Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 52
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r40 s p o r T ∙ F r É T T A b L A ð I ð
HAnDboLTI Eftirmál Ólympíuleik-
anna í Ríó hafa verið óvenjuleg fyrir
danska handboltalandsliðið. Eftir
eina stærstu stund í danskri íþrótta-
sögu, er handboltalandsliðið vann
gull í fyrsta sinn á Ólympíuleikum,
kom fljótt í ljós að ekki var allt með
felldu innan herbúða landsliðsins.
Skömmu eftir leikana bárust
tíðindi þess efnis að óeining væri
innan hópsins og að íþróttastjórinn
Ulrik Wilbek, sem áður var þjálfari
danska landsliðsins, hafi boðið leik-
mönnum upp á þann möguleika að
reka Guðmund Guðmundsson úr
starfi – og það á miðjum Ólympíu-
leikum.
Ekkert varð af því en eftir að
fréttin spurðist út dró Wilbek sig
í hlé og hætti sem íþróttastjóri
danska handknattleikssambandsins
eftir áratuga starf fyrir sambandið
og danskan handbolta. Í upphafi
vikunnar var svo tilkynnt að samn-
ingur Guðmundar við sambandið,
sem rennur út í sumar, verði ekki
endurnýjaður að ósk Guðmundar.
Tíðindin komu Andreas Kraul,
íþróttafréttamanni danska ríkis-
sjónvarpsins, ekki á óvart. Hann sá
fyrir að það hefði verið erfitt fyrir
Guðmund að halda áfram eftir allt
sem á undan gekk.
Gullið var eins og þversögn
„Þetta var allt saman mjög skrýtið
eftir Ólympíuleikana. Það kom í
ljós að það var heilmikið af vanda-
málum innanbúðar í liðinu og það
virkaði á mann næstum því eins og
þversögn að liðið hefði svo unnið
gull í Ríó,“ segir Kraul.
„Það gerði þetta allt saman
flóknara. Gummi verður þó alltaf
maðurinn sem skilaði danska hand-
boltalandsliðinu stærsta sigrinum í
sögu þess en var líka maðurinn sem
var næstum því rekinn meðan á
Ólympíuleikunum stóð,“ segir hann
enn fremur.
Kraul segir að ákvörðun Guð-
mundar um að hætta sé rétt. Það
sé einnig ákvörðun sem hafi verið
óumflýjanleg.
„Það er gott fyrir Guðmund að
hann geti tekið þessa ákvörðun
sjálfur. Hann verður alltaf maðurinn
sem færði Dönum Ólympíugull og
hann er nú líka maðurinn sem getur
hætt á eigin forsendum og sagt að
nú vilji hann snúa sér að einhverju
öðru.“
Jafnaðarmenn
í dönskum íþróttum
Þrátt fyrir velgengnina í Ríó segir
Kraul að það hafi verið byrjað að
reyna á samband Guðmundar við
leikmenn landsliðsins áður en það
kom að þeirri keppni.
„Við Danir getum stundum verið
svolítið skrýtnir,“ segir Kraul í létt-
um dúr. „Það eru líka sósíaldemó-
kratar [jafnaðarmenn] í dönskum
íþróttum eins og annars staðar í
Danmörku. Raddir allra eiga að
heyrast, öllum á að líða vel og vara-
menn eiga líka að fá að taka þátt í
leiknum. Við segjum svo ítrekað
að við séum orðnir þreyttir á þessu
viðhorfi og að við viljum fá alvöru
þjálfara, eins og þekkist til dæmis
í Þýskalandi – mann með ákveðna
sýn og sterkar skoðanir. Einhvern
sem gerir okkur að sigurvegurum.“
En þar með er sagan ekki öll
sögð, eins og kom í ljós með ráðn-
ingu Guðmundar. „Það kemur svo
í ljós að það eru margir ósáttir við
að hafa ráðið erlendan þjálfara. Og
það voru ekki allir ánægðir með
störf Guðmundar,“ sagði Kraul enn
fremur en Guðmundur er þekktur
fyrir stífan undirbúning fyrir leiki
sem einkennist af fundarhöldum
og myndbandsklippum.
„Þeir voru orðnir þreyttir á því,
sem og að hver einasti andstæðing-
ur var lofaður upp til skýjanna og
hver einasti leikur sagður erfiður.“
Vildi Wilbek ögra leikmönnum?
