Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 Opið mán - fös 8:30 - 17:00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn VINSÆLIR OG VANDAÐIR RÁÐSTEFNUSTÓLAR Á GÓÐU VERÐI Hjá okkur fæst gott úrval af húsbúnaði fyrir ráðstefnur og minni fundi. Tryggðu þér og gestum þínum gott sæti, á vönduðum og þægilegum stólum á góðu verði. DHEENSAY fastus.is Gunnar FreyrRúnarsson,starfsmaður geðdeildar Landspít- alans, stofnaði Vík- ingaklúbbinn fyrir tæpum tíu árum en markmið hans var að kynna íslenskt af- brigði af skák sem húsgagnasmiðurinn Magnús Ólafsson bjó til og nefndi vík- ingaskák. Hann lést árið 2007. Víkingaklúbb- urinn heldur nokkur mót á ári í vík- ingaskák, m.a. liða- keppni og Íslands- meistaramót, en heldur líka mót í venjulegri skák og sér um skákæfingar í Víkinni hjá Knattspyrnufélaginu Víkingi. Gunnar kennir einnig skák í Ingunnarskóla, en hann er með skák- kennararéttindi frá FIDE, Alþjóðaskáksambandinu (Fide Inst- ructor). Gunnar er auk þess með BA próf í sagnfræði og heimspeki og er einnig menntaður sjúkraliði með framhaldsnám í geðhjúkrun og félagsliði með diplómagráðu í fötlunarfræði. Víkingaklúbburinn heldur úti skákfélagi og það gerði sér lítið fyr- ir og vann Íslandsmeistaratitil skákfélaga árið 2012 og 2013. „Við erum ekki eins sterkir núna og Huginn og TR, en við náum að stríða þeim og mætum sterkir til leiks í haust.“ Gunnar var mikið í kraftlyftingum og vann nokkra Íslandsmeist- aratitla. „En það hefur dregið mikið úr þeim eftir að ég fór að sinna þessum félagsstörfum í skákinni. Svo hef ég verið í golfinu síðustu ár en árangurinn þar hefur ekki verið framar vonum.“ Gunnar hélt upp á fimmtugsafmælið á Mallorca í fyrra en ætlar að vera heima við í dag. „Ætli maður fylgist ekki með ólympíu- skákmótinu, það hefur verið gaman að fylgjast með kvennaliðinu ekki síður en karlaliðinu. Svo hafa Úkraínumenn staðið sig vel og þeir geta vel orðið ólympíumeistarar, enda kenndi ég 1. borðs manni þeirra, öðlingnum og Íslandsvininum Pavel Eljanov, víkingaskák.“ Sambýliskona Gunnars er Bunruan Phuangphila hótelstarfs- maður og börn þeirra eru Sigurður Rúnar 10 ára og Bergþóra Helga 7 ára. Formaður Víkinga- klúbbsins í skák Gunnar Freyr Rúnarsson er 51 árs í dag Með börnunum Gunnar ásamt Bergþóru Helgu og Sigurði Rúnari. A xel fæddist á Akureyri 8.9. 1976 og ólst þar upp í Þorpinu: „Fjöl- skyldan var fyrst til að flytja í Vestursíðuna en smám saman fjölgaði í hverfinu og brátt eignaðist ég fjölda leikfélaga sem margir hverjir eru enn góðir vinir mínir.“ Axel fór fimm ára í sveit að Ey- vindarstöðum í Sölvadal í Eyjafirði þar sem hann var öll sumur, páskafrí og jólafrí fram til 16 ára aldurs: „Þar bjó Guðmundur Frí- mannsson sjómaður, elsti bróðir pabba, ásamt sinni konu, Ingibjörgu Eiríksdóttur, en hún rak þar mynd- arkúabú ásamt bróður sínum Hrólfi Eiríkssyni.“ Axel var í Glerárskóla fyrstu tvo bekkina í grunnskóla en síðan í Síðuskóla og lauk þaðan grunn- skólagöngunni. Hann stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist þaðan árið 1996. Axel flutti til Danmerkur 1997 og fór þar í Niels Brock og einnig í Handelshøjskolen í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan sem markaðs- hagfræðingur og vörustjóri. Axel Grettisson, stöðvarstjóri og oddviti Hörgársveitar – 40 ára Myndarleg fjölskylda Ólöf Harpa, Tinna Margrét, Birta Karen, Kara Hildur, Axel, Jósef Orri, Lappi og Ugla. Kynntist konunni á Landsmóti hestamanna Hjónin Axel og Ólöf Harpa sem hann hitti á Landsmóti hestamanna á Hellu. Þórunn Lára Sigurðardóttir og María Rut Þórisdóttir héldu tombólu fyrir utan Nettó á Salavegi. Þær söfnuðu 2.800 kr. sem þær gáfu til Rauða krossins á Íslandi. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.