Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 27
Eftir að Axel flutti aftur heim
hefur hann verið stöðvarstjóri N1 á
Akureyri nánast öll árin og starfar
þar enn.
Axel hefur mikið sinnt sveitar-
stjórnarmálum í Hörgársveit og er
nú oddviti sveitarstjórnar. Hann sit-
ur m.a. í hafnarstjórn Norðurlands,
skólanefnd Verkmenntaskólans á
Akureyri, er formaður fræðslu-
nefndar Hörgársveitar og situr í
ýmsum öðrum nefndum og ráðum á
vegum sveitarfélagsins.
Axel æfði og keppti á skíðum er
hann var yngri og varð nokkrum
sinnum Akureyrarmeistari á skíð-
um.
„Mitt helsta áhugamál er nú samt
hestamennska. Reyndar kynntumst
við hjónin á Landsmóti hestamanna
á Hellu árið 1994, svo að ég á hesta-
mennskunni mikið að þakka.
Við hjónin eigum nokkra hesta og
auk þess kindur og erum m.a. að
rækta okkar eigin reiðhross.
Við fluttum á ættaróðal konu
minnar, að Þrastarhóli í Hörgárdal,
árið 2006 og byggðum okkur þar
hús og búum þar í dag.
Ég fer í hestaferðalög á hverju
sumri og einmitt núna í ár var ég
ásamt fleirum að skipuleggja ferð
með 16 Sunnlendinga um Norður-
og Austurland. Þetta var alveg frá-
bær ferð með frábæru fólki. Mér
finnst alltaf að svona ferðir sýni
manni landið í réttu ljósi.“
Fjölskylda
Eiginkona Axels er Ólöf Harpa
Jósefsdóttir, f. 27.9. 1974, fram-
kvæmdastjóri. Foreldrar hennar
voru Jósef Tryggvason, f. 19.8.
1934, d. 17.2. 2007, bóndi á Þrast-
arhóli, og Vilborg Pedersen, f. 29.6.
1934, d. 15.12. 2016, húsfreyja á
Þrastarhóli.
Börn Axels og Ólafar Hörpu eru
Kara Hildur Axelsdóttir, f. 4.7.
2001, framhaldsskólanemi; Birta
Karen Axelsdóttir, f. 20.11. 2003,
grunnskólanemi; Jósef Orri Ax-
elsson, f. 19.8. 2009, grunn-
skólanemi, og Tinna Margrét Axels-
dóttir, f. 6.3. 2012, leikskólanemi.
Systkini Axels eru Haukur Grett-
isson, f. 30.9. 1971, sjómaður á Ak-
ureyri, og Jenný Grettisdóttir, f.
19.12. 1988, viðskiptafræðingur á
Akureyri.
Foreldrar Axels: Grettir Örn Frí-
mannsson, f. 17.11. 1952, kjötiðn-
aðarmaður á Akureyri, og Margrét
V. Þórðardóttir, f. 9.5. 1952, d.
29.10. 2014, bókari á Akureyri.
Úr frændgarði Axels Grettissonar
Axel
Grettisson
Geirlaug Konráðsdóttir
húsfr. í Bragholti
Jón Kristjánsson
organisti og b. í Bragholti
Jenný Jónsdóttir
saumak. á Akureyri
Þórður Vilhelm Sveinsson
forstj. á Akureyri
Margrét V. Þórðardóttir
bókari á Akureyri
Sigurlaug
Vilhjámsdóttir
húsfr. á Akureyri
Sveinn Þórðarson
hótelstj. á Akureyri
Þorsteinn
Vilhjálmsson
Baldvin Þorsteinsson
útgerðarm. og athafnam.