Kraul segir að leikmenn hafi átt
frumkvæðið að því að ræða stöðu
Guðmundar við Wilbek meðan á
Ólympíuleikunum í Ríó stóð, þrátt
fyrir að fyrstu fregnir danskra miðla
hafi verið á þann veg að það hafi
svo verið leikmennirnir sjálfir sem
komu í veg fyrir það að Guðmundur
hefði misst starfið.
„Þeir fóru til sambandsins og
sögðu að þetta væri ekki að virka.
Wilbek spurði einfaldlega á móti
hvort það væri vilji leikmannanna
að reka hann. En þeir vildu ekki
ganga svo langt. Þeir vildu hafa
meira að segja um undirbúninginn
og færa aðstoðarþjálfaranum meiri
völd. En þeir vildu ekki byltingu.“
Eins og málið birtist almenningi
í fjölmiðlum hefur virst sem svo að
Wilbek og Guðmundur hafi verið á
öndverðum meiði en Kraul segir að
málið sé ekki svo einfalt.
„Það má ekki gleyma því að það
var Wilbek sem réð Guðmund á
sínum tíma. Þetta er flóknara en svo
að það sé hægt að benda á hver sé
vondi aðilinn í þessu máli og hver
sá góði. Wilbek er maður aðgerða
og hann er líka maður sálfræðihern-
aðar. Kannski vildi hann ögra leik-
mönnum með þessu útspili, fremur
en að ganga svo langt að reka Guð-
mund.“
Eitt stórmót eftir
Eftir stendur að Guðmundur verður
áfram þjálfari danska liðsins fram á
mitt sumar og hann stýrir liðinu á
heimsmeistaramótinu í Frakklandi
í janúar. Kraul telur að þrátt fyrir
allt geti það gengið vel.
„Staðan sem var komin upp var
afar erfið fyrir Guðmund en hann
tókst afar vel á við hana, sem og
eftir málin. Danskir íþróttamenn
eru aldir upp við það að hafa
skoðun á öllum málum og það
getur verið erfitt að þjálfa svoleiðis
menn. En það eru öflugir leikmenn
í þessu liði og menn geta vel komið
sér saman um að starfa saman fram
yfir HM í Frakklandi,“ segir Kraul.
Það sér því fyrir endann á þessu
furðulega máli en lítið hefur heyrst
hvað leikmennirnir sjálfir segja um
það. „Þeir fengu að vita af þessu með
SMS-skilaboðum átta mínútum
áður en tilkynningin var send út.
Það hefur því lítið heyrst í þeim.“
Guðmundur fór vel með erfiða stöðu
Einn þekktasti íþróttafréttamaður Danmerkur telur að Guðmundur Guðmundsson hafi verið kominn í ómögulega stöðu með danska
landsliðinu og að hann hafi ekki átt annan góðan kost en að framlengja ekki samning sinn við danska handknattleikssambandið.
Guðmundur ræðir málin við þá Kasper SØndergaard, Morten Olsen og Mikkel Hansen í leik með danska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Ríó í sumar. FRéttablaðið/aFP
Vill vera vinur leikmanna
Sá sem hefur helst verið orðaður við stöðu Guðmundar Guðmundssonar
er Nikolaj Jacobsen, fyrrverandi skytta Kiel og danska landsliðsins, sem er í
dag þjálfari Þýskalandsmeistara Rhein-Neckar Löwen.
Jacobsen er einmitt maðurinn sem tók við starfi Guðmundar hjá Löwen
eftir að sá síðarnefndi réð sig í stöðu landsliðsþjálfara Danmerkur árið
2014.
„Það verður líklega hann sem tekur við landsliðinu,“
sagði Andreas Kraul, íþróttafréttamaður DR, sem segir
Jacobsen ólíkan Guðmundi að mörgu leyti.
„Hann er mjög danskur,“ segir Kraul í léttum dúr.
„Hann er afar vinalegur en vill vera harður í
horn að taka og vinna titla. En um leið vill
hann vera vinur leikmanna,“ sagði hann
enn fremur.
Jacobsen spilaði um 150 lands-
leiki með Danmörku og var áður
þjálfari Álaborgar, sem hann gerði að
dönskum meisturum árið 2013, áður
en hann hélt til Þýskalands. Alexander
Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson
spila undir hans stjórn hjá Rhein-Neckar
Löwen.
Raddir allra eiga að
heyrast, öllum á að
líða vel og varamenn eiga
líka að fá að taka þátt í
leiknum.
Andreas Kraul
íþróttafréttamaður
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@365.is
1
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
E
-0
0
7
4
1
B
3
D
-F
F
3
8
1
B
3
D
-F
D
F
C
1
B
3
D
-F
C
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K