Morgunblaðið - 12.11.2016, Qupperneq 16
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Mér finnst þetta glæsilegt dæmi um það
hvernig menn mættu erfiðleikum í atvinnu-
rekstri. Þegar brestur varð í markaði sauða-
sölunnar undir lok nítjándu aldar duttu bænd-
ur ofan á þá lausn að reyna sölu á smjöri til
útlanda,“ segir Bjarni Guðmundsson, fyrrver-
andi prófessor við Landbúnaðarháskóla Ís-
lands á Hvanneyri og verkefnisstjóri Land-
búnaðarsafns Íslands. Hann hefur sent frá sér
bók um sögu Mjólkurskólans á Hvanneyri og
Hvítárvöllum.
Skoðun Bjarna á þessari sögu leiðir ým-
islegt fleira athyglisvert í ljós. Hann nefnir að í
þessu tilviki hafi verið ákveðið að fjárfesta í
þekkingu áður en farið var að byggja upp
framleiðsluna. Það er ekki algengt í sögunni.
Meðferð mjólkur breyttist
Mjólkurskólinn hóf starfsemi haustið 1900.
Var fenginn maður frá Danmörku, Hans Grön-
feldt Jepsen, til að koma honum á fót og stýra.
Skólinn var síðan fluttur til Hvítárvalla, eftir
að hús hans brann á Hvanneyri. Þar starfaði
hann í tengslum við rjómabú bænda í Andakíl
og nærsveitum fram um 1920 þegar starfsemin
fjaraði út vegna þess að ekki var lengur eft-
irspurn eftir náminu. „Margt breyttist í fyrra
stríði. Markaðurinn brast og erfiðara varð að
fá vinnuafl til sveitastarfa.“
- En hver voru áhrif starfsins í Mjólkurskól-
anum?
„Teknir voru upp nýir hættir við meðferð og
vinnslu mjólkur sem smituðust út í sveitirnar
með breyttum verkháttum þótt nemendurnir
yrðu ekki nema um 200 í heildina. Mjólk-
urskólinn breytti einnig stöðu kvenna. Var ein
af fyrstu starfsmenntabrautum sem konur
áttu kost á. Margar þeirra tóku við forystu
rjómabúa og það opnaði þeim leið til meiri
ábyrgðarstarfa,“ segir Bjarni, en titill bók-
arinnar vísar til þessa, „Konur breyttu búhátt-
um“.
Bjarni bætir því við að þótt ekki hafi verið
lengur þörf fyrir þessa kennslu hafi kunnáttan
verið áfram til staðar og hægt að grípa til
hennar þegar mjólkuriðnaðurinn hófst til þess
vegs sem hann er á í dag.
Þegar rætt er um áhrif starfsins í Mjólk-
urskólanum nefnir Bjarni einnig að í stað
sjálfsþurftarbúskaparins hafi bændur þurft að
vinna saman við stofnun og rekstur rjómabúa.
Stofna félög, reka fyrirtæki, selja afurðir, deila
hagnaði eða tapi og svo framvegis. Það sé ein
af rótum samvinnufélagsskapar við afurðasölu.
Smjörframleiðslan í rjómabúunum varð síð-
an til þess að bændur fengu tekjur til að taka á
móti tæknibreytingum, svo sem með kaupum á
vélum eða byggingu húsa.
Bjarni hefur gefið út bækur um tæknivæð-
ingu landbúnaðarins, meðal annars vinsælar
bækur um dráttarvélar. Ástæðan fyrir því að
saga mjólkurskólans varð viðfangsefni hans í
mörg ár er persónuleg.
Amma hans sótti skólann
„Það var vegna ömmu minnar [Guðmundu
Maríu Guðmundsdóttur frá Kirkjubóli í Dýra-
firði] sem var í þessum skóla. Frá henni varð-
veittust forvitnileg gögn. Þegar ég fór að
skoða þau varð mér ljóst að Mjólkurskólinn
var miklu merkilegri stofnun en ég hafði gert
mér grein fyrir. Annars eru sögulegar heim-
ildir um skólann fátæklegar, ef til vill að ein-
hverju leyti vegna þess að fólki hefur ekki þótt
hann merkilegur. Kannski er það óbeinn mæli-
kvarði á stöðu kvenna á þessum tíma,“ segir
Bjarni.
Þrátt fyrri þennan útúrdúr hefur Bjarni enn
mikinn áhuga á heyskap. Hann er nú að draga
saman gögn í yfirlit um breytingar á heyskap á
20. öld og vonast til að geta miðlað því efni á
næstu árum.
Þekkingin smitaðist út í sveitirnar
Saga Mjólkurskólans á Hvanneyri og Hvítárvöllum komin út á bók Var meðal fyrstu starfs-
menntabrauta sem stóð konum til boða Fjárfest í þekkingu áður en farið var í framleiðslu
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu
Unnið er að því þessa dagana að
brjóta niður hluta af landgangi Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar á Kefla-
víkurflugvelli, það er tenginguna frá
aðalhúsi að svonefndri suðurbygg-
ingu þar sem er vegabréfaeftirlit á
mörkum Schengen-svæðisins svo-
nefnda.
Segja má að sífellt standi yfir ein-
hverjar breytingar í Leifsstöð vegna
sífellt meiri flugumferðar og fleiri
farþega þar. Þannig hefur í suður-
endanum nú verið reist stór stál-
grind sem klætt verður yfir og þar
með skapast meira pláss fyrir landa-
mæraafgreiðslu, sem mikil þörf hef-
ur verið á. Vegna þessa þarf að
brjóta niður hluti landgangsins
gamla, en það mannvirki er frá upp-
hafsdögum flugstöðvarinnar sem
tekin var í notkun snemma árinu
1987. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdir Hluti gamla landgangsins er rifinn og er það hluti af breyt-
ingum og stækkun flugstöðvarinnar vegna meiri umferðar þar í gegn.
Rýmra um Scheng-
en-afgreiðsluna
Landgangur við Leifsstöð rifinn
Bókin „Konur breyttu búháttum“ er í litlu
broti en óhætt er að segja að þar sé mikil
saga á lítilli bók. Það er ekki tilviljun, að
sögn Bjarna Guðmundssonar. Bókaútgáfan
Opna mótaði formið.
Brotið er það sama og var á „Leiðarvísi
um meðferð mjólkur“ sem Grönfeldt gaf
út og fleiri kennslubókum sem notaðar
voru í Mjólkurskólanum, og á leiðarvísi
Ólafs Olaviusar um smjör- og ostagerð,
sem kom út árið 1780. Með formi bók-
arinnar er verið að heiðra þá sem komu
skólanum upp og enn frekar konunum
sem sóttu námið.
Mikil saga á lítilli bók
SAMA BROT OG KENNSLUBÆKURNAR
Sagan Bjarni Guðmundsson, fv. prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Rjómabú Kristjana Jónatansdóttir var lengi
rjómabústýra á Hvanneyri. Hér er hún við vél-
knúna skilvindu búsins þar.
Ljósmynd/Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar