Morgunblaðið - 08.09.2016, Síða 30

Morgunblaðið - 08.09.2016, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is „Hvað get ég sagt, þetta lofar góðu,“ segir Tortelier hlæjandi þeg- ar blaðamaður spyr hvernig starfið gangi. „Þetta er annar dagurinn minn, ég á þrjú ár eftir! Annars er þetta alveg sérstakur tími árs til að heimsækja þetta einstaka land með einstöku fólki. Þegar þú spyrð svona get ég sagt þér hversu lán- samur ég hef verið í lífinu; ég hef hitt svo marga mismunandi hópa fólks sem hljómsveitarstjóri,“ segir Tortelier sem hefur unnið víða um heim. „Það eru mikil forréttindi að vinna sem hljómsveitarstjóri og vinna með öllu þessu ólíka fólki. Ekki bara á sviði tónlistar, heldur einnig hvað varðar mannlega þátt- inn. Í grunninn erum við að skapa tónlist en það er ekki hægt að gera það ef ekki næst góð mannleg teng- ing við fólkið. Og hingað til hef ég unnið með fólki sem hefur verið í takt við mig og það er mín reynsla hér, en ég byrjaði jú bara í gær,“ segir Tortelier sem er nú á Íslandi í fjórða sinn. Hef verið báðum megin „Ég kom hingað fyrst fyrir 18 ár- um. Mér fannst sinfóníuhljóm- sveitin framúrskarandi þá, en auð- vitað hefur henni farið gífurlega fram á öllum sviðum. Svo var mér boðið núna að koma og mér finnst það mjög spennandi þróun í mínu lífi, en ég er ekkert unglamb leng- ur. Ég hef átt tvö líf sem tónlist- armaður; ég eyddi 40 árum með fiðlu í höndunum. Og svo sem hljómsveitarstjóri þannig að sinfóní- an er minn heimur. Og ég hef verið þar báðum megin. Það hjálpar að hafa verið það en um leið og þú stígur í pontu er allt breytt. Það er ekki hægt að skilja það nema maður geri það sjálfur; að axla ábyrgðina, að þurfa að keyra áfram þetta hljóðfæri, af því að það er mannlegt. Maður þarf að fást við allt þetta fólk og öll hafa þau sína hæfileika en ég þarf að samstilla alla. En auð- vitað með hjálp nótnanna á blaði, við gerðum ekkert án þeirra. En þegar allt smellur saman er það stórkostlegt.“ Mjúki maðurinn Ertu harður stjórnandi? „Ég get sagt þér frá innstu hjartarótum að ég hef aldrei álitið mig harðan kall. Ég held ég sé mjög mjúkur. Og ég held að til að búa til góða tónlist þurfi maður að hafa þessa mjúku hlið. En ef maður þarf jafnframt að fá níutíu hljóðfæraleik- ara til að spila saman og ná góðum árangri verður maður að vera ákveðinn. Ekki harður, en ákveðinn. Þannig að ég er að reyna að finna rétta jafnvægið,“ segir hann. Tortelier segir Sinfóníuhljómsveit Íslands vera í hæsta gæðaflokki. „Ég vissi það fyrirfram. Og í þess- ari viku spilum við verk sem er krefjandi en ég veit hvers megnug þau eru,“ segir hann. Verkin sem spiluð eru í kvöld eru Píanókonsert nr. 3 eftir Sergej Rakhmanínov, þar sem Nikolai Lugansky leikur ein- leik, og Dafnis og Klói eftir Maurice Ravel. „Og ég er mjög stoltur að hefja vegferð mína hérlendis og koma með nýja útgáfu, nýja hug- mynd að Dafnis og Klói. Mér tekst að þétta verkið og setja það í kons- ertbúning. Bjóða Reykjavík upp á það í fyrsta sinn í sögunni. Venju- lega er verkið annað hvort spilað í heild sinni, sem að sjálfsögðu er meistaraverk en aðeins of langt, eða spilað í styttri dansútgáfu,“ segir hann. „Þessi tvö verk eru með því besta sem hefur verið skrifað á tutt- ugustu öldinni en þau eru gjörólík, í stíl og tjáningu.