Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nokkra at-hygli hefurvakið hversu lítil þátt- taka hefur verið í prófkjörum þeirra flokka sem á annað borð velja frambjóðendur sína þannig. Ekki hafa verið gerðar rann- sóknir á þessu. Hitt er vitað að þátttaka í kosningum fer víða minnkandi. Í Evrópu hefur það m.a. verið útskýrt þannig að meginhluti löggjafar komi í bögglapósti frá kommisserum í Brussel og tímaeyðsla sé að kjósa stimpilpúða á héraðsþing Brussel í einstökum löndum. Sú takmarkaða löggjöf sem löndin hafa eitthvað um að segja fellur að auki undir er- lendan dómstól. Getur hann ógilt lög „ríkjanna,“ stangist þau, að mati hans, á við Lissa- bonsáttmála, en það er heitið á „ekki stjórnarskrá ESB“. Langminnst þátttaka er í kosningum til Evrópuþings sem er valdalítil ofurlaunuð pjattsamkoma. Þátttökuleysi í þeim kosningum sýnir að almenningur gerir ekkert með þinglegan sýndarveruleika ESB. Þátttaka í borgarstjórnar- kosningum í Reykjavík var áður jafnan mjög almenn en hrundi niður í 60% eftir að Jón Gnarr var settur á svið í Ráð- húsinu. Enginn kjörinn fulltrúi í borgarstjórninni andæfði þeirri niðurlægingu. Fólkið átti engan fulltrúa lengur. Það fólk sem áður fyrr fórn- aði frístundum sínum til að byggja upp flokksstarf og lagði mikið á sig, drifið áfram af hug- sjónum og baráttuanda, er margt að hverfa frá. Það skynj- ar margt hvorki samkennd né þakklæti. Nú er það orðið eitt helsta montatriði í fari þeirra, sem fátt hafa fram að færa, að hamra á því að þeir hafi aldrei tekið þátt í flokksstarfi. Skín í gegn að viðkomandi telur sig eiga verulega inni hjá þjóðinni fyrir hreinlífi sitt. Þannig láta einnig þeir sem hvert mannsbarn getur séð að eru undirlagðir af stjórnmála- legri skoðun og inna henni allt það gagn sem þeir mega, en kannast aldrei við þá iðju sína. Láta eins og þeim sé stórlega misboðið þegar á hið augljósa er bent. Flokkar, sem lenda í því að mikilvægustu flokks- mennirnir, fótgönguliðarnir, sjá ekki lengur glitta í hug- sjónaeld, jafnvel ekki neista, hljóta að hugsa sinn gang. En í öllum þessum hremm- ingum hefðbundinna flokka, bæði hér á landi og annars staðar, er viljinn til að stofna nýja flokka meiri en áður. Ekki síst hér á landi. Giskað hefur verið á að á annan tug flokka ætli að skila framboðum á landsvísu núna eða næsta vor. Ekki skal gert lítið úr því. Enda sýnast flestir tals- menn þeirra sannfærðir um að hafa höndlað lausnir sem gagnast muni þjóðinni betur en það sem boðist hefur fram að þessu. Það er eftirtektarvert því á flesta mælikvarða er Íslandi skipað í hóp þeirra landa sem best þykja mega una og iðulega í allra fremstu röð. Engu að síður láta þeir, sem mest þenja sig, iðulega svo að það sé óumdeild staðreynd að þeir sem hafi stýrt landinu síð- ustu 70 árin eða svo hafi ann- aðhvort beinlínis viljað þjóðinni illt eða séu heimskir, þröngsýn- ir og hæfileikasnauðir bjálfar eða sambland af þessu öllu. Séu fullyrðingar af þessu tagi réttar verður að gagn- álykta svo að það séu einmitt gasprarar og bullurokkar sem hafi bjargað því sem mátti og þeir séu sem betur fer enn að. Samfylkingin ætlaði sér fyrir fáeinum árum að verða nýr burðarflokkur íslenskra stjórn- mála en á bágt núna. Margur heldur að ástæðan sé einkum sú að fylkingin sú batt sitt trúss svo fast við eina baráttumál sitt að þegar upp laukst flestum að mikið ólukkumál mál var, þá koðnaði allt niður. Aðild að ESB og gulrótin sjálf, evran, er komin vel á veg með að sökkva heilli heimsálfu í efnahagslegan pytt. Hin nýja bók nób- elsverðlaunahafans Stiglitz, sem er vinstrisinnaður hag- fræðingur, er afhjúpandi. Bók- in heitir „The Euro: How a Common Currency Threatens the Future of Europe.