fimm hornsteinum íslamskrar trúariðkunar. Hverjum trúuðum múslíma, sem hefur efni á því, er ætlað að fara slíka ferð að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Múslímar eru hér við Kaaba í miðju moskunnar miklu í Mekka, helgasta stað múslíma. Múslímar safnast saman í Mekka AFP Pílagrímsförin undirbúin Stjórnendur Langkaer-gagnfræða- skólans skammt frá Árósum hafa verið gagnrýndir fyrir að setja þak á fjölda nemenda, sem eru af er- lendu bergi brotnir, í ákveðnum bekkjum. Fyrsta árs nemendum í skólanum hefur verið skipt í sjö bekki og í þremur þeirra hefur fjöldi nemenda úr röðum innflytj- enda verið takmarkaður við 50%. Hinir bekkirnir fjórir eru eingöngu skipaðir börnum innflytjenda. Yago Bundgaard, skólastjóri Langkaer, neitar ásökunum um að „kvótinn“ jafngildi mismunun. Hann segir að markmiðið sé að stuðla að samlögun minnihlutahópa í samfélaginu með því að koma í veg fyrir að innfæddir Danir hætti að sækja skólann. DANMÖRK Raðað í bekki á grundvelli uppruna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.