“ Fæddist inn í tónlist „Það er eitthvað alþjóðlegt við tónlist sem getur sameinað okkur,“ segir Tortelier sem segist ætla að flytja verk eftir ýmis tónskáld á næstu þremur árum með Sinfóní- unni. „Ég vil koma víða við og ekki bara spila verk eftir frönsk tón- skáld. Kannski tek ég franskri tón- list sem gefnum hlut, af því ég fæddist inn í hana. Mamma var sellóleikari og þegar hún var ólétt að mér árið 1947 var ég meir en ná- lægt franskri tónlist! Og það er gott og blessað, en líkt og í pólitík er al- þjóðleg hlið á tónlist og ég vil um- faðma eins mikið af henni og ég get. Ég reyni að gera mitt besta,“ segir hann og hefur í hyggju að fara með Sinfóníuna út fyrir landsteina auk þess að taka upp og gefa út tónlist með henni. Hlutverkið að veita andagift Tortelier býr í London og hyggst fljúga á milli landanna næstu árin. Að njóta fegurðar  Yan Pascal Tortelier nýr aðal- hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands  Hann mundar sprotann í fyrsta sinn í Hörpu í kvöld Ánægður Yan Pascal Tortelier er nýr aðal- hljómsveitarstjóri Sinfón- íuhljómsveitar Íslands. Hann segist ánægður að fá tækifæri til að fá að vinna með Sinfóníunni sem hann segir í heimsklassa. Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Í tilefni af því að Jón Nordal er ní- ræður á árinu þá var ekki annað hægt en að gefa þetta út. Ég dró þá líka fram þessa eldri upptöku og sló tvær flugur í einu höggi,“ segir Guðný Einarsdóttir organisti, en hún gaf út tvo geisladiska á dög- unum með orgeltónlist en þeir eru báðir teknir upp í Hallgrímskirkju í Reykjavík og flytur hún öll verkin. Annar diskurinn inniheldur öll orgelverk Jóns Nordal tónskálds og á hinum má hlýða á verkið „Myndir á sýningu“ eftir Modest Mussorgsky en það er flutt í umrit- un fyrir orgel eftir Keith John. „Mér finnst það vera hlutverk mitt sem organisti að miðla mismunandi orgeltónlist og halda íslenskri orgeltónlist á lofti,“ segir Guðný en margir þekki ekki orgelið sem hljóðfæri enda sé það mjög stað- bundið. Verkið „Myndir á sýningu“ gefi til dæmis mikla breidd og sýni orgelið frá öðrum hliðum en vana- lega. Verk Jóns eru frá árinu 1945 til 2001 og segir Guðný mikla heild vera í verkunum sem gefi góða mynd af tónskáldaferli hans. Fann elsta verkið á bókasafni Orgelverk Jóns eru fimm talsins en fyrsta verkið er sálmforleik- urinn „Kær Jesú Kristí“ frá árinu 1945 en það verk gaf Jón Páli Ís- ólfssyni, fyrrverandi dómorganista, og hefur lengi verið týnt. „Ég fann eitt af hans verkum, elsta verkið, á Landsbókasafninu í fyrra og svo er ég líka með eitt af hans síðustu verkum, sem hefur ekki áður verið gefið út,“ segir Guðný en hún hélt tónleika fyrr á árinu með öllum verkum Jóns en það verkefni hafi svo leitt hana að upptöku geisla- disksins. Á disknum er einnig verkið „Sálmforleikur um sálm sem aldrei var sunginn“ fyrir Ragnar Björns- son, fyrrverandi dómorganista, en síðasta verk Jóns, „Postludium“ frá 2001, er samið í minningu Ragnars. Þekktasta orgelverk Jóns, „Tok- kata“ frá árinu 1985, má finna á geisladisk Guðnýjar en það var samið í tilefni af vígslu nýja dóm- kirkjuorgelsins og í minningu Páls Ísólfssonar. Jón hefur sjálfur verið Guðnýju innan handar við gerð geisla- disksins og hefur hún að eigin sögn ekki gert neitt án þess að spyrja hann fyrst. „Hann hefur verið mjög sáttur með þetta, enda skemmtileg viðbót við afmælisárið.