“ Þegar bókarhöfundurinn kynnti bók sína sagði hann um evruna að hún hefði reynst ein- stök mistök. („An utter fa- ilure“). Nýlega bættist flokkur við íslensku flokkaflóruna sem er einsmálsflokkur eins og Sam- fylkingin. Og stærstu tíðindin við þá flokksstofnun eru þau að málið eina er ekki bara málið eina, heldur hið eina og sama og sökkti Samfylkingunni. Nýi flokkurinn hefur það hins vegar fram yfir systur- flokk sinn að hann forðast eins og heitan eldinn að nefna eina málið sitt á nafn! Gæti það ekki verið einstakt í tilveru fram- boðs frá því að flokkakerfi varð til á þessari jörð að ætla í kosn- ingar með aðeins eitt baráttu- mál í farteskinu og vera ráðið í að nefna málið eina helst ekki á nafn? Það er margt skrítið og mun víðar en í kýrhausnum} Umhleypingar í stjórnmálum H vernig væri að fella niður barnabætur og hafa dvöl hjá dagforeldrum, í leikskólum og frístundaheimilum mjög ódýra eða jafnvel ókeypis? Tónlistarnám og íþróttir á viðráðanlegu verði og annað sem viðkemur börnum verulega niðurgreitt? Kæmi það sér ekki betur fyrir alla? Barnabæturnar færu þá örugglega í börnin og rekstur á þeim og öll börn væru jöfn þegar kæmi að dagvistun og tóm- stundum. Það kæmi líka í veg fyrir að fólk forðaðist að skrá sig í sambúð því um leið og það er gert og báðir aðilar eru í vinnu þá hverfa barnabæturnar, jafnvel þótt tekj- urnar séu bara rétt til að skrimta á í íslensku þjóðfélagi. Það kæmi sér líka vel fyrir báða foreldra ef þeir eru ekki í sambúð, „barna- bæturnar“ færu þá ekki eingöngu til þess foreldris sem börnin hafa lögheimili hjá heldur myndu líka nýtast um- gengnisforeldrinu. Flestir foreldrar sem ég hef rætt við eru sammála því að það kæmi betur út fyrir þá ef þessi leið yrði farin en það eru allir hræddir við að rugga bátnum. Sumir vilja nefni- lega frekar fá einhverja summu beint inn á bankareikning- inn sinn, sem þeir geta ráðstafað að vild, en að hafa þann möguleika að senda barnið sitt í daggæslu eða tómstundir. Það er fáránlega dýrt að vera foreldri á Íslandi og eitt- hvað að kerfinu þegar stór hluti af ráðstöfunartekjum með- allaunþega fer í rekstur á barni. Frístundastyrkir sveitar- félaganna, t.d. Reykjavíkur þar sem undirrituð býr, eru varla upp í nös á ketti en maður er samt af- skaplega þakklátur fyrir styrkinn því hann er þó eitthvert mótframlag. Svo ég taki dæmi af bara einu barni mínu sem hefur verið afskaplega kostnaðarsamt þetta haustið. Það æfir eina íþrótt og æfingagjöld fyrir árið eru um 70.000 kr. – það er fyrir utan allan annan kostnað sem hlýst af íþróttinni eins og íþróttaföt, keppnisgjöld og keppnisferðalög. Barnið er mjög tónelskt og hefur lengi suðað um að fá að læra á hljóðfæri. Eftir mikla umhugsun og útreikninga var ákveðið að leyfa því að prófa einn vetur í tónlistarnámi og athuga hver áhuginn yrði í framhaldinu. Fullt nám í tónlistarskóla kost- ar 153.000 kr. veturinn, 2x25 mínútur á viku. Svo vildi svo „óheppilega“ til að barnið fór til tann- læknis og það kom í ljós að það þyrfti í tannrétt- ingar sem allra fyrst. Það þarf „bara“ góm, a.m.k. til að byrja með, og það kostar 130.000 kr. með niður- greiðslu. Þá fer barnið á frístundaheimili hluta úr viku. Auðvitað hefði ég getað sleppt því að leyfa barninu að æfa íþótt eða hummað tónlistarnámið fram af mér en ég er svo heppin að vera í meðallaunavinnu sem gerir það að verkum að ég get greitt af þessu, en þó aðeins naumlega því ég er með fleiri börn og heimili að reka, auk húsnæðis- og námslánaskulda. Við skrimtum en hvað með öll hin börnin sem eiga foreldra sem gera það ekki, hvernig fara þeir að þetta haustið og hvað fá börnin þeirra að gera fyrir utan að mæta í skólann? Væri ekki bara betra að sleppa barnabótum og hafa tómstundastarf, dagvistun og læknis- þjónustu fyrir börn gjaldfrjálst? ingveldur@mbl.is Ingveldur Geirsdóttir Pistill Barnabætur yfir í betri þjónustu STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Miklum umhverfislegumávinningi má ná meðþví að auka notkunlandrafmagns um borð í skipum í höfn. Nýta skipin sér þá