Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 22

Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 ✝ Soffía Björg-úlfsdóttir fæddist á Fljóts- dalshéraði 10. febr- úar 1921. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Grund 3. sept- ember 2016. Foreldrar Soffíu voru Björgúlfur Gunnlaugsson bú- fræðingur og Ólöf Guðmundsdóttir húsfreyja. Systkini Soffíu eru Guðmundur, sem er látinn, og eftirlifandi systur, Anna og Helga. Eiginmaður Soffíu var Jó- hannes Stefánsson framkvæmdastjóri. Jóhannes var fæddur árið 1913 og lést ár- á tvö börn, Atla og Rakel. Jó- hannes var kvæntur Helgu Þórðardóttur, þau skildu. Magn- ús Þór er ókvæntur og barnlaus. Soffía bjó mestallan sinn ald- ur í Neskaupstað. Hún hlaut þar sína grunnmenntun og lauk svo hússtjórnarnámi frá Hússtjórn- arskólanum að Eiðum. Fyrr á árum stýrði hún gestkvæmu heimili í tengslum við störf Jó- hannesar en á þeim árum var ekkert hótel á Norðfirði. Síðar stýrði hún um tíma Hótel Eg- ilsbúð og kenndi um árabil hannyrðir við Gagnfræðaskól- ann á Norðfirði. Soffía var mjög fróð um ættir Austfirðinga og undi sér gjarnan við saumaskap og söfnun frímerkja. Soffía hafði einstakt minni og fylgdist af brennandi áhuga með stjórn- málum, einkum á vinstri vængn- um. Þá lék hún á yngri árum með leikfélaginu á Norðfirði. Útför hennar fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 8. september 2016, klukkan 13. ið 1995. Jóhannes og Soffía eiga tvo syni. Valgarður Jó- hannesson er kvæntur Rós Nav- art (Nonný). Val- garður og Nonný eiga einn son, Pét- ur. Dóttir Péturs er Ena. Ólafur Magn- ús er kvæntur Þór- dísi Stephensen. Þeirra synir eru Guðbjartur, Jóhannes Stefán og Magnús Þór. Guðbjartur er kvæntur Hugrúnu Hörn Guð- bergsdóttur. Guðbjartur og Hugrún eiga tvo syni, Guðberg Óla og Mikael Bjart. Guðbjartur og Hugrún misstu dótturina Álf- rúnu Emmu árið 2010. Jóhannes Mig langar með nokkrum orð- um til þess að minnast Soffíu, tengdamóður minnar. Soffíu kynntist ég fyrst um jólin 1979 þegar þau hjón komu suður til þess að eyða hátíðinni með son- unum. Ég hafði þá nýlega flutt inn á Ólaf í íbúð sem Soffía og Jó- hannes áttu í Fellsmúla. Þessum jólum og áramótum eyddum við saman ásamt pabba og mömmu. Alveg síðan þá má segja að Soffía hafi átt stað í hjarta mínu. Ekki svo að segja að við hefðum alltaf verið sammála um alla hluti en alltaf gátum við talað saman og aldrei man ég eftir því að við rif- umst eða að við skildum ekki sáttar. Hún var góð tengda- mamma og amma. Hún var alltaf kát og glöð og aldrei nokkurn tímann ætlaðist hún til meira en henni var gefið. Þegar Jóhannes veiktist tókst hún á við það af þeim dugnaði sem fáum er gef- inn. Ekki eitt skipti kvartaði hún þótt oft hafi lífið verið erfitt og þungt að horfa upp á maka sinn þjást eins mikið og Jóhannes mátti gera. Soffía lifði löngu og góðu lífi og skilur eftir margar góðar minningar í mínum huga. Ég kveð Soffíu, tengdamóður mína, með söknuði en líka með miklu þakklæti fyrir allt. Þórdís G. Stephensen. „Elsku amma okkar. Við kveðjum þig nú eftir að hafa þekkt þig og umgengist allt okk- ar æviskeið, sem þó spannar ein- ungis um þriðjung af þínu. Við vitum að þú hefur lifað löngu og góðu lífi og skilur eftir þig fal- legar minningar í okkar huga sem og annarra, sem voru svo lánsamir að fá að kynnast þér. Sérstaklega minnumst við þess hversu gaman var að koma til afa og ömmu þegar við vorum krakk- ar. Þá var manni alltaf fagnað eins og stórstjörnu og dekrað við mann með vínarbrauði og snúð- um. Gleðin sem skein úr augum ömmu og afa var svo ósvikin og