“ „Myndir á sýningu“ er einnig verk sem Guðný hefur áður spilað og tók upp árið 2010 en gerði ekki meira úr því á sínum tíma. „Ég hafði spilað þetta víða og fannst svolítið annar vinkill á þessu en verkið er upphaflega skrifað fyrir píanó og því skemmtilegt að gera þetta á orgel,“ segir hún en verkið hefur verið flutt í ýmsum útgáfum. Það hefur áður verið umritað fyrir sinfóníuhljómsveit en varð frægt í Vill halda íslenskri orgeltónlist á lofti  Guðný Einarsdóttir organisti gefur út tvo geisladiska Þó leikskáldið William Shake- speare hafi verið snjall ber hann samt ekki ábyrgð á mörgum þeirra orða og orðatiltækja sem forsvars- menn enskrar orðabókar Oxford (Oxford English Dictionary eða OED) hafa gegnum tíðina eignað honum. Þetta er niðurstaða rann- sókna Davids McInnis fræðimanns við Melbourne-háskóla í Ástralíu. Í frétt The Guardian um málið kem- ur fram að í fyrstu útgáfu OED, sem prentuð var á árunum milli 1884 og 1928, megi finna 33.000 til- vitnanir í verk Shakespeare og því haldið fram að í 1.500 tilvika sé um ný orð að ræða sem skáldið hafi fundið upp og í um 7.500 tilvika sé Shakespeare fyrstur til að nota orð og orðatiltæki með tilteknum hætti. „En OED er hlutdræg, sér- staklega á upphafsárum sínum. Starfsmenn orðabókarinnar vildu nota dæmi úr prentuðum textum og helst eftir fræga höfunda. Iðu- lega er vitnað til heildarútgáfunnar á verkum Shakespeare sem fyrstu rituðu heimildar, þrátt fyrir að orð og orðatiltæki hafi verið notuð af minna þekktum einstaklingum áð- ur,“ skrifar McInnis og nefnir fjöl- mörg dæmi máli sínu til stuðnings. Þeirra á meðal eru „it’s Greek to me“ sem þýða mætti sem „þetta er hreinasta latína fyrir mér“. Shake- speare notar orðatiltækið í leikriti sínu um Júlíus Caesar frá árinu 1599, en McInnis bendir á að rit- höfundurinn Robert Greene hafi notað orðatiltækið í verki sem prentað var á árabilinu 1590-1598. „Áhorfendur Shakespeare urðu að skilja hvað sagt var, þannig að orð- færi hans var þekkt fyrir og orð samsett úr kunnuglegum orðum.“ The Guardian hefur eftir tals- manni OED að hún sé stöðugt til endurskoðunar. „Í þeirri vinnu höf- um við komist að því að mörg þeirra orða og orðatiltækja sem eignuð hafa verið Shakespeare má finna í eldri heimildum.“ Að sögn Edwins Battistella málfræðings hefur skráningum OED á orðum og orðatiltekjum sem áður voru eignuð Shakespeare þegar verið breytt í um helmingi tilvika þar sem eldri dæmi hafi fundist. silja@mbl.is Shakespeare ekki eins frumlegur og talið var  Starfsmenn orðabókar hlutdrægir Skáld William Shakespeare. Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS Verð 1.690.000 kr. án vsk. 1.363.000 kr. Til á lager Sportman® 450 H.O.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.