Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.09.2016, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 Hann segir það lítið mál, hann sé aðeins hinum megin við hafið. Hann er vanur löngum ferðalögum og vann m.a. lengi með Sinfóníunni í Brasilíu svo eitthvað sé nefnt. Um leið og hann verður aðalstjórnandi hérlendis er hann einnig í alls kyns smærri verkefnum víða um heim. „Það er engin spurning um að fara á eftirlaun, ég mun vinna þar til ég bara get það ekki lengur. Við erum heppin í þessari stétt, maður gæti stjórnað með einum fingri nánast. Það er spurning um hversu miklu þú hefur að miðla, hvað þú hefur að bjóða. Mitt hlutverk er að stjórna, til að veita andagift,“ segir hann. Hvaða kosti og eiginleika þarf góð- ur hljómsveitarstjóri að hafa? „Til að vera hljómsveitarstjóri þarf að hafa marga ólíka eiginleika, þetta er eins og að stjórna fyr- irtæki. Fyrst og fremst tónlist- argáfu. Það er hægt að þróa hana en maður verður samt að fæðast með hana. Svo þarf að hafa djúpan skilning á tónlist, því meir því betra. En það er ekki nóg, þú þarft líka að kunna að flytja tónlistina. Reynsla, vera fær í samskiptum, allt þetta þarf að koma saman en auðvitað eru allir hljómsveit- arstjórar með mismunandi bland af þessum eiginleikum.“ Menning lífsnauðsynleg Talið leiðir okkur að menningu al- mennt. „Ef ég hugsa um framtíðina þá get ég sagt, að hvort sem það er tónlist, myndlist, ritlist, arkítektúr eða hvað sem er, við þurfum menn- ingu. Í víðasta skilningi orðsins. Við þurfum á henni að halda því þrátt fyrir það kraftaverk sem tæknin er, þá getur tæknin ekki gefið okkur það sem listin gerir. Í dag, í þessum tæknilega heimi hafa hlutirnir til- hneigingu til að verða of einsleitir. Í gamla daga voru meiri sérkenni í tónlistargerð en er í dag. Nú er allt samræmt. Heimurinn hefur minnk- að og kannski höfum við tapað ein- hverjum sérkennum í tónlist. Ef við töpum menningunni, erum við búin að vera. Og sú hætta er fyrir hendi. Mér finnst Norðurlöndin mjög dug- leg að sinna menningunni. Því án hennar sker maður á ræturnar. Án hennar verður maðurinn eins og vél.“ Harpa er algjör draumur Tortelier segist afar hrifinn af Hörpu. „Ég er að verða ástfanginn af henni. Ég er kannski ekki hlut- laus núna,“ segir hann og brosir. „Hljómburðurinn er frábær, arkí- tektúrinn, staðsetningin líka. Stór- kostlegt. Ég er næmur á umhverfi og þetta er algjör draumur,“ segir hann og bendir á útsýnið út á haf. „Þjóðin nýtur góðs af einhverju sem er í hæsta klassa og eitthvað til að vera stoltur af og njóta. Og það sýn- ir hversu mikils virði menning er hjá íslensku þjóðinni,“ segir Torte- lier. Skerpir tilfinningar „Tónlist þróar og skerpir tilfinn- ingaskalann hjá manni. Að ein- hverju leyti eykur hún á viðkvæmni og ég veit að ég er viðkvæmur á margan hátt. En á sama tíma opnar hún dyr til að deila einhverju, að eiga í samskiptum og að njóta feg- urðar saman. Og það má ekki taka sem gefnu. Það er kjarninn í lífi mínu sem tónlistarmaður, sem lista- maður og sem hljómsveitarstjóri. Tilfinningar og samskipti. Ég er í þeirri listgrein. Það er svo gefandi að vita að ég get komið með mína hæfileika og látið það gerast, að fá allar þessar tilfinningar fram, í bland við ánægju. Ég er svo hepp- inn að vera í forsvari fyrir slíku. Það er það fallega við starfið, ég er ekki að segja þér frá vandamál- unum við starfið, við tölum um það við annað tækifæri,“ segir Tortelier og hlær. r saman Morgunblaðið/Ásdís „Það er mikilvægt fyrir okkur konur að geta komist frá amstri hversdags- leikans og unnið óhindrað í tónlist á nýjum stað, úti í sveit og með öðrum tónlistarkonum og því í svipaðri orku,“ segir Harpa Fönn Sig- urjónsdóttir, verkefnastjóri tónsmiðjunnar og varaformaður KÍTON, félags kvenna í tónlist, en félagið stend- ur fyrir tón- smiðju á Hvammstanga fyrir konur í tón- list. Smiðjunni lýkur á laugardag en á föstudagskvöldið 9. september fara fram tónleikar á Sjávarborg kl. 21 þar sem afrakstur tónsmiðjunnar verður frumfluttur. Þátttakendur í ár eru með fjöl- breyttan bakgrunn en það eru þær Ásbjörg Jónsdóttir, tónskáld, píanó- leikari og söngkona, Ingibjörg Elsa Turchi, tónlistarkona með bassaleik að fyrsta hljóðfæri, Ingunn Huld djasssöngkona, Unnur Sara Eldjárn söngkona, Unnur Birna, fiðluleikari, söngkona og leikkona, og Þóra Björk sem er djasssöngkona og hefur einn- ig lært tónsmíðar, sem vinna saman í pörum að þessu sinni en þetta er í annað sinn sem smiðjan er haldin. Samstarfið opnar á dyr „Það er margt búið að ganga á,“ segir Harpa létt í bragði en kon- urnar hafa unnið í pörum undan- farna daga að tónlist en hver dagur ber með sér nýtt par. „Þetta er því rosaleg áskorun fyrir þær en þetta er skemmtilegt því þær eru allar svo ólíkar og með ólíkan bakgrunn. Það er vandasamt að samræma þetta sköpunarferli en þú ert kannski með öðruvísi smekk og stefnu en hin og því þarf mikla málamiðlun,“ bætir hún við en á móti opni samstarfið dyr sem hver og ein hefði aldrei séð fyrir. „Það hefur verið gaman að fylgjast með þeim ná því besta hver út úr annarri.“ Þá hefur kvikmyndateymið Freyja filmworks, sem saman- stendur af tveimur konum, fest tón- smiðjuna á filmu en til stendur að gera heimildarmynd um ferlið í smiðjunni og sýna starf tónlistar- kvenna. Konur í tónlist verði sýnilegri Markmið tónsmiðjunnar er að gera konur í tónlist sýnilegri til að stemma stigu við mýtum í kringum konur í greininni. „Því miður heyr- um við allt of oft ummæli á borð við, „en flott! – samdirðu þetta alveg ein?“ eða „hver hjálpaði þér að taka upp og útsetja?“ og „spilar þú sjálf á hljóðfærin?“,“ segir Harpa en tekur fram að þó ummælin séu ekki illa meint beri þau merki um ákveðið þekkingarleysi. „Við verðum því að vera sýnilegri og sýna hvernig við vinnum – með því verður skilningur og virðing fyrir starfi tónlistar- mannsins meiri,“ segir hún en áherslan eigi að vera á jákvæða um- fjöllun og varpa ljósi á að konur geti gert þetta sjálfar og það sé ekkert mál. Á tónleikunum á föstudag verða verk þeirra flutt en áhugavert verð- ur fyrir áhorfendur að skyggnast inn í hráan heim sköpunar þeirra, að sögn Hörpu. „Þetta veður eins og að kíkja á vinnustofuna hjá myndlist- armanni og fylgjast með ferlinu í stað þess að fara á sýninguna.