Morgunblaðið - 08.09.2016, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 08.09.2016, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is Á R N A S Y N IR Kíkið á verðin eftir tollalækkun Æfingapeysa, hálfrennd 6.990 kr. íþróttafatnaður stærðir 36-46 Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is Fagleg & persónuleg þjónusta Dæmi: LIRIKA black Frábær kaffivél fyrir lítil fyrirtæki 3.600,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur! Ágæti kjósandi. Næsta laugardag fer fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþing- iskosningar í. Ég hvet þig til þess að taka þátt í prófkjörinu og nýta þannig rétt þinn til þess að velja full- trúa sem þú treystir til að axla þá ábyrgð sem því fylgir að vera kjörinn fulltrúi til setu á Al- þingi Íslendinga. Mikilvægasta verkefnið á kom- andi misserum verður að tryggja áframhaldandi styrka hagstjórn þar sem áhersla er lögð á jöfnuð og rétt- læti með langtímahagsmuni hins al- menna launþega í fyrirrúmi. Ég tel að reynsla mín af sveit- arstjórnarmálum geti nýst vel á Al- þingi. Undanfarin sex ár hef ég verið bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og hef í störfum mínum öðlast víðtæka þekk- ingu á fjölmörgum málaflokkum sem snúa að hagsmunum íbúa og um- hverfis. Ég er nú formaður umhverf- is- og framkvæmdaráðs, varafor- maður í fjölskylduráði, formaður verkefnisstjórnar um byggingu hjúkrunarheimils og formaður starfshóps um uppbyggingu á Ás- völlum. Á liðnum vikum hef ég skrifað um þau áhersluatriði sem ég mun beita mér fyrir að fái ég til þess stuðning:  Lækkun trygg- ingagjalds en það var hækkað um 40% til að mæta atvinnuleysi eftir efnahagshrun  Lögfestan rétt barna til dagvistunar frá 12 mánaða aldri  Að eldri borgarar og öryrkjar njóti að fullu eigin atvinnutekna án þess að komi til skerðingar á bóta- greiðslum Ég gef kost á mér í 2.-4. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins hinn 10. september og óska eftir stuðningi þínum til góðra verka. Frekari upplýsingar um mig og helstu áherslur mínar er að finna á xd.is/profkjor og facebook síðu minni https://www.facebo- ok.com/1312.is/ Bestu kveðjur. „Árangur fyrir fólkið“ Eftir Helgu Ingólfsdóttur Helga Ingólfsdóttir »Mikilvægasta verk- efnið á komandi miss- erum verður að tryggja áfram styrka hagstjórn á Íslandi með áherslu á langtímahagsmuni hins almenna launþega. Höfundur er bæjarfulltrúi og fram- bjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Suðvesturkjördæmi. Á útmánuðum 1986 hóf ég störf á Sjónvarp- inu. Þá var bara ein sjónvarpsstöð, útsend- ingar voru sex daga vikunnar, ellefu mán- uði á ári. Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri Sjónvarps, hafði beðið mig að koma til starfa. Þjóðin var að brjóta af sér hlekki ríkisein- okunar Ríkisútvarps. Bylgjan fór í loftið í ágúst 1986 og í október hóf Stöð 2 útsendingar þar sem Páll Magnússon stýrði frétta- stofu með styrkri hendi. Tveir af- burðamenn sem allar götur síðan hafa sett svip sinn á ís- lenska ljósvakamiðla. Páll fékk mig til starfa á Stöð 2 á útmánuðum 1989. Þá hófst samstarf okkar og vinátta sem aldrei hefur slitnað. Þetta voru skemmti- legir tímar, samkeppni um fréttir hörð. Páli var treyst til að stýra Stöð 2 og síðar Rík- isútvarpinu, farsæll og öflugur. Hann hefur um áratuga skeið verið sá fréttamaður sem mest trausts hefur notið og marga glímuna tekið á öldum ljósvakans. Ávallt traustur, trúverðugur og sanngjarn. Páll Magnússon er án vafa öflugasti fréttamaður sinnar tíðar auk þess að stýra þessum tveimur stærstu ljós- vakamiðlum landsins. Nú er Páll kominn í pólitík, er í framboði í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Suðurkjördæmi. Að mínu viti er mikill ávinningur af inn- komu Páls í pólitík. Þjóðin þarf festu og traust fólk á Alþingi. Ekki spillir að Palli er lipur skákmaður! Um það getur Garry Kasparov vitnað! Páll Magnússon í pólitík Eftir Hall Hallsson »Páll Magnússon er án vafa öflugasti frétta- maður sinnar tíðar. Hallur Hallsson Höfundur er fréttamaður og sagnfræðingur. Svo vel þykist ég þekkja þjóð mína að hún mun ekki veita Pírötum það braut- argengi sem hún hef- ur gert í skoð- anakönnunum undanfarin misseri. Ástæðan er einföld þegar á reynir. Pí- ratar standa ekki fyrir neitt og ef þeir komast í stjórn- unarstöður ætla þeir að gera eitt- hvað. Gera eitthvað. Hvaða vit- leysa er þetta? Píratar virðast hafa litla reynslu og lítið verkvit, stundum tefla þeir fram brjóstviti sem virðist slasað. Grundvöllurinn fyrir sjálfstæði og stjórn sjálfstæðrar þjóðar er stefna, markmið, metnaður – jafn- vægi í hlutum, fjármálum sem framkvæmdum miðað við það sem þjóðin hefur úr að spila. Þar reynir á seiglu og þol því fátt er einfalt. Við Íslendingar höfum yndi af sér- stæðum persónuleikum og