Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016
Ekki taka óþarfa
áhættu, fáðu
fagmenn í verkið
Sérþjálfaðir starfsmenn
og búnaður fyrir
erfiðustu aðstæður
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Trjáfellingar
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Of mikið stolt hefur gengið af ást-
arsamböndum dauðum. Vinur þinn er ekki
við eina fjölina felldur og þú veist ekki hvað
þú átt að gera. Reyndu að finna tíma fyrir
gönguferð eða sundsprett.
20. apríl - 20. maí
Naut Einhvern veginn æxlast mál alltaf svo
að þú stendur ein/n eftir í því að sjá um
hlutina fyrir hópinn. Njóttu samvista við börn
og reyndu að nýta öll tækifæri sem gefast til
skemmtana.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef þú ert að pæla í hvort einhver
sakni þín er svarið já. Þú slærð tvær flugur í
einu höggi í dag og ferð létt með það.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það getur tekið á að starfa með öðr-
um. Bestu upplýsingarnar sem þú færð gætu
í fyrstu virst ómögulegar. Reyndu að leggja
einhvern pening fyrir í hverjum mánuði.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Farðu vandlega yfir öll loforð sem
vinnufélagarnir hafa gefið þér og minntu á
þau. Samstarfsfélagarnir þurfa að skilja for-
gangsröðunina hjá þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er eitt og annað sem hvetur þig
til varfærni þótt þig langi mest sjálfan til að
láta skeika að sköpuðu. Taktu gagnrýni ekki
of alvarlega.
23. sept. - 22. okt.
Vog Íhugaðu vandlega allar beiðnir sem þú
færð um aðstoð. Dragðu djúpt andann og
snúðu málunum þér í hag. Ástarsamband
þitt er í góðum farvegi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert nú full/ur orku til að tak-
ast á við það sem lífið færir þér. Hver veit
nema nýr aðdáandi bíði handan hornsins.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ekki gott að láta tilfinn-
ingarnar hlaupa með sig í gönur. Hver segir
að maður þurfi alltaf að vera að gera eitt-
hvað? Hvíldu þig og gerðu ekki neitt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki hlusta á þá sem segja að
draumar þínir geti aldrei ræst. Þú átt hauk í
horni í vinnunni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hlustaðu vandlega á það sem
aðrir segja. Reyndu að halda stillingu þinni í
stað þess að rjúka upp. Passaðu þig á að
láta fólk ekki nota þig. Æfðu þig í að segja
nei.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það hefnir sín að slá slöku við í
vinnunni og eyða þar tíma í vangaveltur um
persónuleg mál. Vinátta er þér mikils virði –
sinntu þeim góðu vinum sem þú átt.
Magnús Halldórsson yrkir áBoðnarmiði af því tilefni, að í
lögreglufréttum næturinnar í höf-
uðborginni „var eyra sagt vanta á
árásarþola“:
Sennilega sviðasnauðir fantar,
sem að valda tjóni á glasaþingum.
Þegar jafnvel annað eyrað vantar
eftir gleðinótt hjá Reykvíkingum.
Ágústa Ósk Jónsdóttir bætti við
og kann ég ekki þessa sögu lengri:
Margur eitt og annað veit
– er má telja lítils virði –
öld er síðan eyra beit
ungur prestur í Skagafirði.
Þetta rifjaði upp fyrir mér
gamla vísu sem séra Matthías orti
til kunningja síns:
Ég veit að þú átt harla góðan haus,
en hræðist samt, að skrúfan enn
sé laus,
því skap þitt er svo fjarskalega feyrað,
þú frændi þess, sem Pétur hjó af
eyrað!
Ragnar Ingi Aðalsteinsson segir
á Boðnarmiði að sér hafi dottið í
hug, að einhver hefði áhuga á
sultugerð. Embla Rún Hakadóttir
hefði sent sér uppskrift, sem hann
birtir með hefðbundnum hætti
matreiðslubóka, – en þegar betur
er að gáð má lesa uppskriftina
þannig:
Rabbarbarasulta Emblu – Upp-
skrift.
Ágæt sulta. Einstök. Rauð.
