Morgunblaðið - 08.09.2016, Side 36

Morgunblaðið - 08.09.2016, Side 36
FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 252. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Kári í geislameðferð 2. „Ég titra, ég skelf“ 3. Limurinn þveginn í hverri … 4. Væri til í að skulda ekki … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Nema fuglinn fljúgandi nefnist sýn- ing sem Ragnhildur Þóra Ágústs- dóttir opnar í Galleríi Gróttu í dag kl. 17. Viðfangsefni Ragnhildar á sýning- unni eru náttúrumyndir þar sem ís- lenskir fuglar eru í lykilhlutverki. Fuglar skipa ríkan sess í þjóðsögum og hjátrú Íslendinga en á sýningunni verða þessar tengingar raktar í litlu riti sem tekið hefur verið saman. Nema fuglinn fljúg- andi í Galleríi Gróttu  Þýska sveitin Ström & Wasser kemur fram á Græna hattinum á Akureyri annað kvöld kl. 21. For- sprakkinn Heinz Ratz leiðir úrval þýskra hljóðfæraleikara auk þess sem Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson syngja með sveitinni og Haukur Gröndal blæs í klarínett og saxófón. Ström & Wasser á Græna hattinum  Tónlistarkonan Gyða Valtýsdóttir kemur fram á tón- leikum í Mengi í kvöld kl. 21. Hún sendi nýverið frá sér plötuna Epi- cycle sem hefur að geyma nýjar útsetningar á tón- list eftir George Crumb, Robert Schumann, Franz Schubert, Olivier Messiaen og fleiri meistara tónlistarsögunnar. Gyða Valtýsdóttir leikur í Mengi í kvöld Á föstudag Sunnan og síðan suðaustan 5-13 m/s og rigning, en bjart með köflum norðanlands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast fyrir norð- an. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í norðaustan 8-15 m/s, fyrst um landið suðaustanvert með rigningu eða talsverðri rigningu, en 10- 18 norðvestanlands undir kvöld. Hiti 6 til 13 stig að deginum. VEÐUR Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði fyrir Belg- íu, 80:65, á „ferðalagi“ sínu í átt að Evrópumeist- aramótinu sem fram fer á næsta ári. Afar slæm skot- nýting íslenska liðsins gerði útslagið. Ísland er því í 2. sæti A-riðils þegar und- ankeppnin er hálfnuð, en liðið mætir næst Sviss ytra á laugardag. Annað sæti gæti dugað til að koma Ís- landi á EM. 3 Slæm skotnýting truflaði EM-för „Haukaliðið er ógnvekjandi fyrir hin lið deildarinnar. Það er svo sterkt,“ sagði einn viðmælandi Morgunblaðs- ins. Í dag er fjallað um þau þrjú lið sem blaðið spáir toppsætum Olís- deildar karla í vetur en það eru Hauk- ar, ÍBV og Aftureld- ing. Haukar virð- ast sigurstrang- legir í upphafi móts en ÍBV hefur fengið mjög öfluga leikmenn og Aftur- elding hefur alla burði til að vera í toppbaráttunni þrátt fyrir breyt- ingar. »4 Eru Haukarnir með ógnvekjandi sterkt lið? Breiðablik er áfram á hælum Stjörnunnar í baráttunni um Ís- landsmeistaratitil kvenna í knatt- spyrnu eftir 3:0 sigur á ÍBV á Kópavogsvelli í gær. Framundan er viðureign toppliðanna í Garða- bænum á laugardaginn og sá leik- ur getur farið langt með að skera úr um hvort þeirra verður Íslands- meistari í ár. »2 Breiðablik heldur í við Stjörnuna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Lundapysjutíminn stendur nú sem hæst í Vest- mannaeyjum. Komið er með flestar pysjurnar sem nást á Sæheima, fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja, þar sem þær eru vigtaðar, skráðar og skoðaðar áður en þeim er sleppt. Í gær var búið að koma með um 600 pysjur á Sæ- heima sem er meira en oft áður en samt mjög lítið m.v. þegar