Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Stjórnvöld eiga að búa öllum atvinnu- greinum skýrt og stöðugt starfsum- hverfi til langs tíma. Skattkerfið og reglu- verk atvinnulífsins á að vera einfalt og sanngjarnt og stuðla að fjárfestingum og eðlilegri samkeppni. Ráðdeild og ábyrgur rekstur í fjármálum ríkisins er megin for- senda stöðugleika. Aðeins þannig geta vextir hér á landi lækkað, heimilum og atvinnulífinu til hags- bóta. Öflugt atvinnulíf er forsenda framfara og undirstaða velferð- arkerfisins. Innviðir samfélagsins skipta atvinnulífið miklu máli og brýnt að tryggja örugga uppbyggingu þeirra um land allt. Ferðaþjónusta til framtíðar Engum dylst að ferðaþjónustan er orðin einn af mátt- arstólpum íslensks at- vinnulífs. Gjaldeyr- istekjur í ferðaþjónustu námu um 370 milljörðum króna á árinu 2015 og á árinu 2017 stefnir í að gjaldeyr- istekjur ferðaþjónustunnar verði hærri en af sjávarútvegi og stór- iðju til samans. Það er því mik- ilvægt að við verndum þá upplifun sem ferðamenn eru að sækja í. Með því á ég við að huga verði að því að sumir ferðamannastaðir eru komnir að þolmörkum og nauðsyn- legt að ráðast í viðeigandi upp- byggingu á þeim fjölförnustu. Við erum svo sannarlega komin af stað í þeirri uppbyggingu – en betur má ef duga skal. Ég tel að við verðum líka að horfast í augu við það að sumir staðir þola ekki meiri ágang. Bæði landsins vegna en ekki síst til að vernda upplif- unina sem við erum í raun að bjóða ferðamönnum upp á. Tak- mörk eru fyrir því hvað staðirnir bera og þeirri spurning þarf að velta upp hvenær uppselt er á Gullfoss, Geysi, Þingvelli, Land- mannalaugar eða aðra staði þar sem ásókn er mikil. Góður frétt- irnar eru þær að við erum svo rík af fallegri náttúru að vel er hægt að beina hluta af ferðamanna- straumnum annað. Skapandi greinar eru ört vaxandi hluti atvinnulífins Aukinn ferðamannastraumur býður upp á mikil tækifæri fyrir skapandi greinar. Hönnun, listir og menning blómstrar. Þó að lang- flestir ferðamenn komi til að njóta náttúrunnar þá eru þeir líka margir sem sækja landið heim vegna áhuga á íslenskri sögu og menningu. Tækifærin í upplifunar- iðnaðinum eru mýmörg með teng- ingu við náttúru, menningu, listir og sögu. Ef okkur auðnast að grípa þessi tækifæri er hægt að skapa aukna hagsæld og efla vel- ferð þjóðarinnar. Með því að virkja þekkingu og hugvit íslensku þjóðarinnar eru okkur allir vegir færir. Atvinnulíf – undirstaða öflugs samfélags Eftir Bryndísi Haraldsdóttur » Öflugt atvinnulíf er forsenda framfara og undirstaða velferð- arkerfisins. Ferðaþjón- usta er orðin einn af máttarstólpun íslensks atvinnulífs. Bryndís Haraldsdóttir Höfundur er formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar og frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvest- urkjördæmi sem fram fer 10. sept- ember nk. Á haustdögum 2015 var undirritaður þjóð- arsáttmáli um læsi og voru það fulltrúar allra 74 sveitarfélaga landsins ásamt mennta- og menning- armálaráðherra og fulltrúum Heimilis og skóla sem undirrituðu sáttmálann. Markmið þjóðarsáttmálans er að öll börn geti við lok grunnskóla lesið sér til gagns og er verkefnið hluti af aðgerðaáætlun sem unnin var í kjölfar Hvítbókar mennta- og menningarmálaráðherra um um- bætur í menntun. Ekki er litið á þjóðarsáttmálann sem tímabundið átak heldur er markmiðið að byggja sterkan grunn fyrir umbæt- ur í menntakerfinu þannig að nem- endur njóti góðs af. Með undirritun sáttmálans staðfesta aðilar hans sameiginlegan skilning á mikilvægi læsis til virkrar þátttöku í sam- félaginu þannig að hver og einn geti nýtt hæfileika sína samfélaginu öllu til velferðar. Læsissáttmáli Heimilis og skóla Fulltrúar Heimilis og skóla eru aðilar að þjóðarsáttmála fyrir hönd foreldra en mikilvægt er að allir taki höndum saman til að efla læsi barna í landinu. Samtökin gerðu samning við mennta- og menning- armálaráðuneyti í janúar 2016 um að útbúa Læsissáttmála fyrir for- eldra. Meginmarkmið samkomulags ráðuneytisins og Heimilis og skóla eru að:  Stuðla að aukinni lestrarfærni barna og unglinga með þátttöku og stuðningi foreldra við framkvæmd þjóðarsáttmála um læsi.  