smitandi. Síðan var kveikt á Rík- issjónvarpinu og krakkarnir sett- ust niður og horfðu á það sem fyr- ir augu bar með konfektmola í munninum. Sem barn gat maður ekki beðið um betri stað til að koma á. Amma var kona sem stóð alltaf fast á sínu og hafði mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig heimurinn var og hvernig hann ætti að vera. Sumir myndu segja að hún hafi verið þrjósk og það má kannski færa rök fyrir því að svo hafi verið. En amma var góð, heiðarleg og kom til dyranna eins og hún var klædd. Hún var alltaf til staðar fyrir mann þegar mað- ur þurfti á henni að halda og tók manni fagnandi. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og hvíldu í friði, elsku amma. Jóhannes, Guðbjartur og Magnús. Barnshugurinn er einstaklega opinn og hrifnæmur. Við minn- umst þess hversu hugfangin við vorum þegar við lifðum okkur inn í mergjaða undraveröld Grimms- ævintýra, urðum sem bergnum- in. Gleðin og ánægjan sem af hlaust hverfur ekki úr minni þó liðin séu fjöldamörg ár. Hliðstæð gleði og hamingjutil- finning færist yfir þegar hugur- inn leitar til dýrmætra minninga um hamingjuríka ævintýraveröld að sumarlagi, en frá átta til ellefu ára aldurs dvaldi ég, Marteinn Steinar, á heimili Soffíu, móður- systur minnar, og Jóhannesar Stefánssonar, eiginmanns henn- ar, í Neskaupstað. Minningarnar eru, líkt og með lestur Grimms- ævintýra, töfrum líkastar; dorg- veiðar á bryggjum bæjarins, sundferðir, jafnvel tvisvar á dag, knattspyrna, berjaferðir í fjallið og svo má lengi telja. Jafn dýr- mætar voru samvistir okkar systkina við Ólöfu ömmu í Mið- stræti, Helgu móðursystur og Halldór, eiginmann hennar, Halla, Bubba og Sigrúnu, börn Helgu og Halldórs, Valla, son Soffíu og Jóhannesar, ættingja Jóhannesar og fjölmarga aðra. Soffía og Jóhannes bjuggu lengstum í Neskaupstað en fluttu til Reykjavíkur fyrir um það bil þrjátíu árum. Þau voru vinmörg en á heimilið komu innlendir sem erlendir gestir, enda var Jóhann- es forystumaður í atvinnumálum Norðfirðinga. Jóhannes lést árið 1995. Nærvera Soffíu frænku var ætíð samofin lífi okkar systkina. Hún mætti í fjölskylduboðin og eftir fráfall Jóhannesar, árið 1995, hittumst við á jóladag heima hjá Soffíu í Bólstaðarhlíð- inni. Þar var hangikjöt á borðum ásamt einstaklega gómsætu laufa- og flatbrauði sem Soffía hafði útbúið, en hún var sannur meistari í því sem hún tók sér fyrir hendur. Þetta voru dýrmæt- ar og góðar stundir. Soffía var sérlega lífsglöð og glæsileg kona, raungóð og rausn- arleg í öllu. Hún hafði ákveðnar skoðanir og var föst fyrir ef því var að skipta. Síðustu árin dvaldi hún á dval- ar- og hjúkrunarheimilinu Grund þar sem Anna, móðir okkar, dvel- ur. Við minnumst Soffíu með hlý- hug og þakklæti fyrir þær góðu stundir sem við áttum með henni öll okkar ár. Það er undarlegt tómarúm sem skapast þegar mikilvægt fólk í lífi okkar kveður, einstak- lingar sem hafa alla tíð verið til staðar en þannig er það með Soffíu frænku. Minningin um Soffíu verður ekki afmáð heldur varðveitt um ókomna tíð. Soffía hefur nú að lokum feng- ið kærkomna hvíld, en hún var farin að kröftum í hárri elli. Gengin er glæsileg og merk kona, hvíli hún í Guðs friði. Sonum hennar, Valgarði og Ólafi, og fjölskyldum þeirra vott- um við innilega samúð. Marteinn Steinar Jónsson og Margrét Jónsdóttir. Höfðingskona ríkrar rausnar og reisnar hefur lokið löngu og farsælu lífsstarfi og ljúfar minn- ingar vakna hjá þeim sem fengu henni að kynnast. Ég fékk notið kærra kynna við hana Soffíu margoft þó efstar séu máski minningarnar um hinar ógleym- anlegu móttökur, sem