best lét. Margrét Lilja Magnúsdóttir, safnstjóri Sæ- heima, segir að þau hafi byrjað á pysjueftirlitinu árið 2003 til að fylgjast með ástandi stofnsins. Pysjurnar hafa síðan verið frá 10 og upp í 3.831 á ári en það var í fyrra sem þær komu flestar. „Pysjurnar sem hafa komið í ár eru ágætlega vel á sig komnar, feitar og pattaralegar, og ég vona að þær spjari sig þegar út á sjó er komið,“ segir Margrét. Slepptu balli fyrir pysjuveiðar Pysjurnar fljúga úr holum sínum í myrkri og í staðinn fyrir að fljúga út á haf dragast sumar þeirra að ljósunum í bænum og finna íbúar þær á milli húsa og í skúmaskotum hér á þar. Það er mikið stuð hjá krökkunum í Eyjum þegar pysjan kemur því þá fara þau á pysjuveiðar á kvöldin með vasaljós og kassa til að setja pysjurnar í. Þau koma með pysjurnar í Sæheima daginn eftir og sleppa þeim svo út á sjó. Ef pysjunum væri ekki bjargað væru þær fljótar að drepast úr hungri, verða fyrir bíl, mávum eða köttum. Mar- grét segir pysjuveiðarnar mjög skemmtilegar og það taki allir þátt í þeim, brott fluttir Eyjamenn komi jafnvel heim á þessum tíma með börnin sín til að þau upplifi það sama og þeir gerðu í æsku, þó að pysju- fjöldinn sé langt frá því sá sami. „Krakkarnir hafa nefnt að pysju- veiðarnar séu miklu skemmtilegri en pókémonveiðar,“ segir Margrét og hlær. „Þetta er mjög skemmtilegt og fullorðnir taka líka þátt, maður sér þá stökkva út úr bílum sínum víða um eyjuna til að bjarga pysjum. Þá kom hingað hópur af unglings- stelpum um daginn sem sleppti því að fara á ball til að fara á pysjuveiðar um nóttina. Unglingarnir nota síðan tækifærið á rúntinum til að bjarga pysj- um.“ »9 Pókémon keppir við pysjur  Eyjamenn bjarga pysj- um sem fljúga í bæinn Ljósmynd/Sæheimar Pysjur Auðunn Snær, Heiðmar Þór og Stefán Geir hafa verið mjög duglegir við að bjarga pysjum. Í Sæheimum búa þrír lundar sem komu þangað sem ungar. Ár hvert er komið með veikburða pysjur, horaðar eða sem hafa lent í olíu eða grút á safnið. Þurfa þær að dvelja þar um tíma til að ná sér á strik og ef það gengur hægt er ekki hægt að sleppa þeim aftur út í náttúruna. Einn þessara lunda er hann Tóti sem er fimm ára og elsti lundi safnsins. „Tóti er frægasti Eyjabúinn, frægari en Heimir Hallgrímsson,“ segir Margrét Lilja Magnúsdóttir og hlær. „Erlendir ferðamenn koma hingað og spyrja eftir honum. Tóti er okkar aðal- aðdráttarafl en það er heilmikið fjallað um hann á erlendum ferðasíðum. Tóti er líka einstakur fugl,“ segir Margrét og ef Facebook-síða Sæheima er skoðuð má sjá skemmtilegar myndir af Tóta. Margrét segir hann og hina lundana spillta af ofdekri en frystihúsin í bænum gefa loðnu ofan í þá og fá þeir aðeins bestu bitana. Tóti kom á safnið þegar hann var pínulítill dúnhnoðri. Hann er nefndur eftir fótbolta- manninum Þórarni Inga Valdimarssyni, köll- uðum Tóta, sem þá spilaði með ÍBV. „Daginn sem unginn kom á safnið var fótboltaleikur á Hásteinsvelli og skoraði Tóti eina mark leiksins og tryggði Eyjamönnum sigur. Starfsmaður á safninu var mjög spenntur yfir leiknum og nefndi hnoðrann hið snarasta Tóta. Í framhald- inu var saumuð á hann ÍBV-treyja og í öllum spenningnum yfir EM í sumar var auðvitað einnig saumuð á hann landsliðstreyja. Hann reyndar klæðist aðeins treyjunum við einstök tækifæri,“ segir Margrét. Frægari en Heimir Hallgríms ERLENDIR FERÐAMENN SPYRJA EFTIR TÓTA LUNDA Lundinn Tóti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.