Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Eftirleikur alþingiskosninga í Vesturlands-
kjördæmi vorið 1987 var sögulegur í meira
lagi, því þegar farið var að telja atkvæði kom
í ljós að 48 atkvæðaseðla vantaði borið saman
við skráðan fjölda þeirra sem neytt höfðu at-
kvæðisréttar. Málið þótti allt með ólíkindum.
Kjördagur var 25. apríl, laugardagur venju
samkvæmt, og þegar komið var fram á
þriðjudag sneri yfirkjörstjórn sér til sýslu-
mannsins í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og
óskaði eftir opinberri rannsókn á málinu.
Hvar voru atkvæðin? Þjóðfélagið nötraði.
Öllum steinum var velt við
Úr varð að á miðvikudegi fóru menn frá
Rannsóknarlögreglu ríkisins, sem þá var, upp
í Borgarnes og Bogi Nilsson, yfirmaður
stofnunarinnar, hóf rannsókn. Menn voru
yfirheyrðir, öllum steinum velt við og ekkert
var útilokað. Það var svo laust fyrir klukkan
21 um kvöldið sem Björn Þorbjörnsson, lög-
reglumaður, fór að leita að bókum og gögnum
viðvíkjandi kjörfundi sem geymd voru í kjör-
kössunum sem settir höfðu verið inn í fanga-
geymslu lögreglunnar.
„Þegar ég opnaði þriðja kassann og tók
bókina úr honum, blasti þetta við mér,“ sagði
Björn. „Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin
augum, en það lyftist brúnin á mönnum hér í
húsi þegar þetta fréttist,“ sagði Björn í sam-
tali við Morgunblaðið 30. apríl 1987. Gátan
var ráðin og strax um nóttina kom yfirkjör-
stjórn til fundar þar sem þessi síðustu at-
kvæði voru talin. - Skipting þeirra var á þá
lund að Alþýðuflokkurinn fékk 5 atkvæði,
Framsóknarflokkurinn 18, Sjálfstæðisflokkur
sjö, Alþýðubandalagið fjögur, þrír greiddu
Þjóðarflokknum atkvæði, 5 kusu Borgara-
flokkinn og þrír Samtök um kvennalista.
Voru þessar tölur í samræmi við heildar-
úrslitin í kjördæminu. Skipan þingsæta
breyttist ekki.
Alþýðuflokkur fékk sveitafylgi
Atkvæðaseðlarnir sem týndust voru frá
kjörfundi í Hörðudal í Dalasýslu; litlum
hreppi sem fyrir löngu er orðinn hluti af
stærra sveitarfélagi; Dalabyggð. Þetta er
rótgróið sveitahérað og kannski var eftir bók-
inni að um helmingur kjósenda þarna studdi
Framsókn og Sjálfstæðisflokk. Fylgisspekt
Dalamanna við Friðjón Þórðarson, þingmann
Sjálfstæðisflokksins, var líka traust.
„Hvort ég man eftir þessu. Þetta var stór-
mál og auðvitað var ekki hægt að gefa út
lokatölur fyrir landið fyrr en skýringar á
Vesturlandi væru fundnar. Ýmsar kenningar
höfðu þá áður komið fram, en sumum þótti
þetta eiginlega óskiljanlegt,“ segir Eiður S.
Guðnason sem á þessum tíma var þingmaður
Alþýðuflokksins á Vesturlandi. Og hann held-
ur áfram:
„Fulltrúi okkar Alþýðuflokksmanna í yf-
irkjörstjórn var Sveinn Kr. Guðmundsson á
Akranesi. Hann var ákaflega nákvæmur og
samviskusamur í öllu sem hann gerði, og
mikið var honum létt, og sjálfsagt öllum í
kjörstjórninni, þegar skýring fannst á málinu.
En mörgum fannst merkilegt að Alþýðuflokk-
urinn skyldi fá fimm atkvæði í þessum fá-
menna hreppi. Í sveitunum voru menn
kannski ekki mikið að flíka stuðningi sínum
við Alþýðuflokkinn, en hann leyndist þó
víða.“
Atkvæðin týndust í fangelsi
Dularfullur eftirmáli kosninga á Vesturlandi 1987 Lögreglurannsókn og þjóðfélagið nötraði
Alþingi „Hvort ég man eftir þessu,“ segir Eiður Guðnason um eftirmál kosninganna 1983. Hér
er hann í ræðustól Alþingis. Fremst er Stefán Jónsson sem var þingmaður Alþýðubandalagsins.
Leyndardómurinn Björn Þorbjörnsson lög-
reglumaður í Borgarnesi í fangageymslunni
þar sem atkvæðin fundust eftir mikla leit.
Golfsettið ferðast frítt!
+ Skráðu þig í Icelandair Golfers á www.icelandairgolfers.is
Aðild að Icelandair Golfers er innifalin fyrir korthafa
Premium Icelandair American Express®
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
66
19
3
10
/1
3