innlenda raforku sem framleidd er á umhverfisvænan og endurnýj- anlegan máta í stað þess að brenna skipaolíu í ljósavélum sínum. Þetta er niðurstaða Darra Eyþórssonar umhverfisverk- fræðings sem gerði forkönnun á aukinni notkun endurnýjanlegra orkugjafa við Faxaflóahafnir. Nú þegar nýta innlend fiskiskip og tog- arar sér þessa þjónustu, en raf- dreifikerfi hafn- anna var hannað með það í huga að þjónusta þessi skip. Til að auka megi sölu á raforku til annarra og orku- frekari skipa sem hafnirnar sækja þarf að endurhanna og uppfæra nú- verandi dreifikerfi. Á það bæði við um rafdreifikerfi hafnanna og dreifi- kerfi Veitna ohf., sem flytur orkuna til þeirra. Ef það væri gert væri hægt að tengja önnur skip við raf- orkukerfið, svo sem flutningaskip, skemmtiferðaskip, tankskip og rannsóknarskip. Hið endurnýjaða kerfi þarfnast hærri spennu svo unnt sé að flytja nægt rafmagn um borð í þessi skip. Kostnaðarsamar breytingar Niðurstaða könnunar Darra er sú að með auknum landtengingum í höfnum Faxaflóahafna mætti draga úr losun gróðurhúsalofttegunda við hafnirnar sem nemur allt að 17,5 kt CO2-ígilda(koldíoxíðs) á ári, en það samsvarar 3,9% heildarútstreymis frá íslenskum sjávarútvegi. Að auki- myndu þessar aðgerðir draga úr út- streymi annarra mengunarefna og svifryks svo nemur fjölda tonna á ári. Fram kemur í skýrslu Darra að kostnaður við nauðsynlegar end- urbætur á rafdreifikerfinu til að unnt sé að ná þessum umhverfislega ávinningi sé verulegur, eða um 5,5 milljarðar króna samkvæmt laus- legri kostnaðaráætlun. Hagnaður af sölu rafmagns muni ekki einn og sér geta staðið undir svo umsvifamiklum innviðafjárfestingum, miðað við nú- verandi skipakomur og gjaldskrá raforku. „Til að auknar landtengingar skipa í höfn verði að veruleika er því ljóst að til þarf að koma stuðningur frá stjórnvöldum. Sá stuðningur verður bæði að vera fjárhagslegur til að styðja við innviðauppbyggingu sem og lagalegur til að tryggja lág- marksnotkun kerfisins og festa landtengingarvenjur í sessi,“ segir Darri. Segir hann að ávinningur stjórnvalda af auknum landteng- ingum skipa sé tvíþættur. Í fyrsta lagi leiði aðgerðirnar af sér samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda og geta því verið hluti af aðgerðum íslenskra stjórnvalda til að uppfylla skuldbindingar sínar gagnvart al- þjóða loftslagssamningum, s.s. Par- ísarsamkomulaginu. Bendir hann á að í sóknaráætlun Íslands í loftslags- málum komi m.a. fram það markmið Íslendinga að draga úr losun kol- díoxíðs(CO2) í sjávarútvegi um 40% fyrir árið 2030. Í öðru lagi muni aðgerðirnar bæta loft- og vistgæði við umhverfi hafnanna, sem mun auðvelda þá uppbyggingu íbúðarbyggðar í grennd við hafnarsvæði sem nú er á skipulagsáætlunum Reykjavík- urborgar. Landtenging skipa dregur úr mengun Morgunblaðið/Árni Sæberg Mengun á sjó Mikil framför væri að því að tengja skemmtiferðaskip sem hingað koma við rafmagnskerfið. Þá væri óþarft að hafa ljósavélar í gangi. Darri Eyþórsson „Við erum að fara yfir skýrslu Darra og þær tillögur sem hann leggur fram. Við munum fara eftir þeim eins og kostur er,“ segir Gísli Gíslason, hafn- arstjóri Faxaflóhafna. Fram kemur í skýrslu Darra að þróunin undanfarin ár sýni að umhverfiskröfur fyrir skipa- siglingar hafa aukist verulega undanfarið, sérstaklega í Evr- ópusambandinu og í nágranna- löndum Íslands. Útlit sé fyrir að þessar kröfur aukist enn frekar á næstu árum og að æ fleiri lönd marki sér skýra stefnu um eldsneytisnotkun og útblástur í mengunarlögsögu sinni. „Við munum án vafa senda ríkinu bréf þar sem ósk- að verður eftir aðkomu þess ef það er markmið að stuðla að landtengingu stærri skipa. Sama á við um harðari kröfur um útblástur skipa innan efna- hagslögsögunnar í takt við það sem gerist erlendis,“ segir Gísli. Kröfurnar hafa aukist ÁHRIF SKIPASIGLINGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.