Morgunblaðið - 08.09.2016, Síða 17

Morgunblaðið - 08.09.2016, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Hótel Örk | Hveragerði | sími 483 4700 | booking@hotelork.is | www.hotelork.is Hótel Örk í Hveragerði var opnað árið 1986 og fagnar því 30 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við glæsileg afmælistilboð um helgina og skemmtidagskrá. Laugardaginn 10. september verður boðið upp á kaffi og kökur fyrir gesti og gangandi kl. 15–17. Einar einstaki töframaður skemmtir og lasertag frá Skemmtigarðinum verður á staðnum. GISTINGFYRIRTVO ÁAFMÆLISTILBOÐI 9.900 kr. Ein nótt í tvíbýli á 9.900 kr. herbergið (9. & 10. sept).Morgunmatur er innifalinn. 30% afsláttur VeitingastaðurinnHVER býður 30% afslátt af matseðli. Pantanir í síma 483 4700 eða á booking@hotelork.is. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í gær að þeir Bar- ack Obama, forseti Bandaríkjanna, vildu að löndin ynnu saman að því að hrekja vígamenn Ríkis íslams, samtaka íslamista, frá borginni Raqqa, höfuðvígi þeirra í Sýrlandi. Fjölmiðlar í Tyrklandi höfðu eft- ir Erdogan að hann hefði rætt þennan möguleika við Obama á leiðtogafundi G20-ríkjanna í Kína á dögunum. „Obama vill gera eitt- hvað með okkur hvað varðar Raqqa,“ sagði Erdogan. „Við sögð- um að það væri ekki vandamál frá sjónarhóli okkar.“ Stjórnvöld í Bandaríkjunum höfðu ekki staðfest þetta í gær. Tyrkir hófu umfangsmikinn hernað gegn Ríki íslams og vopn- uðum hópum Kúrda í Sýrlandi í síð- asta mánuði. Tyrkir hjálpuðu sýr- lenskum uppreisnarmönnum að hrekja liðsmenn Ríkis íslams frá bænum Jarabulus, við landamærin að Tyrklandi, en þeir hafa einnig einsett sér að stöðva sókn Kúrda sem berjast gegn samtökunum. Erdogan boðar sókn til að frelsa Raqqa AFP Snúa heim Sýrlendingar á leið til bæjarins Jarabulus eftir að liðsmenn Ríkis íslams voru hraktir þaðan. Stjórnvöld í Danmörku hafa ákveð- ið að greiða fyrir gögn úr Panama- lekanum og hyggjast rannsaka hvort 500-600 Danir, sem koma við sögu í skjölunum, hafi gerst sekir um skattalagabrot. Danmörk er fyrsta landið sem kaupir gögn úr lekanum, en skjölin koma frá lögmannastofunni Moss- ack Fonseca. Að sögn skattamála- ráðherra Danmerkur, Karsten Lau- ritzen, eru gögnin frá ónafngreindum manni sem setti sig í samband við stjórnvöld í sumar. Ákveðið var að kaupa gögnin eft- ir að yfirvöld höfðu farið yfir skjöl, sem send voru sem sýnishorn, og úrskurðað að þau væru ófölsuð. Þá var farið í að afla samþykkis flokk- anna á danska þinginu. Greitt fyrir skjöl frá Panama vegna skattrannsókna DANMÖRK Þrír menn hafa fundist látnir og konu er saknað eftir að ausandi rigning olli flóðum í Grikklandi. Tjónið var mest í borginni Kala- mata og nágrenni í suðvesturhluta landsins. 63 ára fötluð kona, átt- ræður maður og níræður maður létu einnig lífið í flóðum í borginni. Konu var saknað eftir að bíll henn- ar fannst mannlaus í flóðvatni í norðanverðu Grikklandi. Íbúðarhús og byggingar fyrir- tækja eyðilögðust í flóðunum sem hrifu með sér nokkra bíla út í sjó. Manntjón varð í aftakaflóðum AFP Allt á floti Bíll sem flóð hreif með sér út í sjó í grennd við borgina Saloniki. GRIKKLAND Áfrýjunardóm- stóll í Stokk- hólmi á að ákveða í næstu viku hvort fram- lengja eigi hand- tökutilskipun frá árinu 2010 á hendur Julian Assange, stofn- anda WikiLeaks, vegna ásakana um að hann hafi framið kynferðisbrot í Svíþjóð. Ass- ange neitar sök og fékk hæli í sendiráði Ekvador í Lundúnum í júní 2012 til þess að komast hjá því að verða framseldur til Svíþjóðar. Hann óttast að fari hann þangað verði hann framseldur til Banda- ríkjanna. Úrskurðar um hand- tökutilskipun beðið Julian Assange SVÍÞJÓÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.