ungi fram- bjóðandinn hlaut hjá þeim hjón- um, henni og Jóhannesi, á sinni tíð. Hlý þökk til þessarar sóma- konu hefur verið mér í minni æ síðan, því ekki einungis voru veit- ingarnar einstakar heldur lýsti hjartahlýjan af henni Soffíu og hvatningarorð hennar urðu þeim óframfærna dýrmæt. Soffía var afar hugguleg kona og vel gerð í hvívetna, hún kvað fast að orði, en var samt sann- gjörn og lifði og hrærðist í hvort sem var bæjar-eða landsmálum og einkar gaman að ræða við hana um þau mál sem önnur. Jó- hannes, maður hennar, í al- fremstu röð bæjarlífsins og óhætt að segja að barátta hans og ekki síður næmleiki hans fyrir fólki hafi átt mjög stóra hlutdeild í þeim árangri sem sósíalistar í Neskaupstað náðu og héldu ára- tugum saman. Gestrisni þeirra hjóna var einstök og hlutur hús- móðurinnar þar hreint afbragð. Fáein fátækleg þakkarorð skyldu þetta vera og rétt að ljúka þessu á broti úr afmæliskveðju er ég flutti henni áttræðri: Hlýjan bjó sér heimarann, höfðingslundin jafnan prýddi, hugsjónanna birtu hlýddi, hugarþelið rétta fann. Kvennaprýði, köllun með, kærleiksríkt er hennar geð. Hún Soffía var um svo margt gæfumanneskja og reisn sinni hélt hún fram til æviloka. Fyrir kær kynni er nú þakkað á kveðju- stund um leið og sonum hennar og þeirra fólki eru sendar hlýjar samúðarkveðjur frá okkur Hönnu. Þar fór mikil öðlingskona ágætra hæfileika og blessuð sé hennar mæta minning, dýrmæt svo mörgum. Helgi Seljan. Landsþekktir forystumenn sósíalista í Neskaupstað á öldinni sem leið, þrístirnið Lúðvík, Bjarni og Jóhannes, áttu eigin- konur sem stóðu sem húsfreyjur við hlið þeirra eins og þá var tíð- arandi. Soffía Björgúlfsdóttir, fædd á verkamannsheimili á Norðfirði, gekk að eiga Jóhannes Stefánsson síðla árs 1940, en hún hafði vorið áður lokið tveggja vetra námi við Húsmæðraskól- ann á Hallormsstað. Þau höfðu fellt hugi saman áður en hún fór í skólann haustið 1938, en þá vann Soffía fyrir sér á Héraði í tvö sumur. „Við vorum sammála um að húsmæðranám væri gott og hagnýtt fyrir mig sem verðandi húsmóður. Að vísu þýddi þetta aðskilnað okkar í tvo vetur, því að ekki leyfðu samgöngur okkur að skreppa heim yfir skólatímann,“ sagði Soffía löngu síðar í endur- minningum um skólagöngu sína á Hallormsstað. Sannarlega nýttist það veganesti henni vel heima fyrir og sem handavinnukennara um skeið í Neskaupstað. Heim- ilið, sem þau hjón komu sér upp við Þiljuvelli, bar þessum bak- grunni hennar fagurt vitni. Þau hlúðu samhent að menningarlífi í kaupstaðnum. Hjá þeim var tíð- um gestkvæmt og gisting oft til reiðu af nauðsyn, áður en hótel- rekstur hófst í kaupstaðnum um miðjan sjöunda áratuginn. Þar ól- ust synirnir, Valgarður og Ólaf- ur, upp við gott atlæti. Á Jóhann- es hlóðust félags- og ábyrgðarstörf, ekki síst tengd at- vinnulífi bæjarins, auk setu í bæj- arstjórn Neskaupstaðar í röskan aldarþriðjung. Það var honum mikið lán að hafa Soffíu ætíð sér við hlið, ekki síst eftir að heilsa hans brast á níunda áratugnum, en þau hjón höfðu þá flust til Reykjavíkur þar sem Jóhannes lést á heimili þeirra í Bólstaðar- hlíð árið 1995. Soffía var mannblendin og átti létta lund sem auðveldaði henni samskipti við fjölda manns á lífs- leiðinni. Hún var mannglögg og minnug og fylgdist fram undir það síðasta með gangi mála á æskustöðvunum eystra. Við Kristín eigum frá henni mörg hlý orð í jólakveðjum og ég birti 2005 frá henni minningar um skólaárin á Hallormsstað, þar sem hún seg- ir m.a.: „Vinnudagurinn var lang- ur, frá sjö á morgnana til klukkan tíu á kvöldin. Kvöldvökurnar eru eftirminnilegar, við stúlkurnar sátum með hannyrðir við arineld og hlýddum á upplestur. Einnig vefnaðarkennslan í „baðstof- unni“, henni fylgdi líf of fjör, tíu vefstólar í notkun samtímis og mikill hávaði.