Uppskriftin er spari.
Með kvöldmat & í kökur, brauð:
Kíló rabbarbari.
600 gr af sykri. (Já!
sultan endist vikur!)
200 gr (en meira má)
mjúkur púðursykur.
Vanilludropar (velfull skeið.
Vandar keiminn pínu.
Sumir sleppa samt í neyð!)
Safi úr appelsínu.
Rabbarbarann reynist gott
að rista í litla bita.
Saman allt er sett í pott
og soðið. (Vægan hita.)
Dagbjarti Dagbjartssyni leist
vel á:
Prýðis hefur uppskrift ort
afritað með penna.
Hún er alveg sérstök sort
sultugerðarkvenna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af afhoggnu eyra og
rabbarbarasultu
Í klípu
SÍÐUSTU ORÐ HANS VORU: „ÉG HÉLT
ÞAÐ VÆRI SYLLA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERNIG VAR AFRÍKA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá hvers hann er
virði í raun.
MÁS!
MÁS!
MÁS!
MÁS!
MÁS!
MÁS!
MÁS!
MÁS!
MÁS!KETTIR ERU
VERALDARVANIR
HUNDAR,
EKKI SVO
LÚTUR HEFUR VERIÐ Í
MARGAR VIKUR Á TÓNLEIKA-
FERÐALAGINU SÍNU
ÞAÐ ER SAGT
AÐ FJARVERA
GERI HJARTAÐ
MEYRARA!
HÚN
GERIR
ÞAÐ!
ÉG MEINTI
FYRIR LÚT!
HLIÐ 7
Víkverji fylgdist með því af mikilliathygli þegar kanadíska „stór-
stirnið“ Justin Bieber kom til lands-
ins á Reykjavíkurflugvelli, en að mati
Víkverja var þar um að ræða nánast
vandræðalega uppákomu. Með töfr-
um snjallsímans gátu vinnufélagar
Víkverja nefnilega kallað upp beina
útsendingu frá vellinum, þar sem sí-
fellt var „zoomað“ inn og út á inn-
gang einkaþotunnar sem flutti popp-
goðið til landsins. Minnti
atgangurinn Víkverja nokkuð á
hurðarhúninn fræga á Höfða.
x x x
Það dró heldur ekki úr kjánahrolliVíkverja þegar myndavélin
færðist aftur með vélinni þangað sem
verið var að taka út farangur söngv-
arans. Alþjóð gat fylgst með því þeg-
ar hokkíkylfa Biebersins var borin
frá borði, ásamt skautunum að sjálf-
sögðu, enda hokkí þjóðaríþrótt hans.
Einnig voru með í farteskinu skíði og
hjólabretti. Átti Víkverji alveg eins
von á því að grafið yrði upp hvað Bie-
ber hefði fengið að snæða um borð í
vélinni, svona rétt á meðan fylgst var
með starfsfólki ISAVIA ráfa í kring-
um vélina.
x x x
Eftir langa bið birtist svo Justinsjálfur, með þykka húfu, sólgler-
augu og einn sjóðheitan latte. Það
dugði þá ekki minna en að láta
myndavélina vera í svo mikilli nær-
mynd að nánast var hægt að telja na-
sahár söngvarans. Gleðin var þó
skammvinn, því að hann steig nánast
um leið um borð í myndarlegan jeppa
með skyggðum rúðum. Í örfáar sek-
úndur höfðum við pöpullinn fengið að
vera í návist dýrðarinnar sjálfrar.
x x x
Víkverja skilst að enn sé hægt áfrekar auðveldan hátt að verða
sér úti um miða á tónleika Biebers,
en boðað var til sérstakra auka-
tónleika vegna vinsælda mannsins.
Hann veltir fyrir sér hvort að það sé
ekki eðlilegri leið til að sýna aðdáun á
verkum mannsins en það að norpa á
Reykjavíkurflugvelli í von um að
geta barið hann augum í fimm sek-
úndur? Það er allavegana líklegra að
það verði hlýtt í Kórnum.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Nú varir trú, von og kærleikur, þetta
þrennt, en þeirra er kærleikurinn
mestur (I.Kor. 13:13).