Þorsteinn Már Baldvinsson
forstj. Samherja
Gunnar Frímannsson raf-
virki og kennari á Akureyri
Davíð Rúnar
Gunnarsson,
viðburðastjóri
á Akureyri
Guðrún Frímannsdóttir félags-
málastj. Fljótsdalshéraðs
Guðrún Magnúsdóttir
húsfr. á Syðsta-Mói
Guðmundur Jónsson
b. á Syðsta-Mói í Fljótum
Soffía Guðmundsdóttir
húsfr. og bridsmeistari á
Akureyri
Frímann Guðmundsson
(í Alaska) deildarstjóri hjá KEA
Grettir Örn Frímannsson
kjötiðnaðarm. á Akureyri
Sigmunda Katrín Jónsdóttir
ráðsk. í Lundi í Öxarfirði
Guðmundur Jónasson
b. í Gunnólfsvík í N-Múlasýslu, systursonur
Kristínar, ömmu Ásgeirs Ásgeirssonar forseta
Þorleifur
Guðmundsson
kaupsýslum. í Rvík
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstj.,
og fyrrv. leikhússtj. og alþm.
Bergur Þorleifsson
fyrrv. skrifstofustjóri
Baldvin Þór Bergsson
sjónvarpsm. í Kastljósi
Eggert Þorleifsson
leikari
Sólveig
Arnardóttir
leikkona
Þorleifur Örn
Arnarson leikari
og leikskáld
Vilhelm Þorsteinsson fyrrv.
útgerðarm og kaupsýslum.
Kristján Vilhelmsson
útgerðarstjóri Samherja
Þorsteinn Vilhelmsson
athafnam.
Hestamaðurinn Axel kominn heim
úr 16 daga hestaferð nú í sumar.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016
Jónas Svafár Einarsson, skáldog teiknari, fæddist við Suður-götuna í Reykjavík 8.9. 1925
og ólst upp í Vesturbænum. For-
eldrar hans voru Einar Þor-
steinsson, bóndi og síðar sjómaður
og verkamaður í Reykjavík, og s.k.h,
Helga Guðmundsdóttir húsfreyja.
Einar var sonur Þorsteins, smiðs
á Sæbóli á Stokkseyri, bróður Sig-
urðar, afa Sigurgeirs Sigurðssonar
biskups, föður Péturs biskups, en
Helga var dóttir Guðmundar, bónda
á Eyði Sandvík í Flóa Einarssonar,
og Sesselju Jónsdóttur, bónda í
Litlu-Sandvík, bróður Þóru, ömmu
Guðna Jónssonar prófessors. Önnur
systir Jóns var Elín, amma Ragnars
í Smára.
Jónas var í Miðbæjarskólanum,
Kvöldskóla KFUM og Héraðsskól-
anum á Laugarvatni. Hann var ung-
ur sendisveinn hjá Lárusi Ottesen á
Laugavegi 134, við verslunina Vað-
nes við Klapparstíg, var versl-
unarmaður hjá Sigurbirni Þorkels-
syni í Vísi á Laugavegi 1 og
Fjölnisvegi 2 og síðar hjá Sveini
Þorkelssyni á Sólvallagötu 9, var
sölumaður og verkstjóri hjá sölu-
nefnd setuliðseigna við Rauðavatn,
vann þrjú sumur hjá Pósti og síma
við lagningu jarðstrengs um Norð-
austurland, var á togara frá Ak-
ureyri á vetrum, starfaði hjá gatna-
málastjóra Reykjavíkurborgar,
vann í frystihúsum í Grundarfirði og
á Ísafirði og hjá Pólar-rafgeymum
við stofnun fyrirtækisins.
Jónas Svafár hefur löngum verið
nefndur hið dæmigerða íslenska at-
ómskáld – jafnvel eina atómskáldið.
Hann sendi frá sér eftirfarandi
ljóðabækur: Það blæðir úr morguns-
árinu, útg. 1952; Geislavirkt tungl,
útg. 1957; Klettabelti fjallkonunnar,
heildarútg. 1968, og Sjöstjarnan í
meyjarmerkinu 1986, ljóð og mynd-
ir. Auk þess má nefna handskrifað
ljóðakver eftir Jónas sem var gefið
út á vegum Listræningjans árið
1977.
Jónas lést 27.4. 2004.