Útbúa Læsissátt- mála fyrir foreldra og kennara og innleiða hann í skóla landsins.  Auka vitund for- eldra um ábyrgð þeirra gagnvart læsi barna sinna.  Virkja foreldra í að styðja við læsi og lestrarþjálfun barna sinna.  Auka samstarf skóla og foreldra um læsisnám barna. Við undirbúning Læsissáttmála var settur saman rýnihópur fag- fólks sem kom m.a. frá Kenn- arasambandi Íslands, Mennta- vísindasviði Háskóla Íslands, menntasviði Reykjavíkurborgar, Menntamálastofnun o.fl. sem unnu að gerð sáttmálans ásamt starfs- fólki Heimilis og skóla. Einnig var hann sendur víðar til yfirlestrar og var því haft um hann víðtækt sam- ráð. Fjölbreytt efni Sáttmálanum fylgir fjölbreytt efni en auk veggspjalds, leiðbein- inga og ítarefnis er hægt að fá kynningarbækling, lestrarhefti til að kvitta í fyrir upplestur, bóka- merki og ísskápssegla. Verk- efnastjórar Heimilis og skóla eru um þessar mundir á ferð um landið í þeim tilgangi að kynna Læsissátt- málann og fræða um mikilvægi for- eldra þegar kemur að læsi og lestrarþjálfun barna. Haldnir verða hátt í 50 kynningarfundir víðs veg- ar um land á árinu og er það von okkar að sem flestir sjái sér fært að nýta þá og fræðast um lestur og læsi. Í boði eru gagnlegar upplýs- ingar, ábendingar og efni sem nýt- ist foreldrum og kennurum. Einnig er hægt að panta efnið hjá Heimili og skóla eða sækja það á heima- síðu okkar, heimiliogskoli.is, og leggja fyrir bekkjarforeldra. Við getum náð árangri saman Með innleiðingu Læsissáttmála er höfðað til samtakamáttar og samábyrgðar foreldra. Sáttmál- anum svipar til Foreldrasáttmála Heimilis og skóla sem notið hefur mikilla vinsælda. Læsissáttmálinn inniheldur sex atriði um lestur og læsi sem rædd eru á fundi bekkj- arforeldra með umsjónarkennara. Á fundinum er ítarefni dreift til foreldra þar sem farið er nánar í hvert atriði. Þegar umræður hafa farið fram og foreldrar borið sam- an bækur sínar um hvað þeim finnst mikilvægt í þessu samhengi er sáttmálinn undirritaður og hengdur upp, yfirleitt í skólastofu barnanna. Þannig eru umræðurnar rammaðar inn á táknrænan hátt og sýnilegar nemendum. Markmiðið með sáttmálanum er að hann verði notaður reglulega um land allt sem liður í að efla læsi barna á Íslandi og einnig að hann stuðli að því að styrkja samstarf heimila og skóla í landinu. Lestur er ævilöng iðja Eftir Hrefnu Sigurjónsdóttur » Gott læsi er grunnur alls náms og for- senda virkrar þátttöku í lýðræðissamfélagi. Heimili og skóli hafa nú gefið út Læsissáttmála fyrir foreldra. Hrefna Sigurjónsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra. www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind SKEMMTUN FYRIR ALLA! ER AFMÆLI FRAMUNDAN? VERÐ FRÁ 1.99 0,- STÓRAR STELPUR tískuvöruverslun Hverfisgötu 105 www.storarstelpur.is Munið bílastæði á bak við hús Við erum á facebook Fallegar haustvörur Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Innréttingar Íslensk hönnun – þýsk gæði EIRVÍK Innréttingar Eirvík innréttingar eru hannaðar af íslenskum innanhússarkitektumog sérsmíðaðar í fullkominni verksmiðju í Þýskalandi. Einingarnar koma samsettar til landsins sem sparar tíma í uppsetningu og tryggirmeiri gæði. Sérstaða okkar fellst í því að bjóða heildarlausn fyrir eldhúsið. Höfuðáhersla er lögð á persónulega þjónustu og lausnir sem falla að þörfumog lífsstíl hvers og eins. Líttu við hjá okkur og fáðu tilboð í innréttinguna og eldhústækin og tryggðu þér raunveruleg gæði á réttu verði. Hönnun og ráðgjöf á staðnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.