“ Konur í tónlist semja saman í sveit  KÍTON heldur tónsmiðju fyrir konur Harpa Fönn Sigurjónsdóttir Konur í tónlist Þær Ásbjörg, Unnur Sara, Ingibjörg, Þóra, Unnur Birna og Ingunn Huld vinna saman í pörum að tónlist og textagerð á Hvammstanga. útgáfu popphljómsveitarinnar Emerson, Lake and Palmer. Upphaflega kveikjan að verkinu var myndlistarsýning sem haldin var í minningu arkítektsins og myndlistarmannsins Victor Hart- mann, sem var góður vinur höfund- arins, Mussorgsky. Hartmann dó úr hjartaáfalli aðeins 39 ára gamall og hálfu ári seinna var sýning með myndum hans þar sem Mussorgsky var á meðal gesta. Honum tekst í verkinu að draga upp ljóslifandi myndir fyrir hlustandann og telst tónlistin grípandi. Svo segir í lýs- ingu á verkinu í tilkynningu. „Það var ekki orgelið sem dró mig í þetta starf heldur meira áhuginn á kirkjustarfinu – fjöl- breytnin í tónlistarstarfinu og að vinna með fólki,“ segir Guðný sem menntaði sig upphaflega sem tón- menntakennari en lærði á orgelið samhliða því. Hún hélt svo til Dan- merkur í frekara kirkjutónlist- arnám en í dag starfar hún sem organisti og kórstjóri í Hjallakirkju í Kópavogi. Kynnir orgelið fyrir börnum Guðný hélt til Gautaborgar í gær á Norræna kirkjutónlistarmótið þar sem hún flytur tónlistar- ævintýrið Lítil saga úr orgelhúsi ásamt Bergþóri Pálssyni, sögu- manni. Guðný samdi söguna, Mich- ael Jón Clarke samdi tónlistina, Fanney Fizemore myndskreytti og Margrét Guðjónsdóttir er verkefnastjóri. „Vonandi fellur þetta vel í kramið hjá fólki en það hefur verið skemmtilegt að flytja þetta heima – við höfum aðallega verið með skólasýningar um landið og þetta hefur gengið vel,“ segir hún en sagan miðar að því að kynna orgelið fyrir börnum. „Þetta er í raun og veru skemmtileg barnasaga þar sem falinn er fróð- leikur um orgelið. Persónurnar eru pípurnar í orgelinu og þetta er tól- istarævintýri – þar sem tónlistin er hluti af sögunni,“ segir hún. Sagan varð til þegar Guðný hóf að kenna börnum á orgel og þurfti að útskýra hljóðfærið á einfaldan hátt. „Þetta víkkar sjóndeild- arhringinn hjá þeim en þegar ég kynni hljóðfærið fyrir þeim þá er það eins og þau séu að skoða geim- skip – þau eru algjörlega heilluð,“ segir hún en hingað til hafi vantað sögur þar sem orgelið sé í aðal- hlutverki. Morgunblaðið/Eggert Orgel Guðný Einarsdóttir, organisti í Hjallakirkju, vill miðla mismunandi orgeltónlist og gefur því út tvo geisladiska. Annar er með verkinu „Myndir á sýningu“ eftir Mussorgsky og hinn með öllum verkum Jóns Nordal. MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós. AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fös 9/9 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00 Lau 8/10 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00 Sun 25/9 kl. 20:00 Sun 9/10 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00 Fös 30/9 kl. 20:00 Fim 13/10 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00 Lau 1/10 kl. 20:00 Fös 14/10 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00 Sun 2/10 kl. 20:00 Lau 15/10 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00 Fim 6/10 kl. 20:00 Sun 16/10 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00 Fös 7/10 kl. 20:00 Gleðisprengjan heldur áfram! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Lau 24/9 kl. 13:00 Frums. Lau 1/10 kl. 13:00 3. sýn Lau 8/10 kl. 13:00 5. sýn Sun 25/9 kl. 13:00 2. sýn Sun 2/10 kl. 13:00 4. sýn Verðlaunasaga Andra Snæs Magnasonar Sending (Nýja sviðið) Lau 10/9 kl. 20:00 Frums Fös 16/9 kl. 20:00 3. sýn Mið 21/9 kl. 20:00 5. sýn Fim 15/9 kl. 20:00 2. sýn Lau 17/9 kl. 20:00 4. sýn Lau 24/9 kl. 20:00 6. sýn Nýtt verk eftir Bjarna Jónsson Njála (Stóra sviðið) Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.