Merkir Íslendingar
Jónas
Svafár
85 ára
Guðbjörg Gunnarsdóttir
Ottó Johan Malmberg
Þóra Eyjólfsdóttir
80 ára
Jörvar Bremnes
Sigríður Guðmundsdóttir
75 ára
Ástvaldur Guðmundsson
Gylfi Baldvinsson
Jón Óskarsson
Reynir Bárðarson
Sigurður Óli Sigurðsson
Unnar Frans Mikaelsson
70 ára
Anna S. Kristófersdóttir
Ágúst Oddur Kjartansson
Inga K. Gunnarsdóttir
Jón Markússon
Margrét Yngvadóttir
Pálfríður Benjamínsdóttir
Snjáfríður M. S. Árnadóttir
Unnur Hafsteinsdóttir
60 ára
Arndís Antonsdóttir
Ásgeir F. Valgarðsson
Bárður S. Bárðarson
Bergþóra H. Hákonardóttir
Birna Sigurðardóttir
Eyvindur Eiríksson
Guðmunda Á. Bjarnadóttir
Hafsteinn Ómar Ólafsson
Hannes Höskuldsson
Jóna Ingibjörg Óskarsdóttir
Lárus Gunnlaugsson
Stanislaw Mickiewicz
Zbigniew Chatkiewicz
Þóroddur Helgason
Þórstína B. Þorsteinsdóttir
Þuríður Björnsdóttir
50 ára
Árni Eiríksson
Árni Esra Einarsson
Ellert Jónsson
Gunnar Örvarsson
Helga Tatjana Zharov
Hildur Halldórsdóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir
Katrín Gylfadóttir
Krasimir N. Saradzhaliev
Margrét Elsa Sigurðardóttir
María Kolbrún Gísladóttir
Vladas Vilimas
Þorsteinn H. Guðbjörnsson
40 ára
Arndís H. Jóhannesdóttir
Axel Grettisson
Bjarni Jónsson
Davíð Búason
Elínborg Hrefna Pálsdóttir
Elísa Hörn Ásgeirsdóttir
Gestur K. Friðfinnsson
Grzegorz Basinski
Guðbjartur Sveinbjörnsson
Guðni Tómasson
Gunnar Örn Jónsson
Ingvar Karl Þorsteinsson
Jóhanna Guðmundsdóttir
Jónína Einarsdóttir
30 ára
Anna Sigríður Björnsdóttir
Anna Thorey Hampton
Bragi Snær Ragnarsson
Fannar Levy Benediktsson
Gígja Rós Þórarinsdóttir
Guðmundur Torfi Ólason
Guðrún S. Sigurðardóttir
Hendrik Tómasson
Hrafnhildur Magnúsdóttir
Hrefna Dís Þórsdóttir
Sigurður Hjaltested
Siguróli Jóhannsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sunneva ólst upp
á Selfossi, býr þar og er
nú heimavinnandi.
Maki: Karl Ágúst Matt-
híasson, f. 1982, verk-
fræðingur hjá DTE í
Reykjavík.
Sonur: Kristófer Darri, f.
2013.
Foreldrar: Sólrún Ás-
geirsdóttir, f. 1958, að-
stoðarmaður tannlæknis,
og Ásgrímur Þór Krist-
ófersson, f. 1956, starfs-
maður hjá Set.
Sunneva Rut
Ásgrímsdóttir
30 ára Ragnar lauk prófi í
rafvirkjun og frumgreina-
námi frá HR og er rafvirki
og tónleikahaldari.
Maki: Íris Jónsdóttir, f.
1984, starfar við bókhald
hjá Jónsson & Lemacks.
Stjúpdóttir: Snædís Sig-
rún Heiðarsdóttir, f.
2006.
Foreldrar: Hilmar Hreins-
son, f. 1959, flugumferð-
arstjóri, og Hrafnhildur
Halldórsdóttir, f. 1962,
hjúkrunarfræðingur.
Ragnar Þór
Hilmarsson
30 ára Eva býr í Ögri á
Sólheimum í Grímsnesi,
lauk prófi í ferða-
málafræði frá Háskól-
anum á Hólum og sér um
Jurtastofu á Sólheimum.
Maki: Ágúst Friðmar
Backman, f. 1984, fiskeld-
isfræðingur.
Dætur: Freydís Aría, f.
2013, og Sólrún Ylfa, f.
2015.
Foreldrar: Guðbjartur
Ólafsson, f. 1948, og Elín
Kristinsdóttir, f. 1954.
Guðbjörg Eva
Guðbjartsdóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn
19. september
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Heimili & hönnun
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 23. sept
Húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir
heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru sem prýða má
heimilin með.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is