“ – Þau hjón studdu ætíð við starfsemi Húsmæðra- skólans sem enn starfar þótt í breyttu formi sé, bóndinn sem fulltrúi í skólanefnd hans í 35 ár. Hlutur húsmæðrafræðslu fram- an af öldinni sem leið er oft van- metinn eftir að jafnréttisbarátta tók að bera sýnilegan ávöxt. Víst hefði Soffía valdið með sóma öðru hlutverki en varð hennar aðal- starf í lífinu, en að leiðarlokum gat hún litið stolt og ánægð um öxl. Hjörleifur Guttormsson. Soffía Björgúlfsdóttir Steinþór Bald- ursson skilur eftir sig stór spor og stór- ar minningar. Hann var einn af þeim ör- fáu mönnum sem upp á amerísku myndu kallast „larger than life“. Návist hans var næstum áþreif- anleg því hann var gæddur slíku forystueðli að við flestar aðstæður var hann sá sem allt snérist um. Steinþór var leiftrandi greind- ur og vel að sér um flesta hluti. Það sem meira er, hann hafði skoðanir á nánast öllu og yfirleitt sterkar og ástríðufullar. Það var aldrei lognmolla í kringum Stein- þór – alltaf gaman, alltaf lær- dómsríkt. Sporin hans í þessu lífi hefðu mátt verða fleiri. Hann er fallinn frá langt fyrir aldur fram. En líf hans var stórt þótt það yrði alltof stutt. Allt sem Steinþór Baldursson gerði, sagði og hugsaði var stórt. Og þannig gerði hann alla hluti skemmtilega, spennandi og af kappsemi. Það dugði aldrei neitt nema „gríðarlega vandað“. Þessi metnaður átti við allt sem hann gerði í vinnunni og ekki síður við fjölmörg áhugamál hans, eins og skákina og leitina að leyndar- dómnum á bak við hinn fullkomna hamborgara. Mörg okkar sem unnum með Steinþóri muna vel eftir því að heyra þessa æðstu viðurkenningu Steinþórs, þegar hann með mikl- um tilþrifum lýsti yfir velþóknun sinni með því að kveða upp úr um að það sem maður væri að gera eða segja væri „gríðarlega vand- að“. Komandi frá Steinþóri voru þessi orð kærkomið hrós og við- urkenning, sem hann var aldrei spar á, enda var hann afskaplega hvetjandi yfirmaður sem hafði einlægan metnað fyrir því að allir fengju tækifæri til þess að njóta sín til fulls. Og það sama sögðu allir um Steinþór sjálfan. Hann var svo sannarlega gríðarlega vandaður maður. Þetta fengum við mörg að reyna sem unnum með honum í Landsbankanum, á hápunkti út- rásar íslensku bankanna. Á með- an uppgangurinn var sem mestur var Steinþór varkárari en flestir og stillti væntingum í hóf, og þeg- ar áralöng vinna fjölda fólks við innlánareikninga Landsbankans, Icesave, sem átti að afstýra því að illa færi fyrir vinnustaðnum okk- ar, fauk út um gluggann á nokkr- um dögum – og varð í ofanálag að milliríkjadeilu og okkur öllum þungur kross að bera – þá gerði Steinþór ætíð allt sem í hans valdi stóð til þess að vernda samstarfs- fólk sitt, stappa í okkur stálinu og sjá hlutina í sínu rétta samhengi. Það var gríðarlega vandað. Fyrir tilstuðlan Steinþórs urðu fjölmargir vinnufélagar að ævi- löngum vinum og það segir sitt um þá væntumþykju og virðingu sem hann naut að vinnufélagar hans sóttust ætíð eftir félagsskap við hann og trúðu því tæpast að þessi óbilandi og ósigrandi maður væri um það bil að mæta endalok- um sínum. Steinþórs Baldurssonar verður sárt saknað, en minningin um hann mun þó alltaf verða upp- spretta gleði og innilegs þakklæt- is hjá öllum þeim sem urðu þeirr- ar gæfu aðnjótandi að kynnast honum. Megi hann hvíla í friði en minn- ingin um gríðarlega vandaðan mann lifa. Þórlindur Kjartansson. Steinþór Baldursson ✝ Steinþór Bald-ursson fæddist 8. júlí 1966. Hann lést 28. ágúst 2016. Útför Steinþórs fór fram 7. sept- ember 2016. Steinþór Baldurs- son kom eins og stormsveipur inn í íslenskt skáklíf þeg- ar sonur hans Felix byrjaði að tefla. Steinþór hafði skoð- anir á hlutunum og þar fór mikill fram- kvæmdamaður. Á hann var hlustað með athygli og inn- an skamms var hann bæði kominn í stjórn Skáksam- bands Íslands og Taflfélagsins Hellis og reyndist gríðarlega öfl- ugur stjórnarmaður. Að sjálfsögðu hafði gamli hand- boltadómarinn mikinn áhuga á skákdómgæslu og var mjög fljót- lega kominn í hlutverk skákdóm- arans. Tæknikunnátta Steinþórs nýttist einnig mjög vel og var hann einn helsti sérfræðingur landsins í beinum skákútsending- um. Steinþór var einn allra öflug- asti skákdómari landsins og hafði alþjóðleg dómararéttindi. Hann var einn skákdómara á Ólympíu- skákmótinu í Tromsö 2014 og á Evrópumóti landsliða í Laugar- dalshöllinni 2015. Steinþór var þrautseigur með afbrigðum og lét veikindin sem minnst stöðva sig. Hans síðasta skákstjóraverkefni var dómgæsla á Íslandsmótinu á Seltjarnarnesi í maí-júní síðastlið- inn. Það var gott að leita til Stein- þórs. Hann var einstaklega úr- ræðagóður og reyndist mér oft mjög vel þegar ég þurfti ráð. Þegar Steinþór er borinn til grafar eru ég og margir aðrir úr skákhreyfingunni staddir á Ól- ympíuskákmótinu í Bakú í Aserbaídsjan. Okkur þykir leitt að geta ekki verið viðstödd útför Steinþórs, en við munum þess í stað kveðja okkar góða vin með okkar hætti í Bakú. Til Bakú stefndi Steinþór á að fara en því miður gekk það ekki eftir. Hans er sárt saknað. Frasi Steinþórs: „gríðarlega vandað“, er mikið notaður í Bakú og mun lifa í skákhreyfingunni um ókomna tíð. Skákhreyfingin hefur misst einn sinn besta mann. Margir í skákhreyfingunni hafa misst frá- bæran vin. Claire, börnum Steinþórs, for- eldrum hans og öðrum aðstand- endum sendi ég einlægar samúð- arkveðjur. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands. Kveðja frá Lyfju hf. Það er með söknuði sem við kveðjum Steinþór Baldursson, stjórnarformann Lyfju hf. Stein- þór varð formaður félagsins árið 2012 og sinnti því starfi af miklum áhuga til hinstu stundar. Leiðir okkar Steinþórs lágu saman fyrst fyrir um 20 árum síðan er hann starfaði hjá verðbréfafyrirtækinu Fjárvangi og ég sinnti þar stjórn- arstörfum. Þar kynntist ég þess- um unga og atorkusama manni sem var ákveðinn og fylginn sér, fljótur að setja sig inn í málefnin og koma með lausnir. Eftir að hann kom til starfa í stjórn Lyfju hf. varð samstarf okkar nánara. Það var gott að starfa með Stein- þóri. Hann hafði ákveðnar skoð- anir á málefnum fyrirtækisins, rökræddi málin og var óhræddur að skipta um skoðun ef hann sá að gera mætti hlutina á annan veg en lagt var upp með. Það var heldur aldrei langt í glettnina hjá Stein- þóri og að sjá spaugilegu hliðarn- ar á málunum. Þegar Steinþór veiktist var aðdáunarvert að sjá að hann ætl- aði ekkert að gefa eftir. Hann sinnti störfum sínum fyrir félagið Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVANLAUGUR ELÍAS LÁRUSSON, Stykkishólmi, andaðist sunnudaginn 4. september. Útför hans fer fram frá Stykkishólmskirkju mánudaginn 12. september og hefst athöfnin klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á körfuknattleiksdeild Snæfells, kt. 600269-6079, reikningur 0309-26-994. . Sara E. Svanlaugsdóttir, Jónas Jónsson, Gunnar Svanlaugsson, Lára Guðmundsdóttir, Lárus Þ. Svanlaugsson, Helga Harðardóttir, Anna Kr. Svanlaugsdóttir, Ingvar G. Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.