það er fullt af þeim í safni Pírata. Á ein- um fundi þeirra hafði einn á orði að þeir yrðu að gera eitthvað snið- ugt. Eftir stundarþögn sagði ann- ar: Fríar tannviðgerðir. Frábært, sagði leiðtoginn. Hver á að borga 11 milljarða kostnað? spurði annar. Útgerðin, svaraði leið- toginn, ekkert mál. Maður spyr í hvaða veröld þetta blessað fólk lifir. Kannski ein- hverju eins og Bakka- bræður sem fengu sér kött, en vissu ekki hvað hann æti. Bónd- inn á næsta bæ sagði þeim að kötturinn æti allt. Þá fóru þeir heim og drápu köttinn svo hann æti þá ekki sjálfa. Verðmætin á bak við Pírata sem stjórnmálaafl eru því miður engin, þeir eru góðir spjallarar, lausir og liðugir og hafa áhuga á tölvuteng- ingum, en pólitísk stefna þeirra er efnisminni en nýju fötin keisarans. Það þarf burð, myndugleika, markmið og fylgni, þolinmæði og þrautseigju til þess að stjórna landi okkar. Andstæðan við Pírata er til dæmis Sigurður Ingi Jó- hannsson forsætisráðherra sem hefur leyst hlutverk sitt frábær- lega vel og áttar sig á því hvað það skiptir miklu máli að hafa tón sem getur skapað þjóðarsátt um leiðir og lausnir. Nei, kæru landar, hættum að æra óstöðuga, minnkum að hampa Pírötum þannig að sumir frétta- menn góna upp í þá eins og naut á nývirki og halda að þeir séu að höndla sannleikann og hamingjuna einu sönnu og fólk getur algjörlega ruglast í ríminu. Yndisleg persóna, Sölvi Helga- son, frægasti flökkumaður Íslands, kom gjarnan út á hlað þar sem skotið var yfir hann skjólshúsi og sagði með miklum brag: Hvar skyldu bátar mínir róa í dag? Hann átti auðvitað enga báta, en bar sig vel og það er gott, en þannig er nú útgerðin Píratanna, draumur um eitthvað. Stjórnmálaflokkarnir íslensku eru umdeildir, en flestir hafa bát að róa á og stefnumið. Það þarf að rækta. Því miður eru leikfélagarnir í Pí- rötum ósamstæðari en flest og víst er að nýju fötin keisarans eru varla á vetur setjandi. Píratar í nýju fötum keisarans Eftir Árna Johnsen » Verðmætin á bak við Pírata sem stjórn- málaafl eru því miður engin, þeir eru góðir spjallarar, lausir og lið- ugir og hafa áhuga á tölvutengingum. Árni Johnsen Höfundur er fv. alþingismaður og gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins á Suðurlandi. Við sjálfstæð- ismenn trúum á frjálsa samkeppni, þar sem farið er eftir réttum leikreglum. Við vitum að hún eykur framboð af vöru og lækkar verð. Þeir sem standa sig best dafna en hinir síður. Við trúum líka að einkaframtakið leysi mjög mörg verkefni mun betur en ríkið og vit- um jafnframt að ríkið er ennþá að vafstra í allt of mörgu. Illa reknar stofnanir, óskilvirkir eftirlitsaðilar og skortur á skilgreiningu á um- fangi ríkisafskipta kallar á meira skattfé. Við trúum því að það fé sé betur komið í höndum ein- staklingsins. Það er sannarlega þörf á skattalækkunum, á því leik- ur enginn vafi. Lífseig mismunun kynjanna Á tímum samkeppni hefði mátt ætla að nú væri búið að hreinsa út óútskýrðan launamun kynjanna, óværuna sem er svo lífseig. Könn- un sem BHM lét gera bendir til þess að óútskýrður launamunur kynjanna sé nú 12% þar sem hallar á konur. Meðal svarenda sem störfuðu hjá ríki og hjá sveit- arfélögum öðrum en Reykjavíkurborg jókst kynbundinn launamun- ur milli kannana en minnkaði meðal svar- enda sem störfuðu hjá Reykjavíkurborg og einkafyrirtækjum. Já, þið tókuð rétt eftir, munur jókst innan stofnana sem lúta þeim sem settu m.a. jafnrétt- islögin. Þetta þýðir á mannamáli að þegar konur fara út í búð að versla fyrir launin sín þurfa þær í raun að greiða hærra verð en karl- arnir fyrir hverja einustu vöru. Það sama á við um önnur útgjöld konunnar. Ennþá þarf að berjast. Gætum við til að mynda hugsað okkur átak þar sem verslanir verð- merkja vörur í karla- og kvenna- krónum til þess að glöggt megi sjá hvað varan kostar miðað við kaup- mátt, eftir því hvort kynið á í hlut? Þannig mætti hugsa sér að mat- vöruverslun verðmerkti 1 lítra af mjólk með tvennum hætti: 142 krónur og 158 kvennakrónur. Bíla- umboð auglýsti fjögurra manna fólksbíl á 5,2 milljónir króna og 5,8 milljónir kvennakróna. Stöndum saman Eitt er víst, að orðin ein duga ekki og okkur miðar ekki nægilega hratt í jafnréttisátt. Ég get ekki hugsað mér tengdadætur eða son- ardætur mínar þurfa að versla í kvennakrónum næstu áratugina. Við konur eigum að standa saman, en karlarnir líka. Það er löngu við- urkennt að konur eru síður en svo lakari starfskraftur og oft betri. Það eru því lélegir viðskiptamenn og stjórnendur sem láta óút- skýrðan launamun viðgangast í sínu fyrirtæki eða stofnun. Kvennakrónur og karlakrónur Eftir Elínu Hirst Elín Hirst » Það eru því lélegir viðskiptamenn og stjórnendur sem láta óútskýrðan launamun viðgangast í sínu fyr- irtæki eða stofnun. Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.