Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 33

Morgunblaðið - 08.09.2016, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2016 » Snorri Helgason kom fram á fyrstu tónleikumtónleikaraðarinnar Blikktrommunnar þetta haustið í Kaldalóni Hörpu í gærkvöldi. Snorri lék lög af fjórðu breiðskífu sinni, Vittu til, sem nýverið kom út. Að tónleikum loknum gafst gestum kostur á að setjast niður með drykk og njóta útsýnisins yfir smábátahöfnina. Blikktromman hljómaði á fyrstu tónleikum haustsins í Kaldalóni Hörpu Á tónleikum Gísli og Katrín fylgdust með í gærkvöldi. Gaman Kristín Torfadóttir og Gísli Sveinsson létu sig ekki vanta. Spenntir Örn Eldjárn og Jón Páll Eyjólfsson voru í Hörpu. Morgunblaðið/Ófeigur Norska söng- konan Sissel Kyrkjebø hefur bætt við þriðju tónleikum sínum í desember vegna mikillar eftirspurnar. Aukatónleik- arnir verða í Eld- borg Hörpu mánudaginn 12. desember kl. 20.30. Gestasöngvari verður Ari Ólafsson sem söng „Pie Jesu“ á fyrstu tón- leikum hennar hérlendis árið 2012. Að þessu sinni syngja þau dúettinn „The Prayer“. Bætir við þriðju tón- leikunum í Eldborg Sissel Kyrkjebø Réttarhöld hófust í Vestra lands- rétti í Danmörku í vikunni yfir ljóð- skáldinu Yahya Hassan. Í mars á þessu ári var hann handtekinn og ákærður fyrir að hafa skotið 17 ára pilt í lærið í Árósum og hefur setið í gæslu- varðhaldi síðan. „Það getur vel verið að ég hafi brugðist of harkalega við og að það sé ólög- legt að hafa hlað- ið skotvopn undir höndum. Ég viðurkenni það og tek ábyrgð á því. Eftir þrjú ár með vikulegum árásum upplifði ég mig mjög óöruggan og óttaðist um líf mitt,“ sagði Hassan í vitnastúkunni, en fjallað er um réttarhöldin í öllum helstu dönsku fjölmiðlum. Eftir því sem fram kemur í um- fjöllun Politiken vildi saksóknarinn fá svör við því hvers vegna Hassan hefði valið að ganga um með hlaðið skotvopn og farið í tiltekinn bæjar- hluta Árósa þar sem hann mátti bú- ast við því að hitta fólk sem vildi honum illt. Stuttu fyrir atvikið hafði verið ráðist á Hassan með hníf, kveikt var í hurðinni að íbúð móður hans og reynt var að keyra hann niður með þeim afleiðingum að hann bæði handleggs- og viðbeins- brotnaði. Í vitnastúkunni lýsti hann því hversu hræddur hann hefði ver- ið umrædda nótt þegar hann skaut piltinn. Lýsti hann því að pilturinn hefði ásamt hópi annarra ráðist að sér með hótunum og skömmum vegna ljóðabókar hans. „Þar sem ég skrifaði um glæpasamfélagið sem ég var sjálfur hluti af. Ég sagði ekkert meðan hann reifst og skammaðist í mér,“ sagði Hassan og rifjaði upp að pilturinn hefði áð- ur ráðist á sig. Þegar byrjað hafi verið að slá til hans hafi hann reynt að forða sér. „En þar sem ég var með nokkur beinbrot hafði ég hvorki möguleika á að verja mig né hlaupa í burtu. Þá dró ég fram skotvopnið og sagði honum að hætta að slá mig því annars yrði ég að skjóta hann.“ Hassan átaldi dönsku leyniþjón- ustuna fyrir að gæta ekki betur að öryggi hans. Sjálfur afþakkaði hann öryggisgæslu í maí í fyrra þar sem honum fannst gæslan ekki hafa get- að verndað hann nóg auk þess sem friðhelgi einkalífs hans liði fyrir. Eftir að ráðist var að honum með hníf, kveikt í útihurð móður hans og keyrt á hann sá hann eftir því að hafa afþakkað öryggisgæsluna og óskaði eftir henni aftur en var þá neitað um hana. Búist er við dóms- niðurstöðu fljótlega. silja@mbl.is Yahya Hassan segist að- eins hafa verið að verja sig Ógæfusamur Yaha Hassan. Icepharm a KEMUR HEILSUNNI Í LAG EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA FÆST Í APÓTEKUM WAR DOGS 8, 10:25 NÍU LÍF 6 HELL OR HIGH WATER 5:50, 8, 10:10 SAUSAGE PARTY 10:30 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 6 JASON BOURNE 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.