Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 34

Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 ✝ Þuríður Gísla-dóttir fæddist á Gljúfurá í Arnarfirði 6. júlí 1925. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Skjóli í Reykja- vík 30. október 2016. Foreldrar hennar voru Gísli Vignir Vagnsson, f. 3. ágúst 1901 í Fjarðarhorni, Gufudalshr., Austur- Barð., d. 4. október 1980, bóndi á Mýrum í Dýrafirði, og kona hans Guðrún Sigríður Jónsdóttir, f. 17. maí 1895 í Sauð- eyjum á Breiðafirði, d. 7. október 1975. Systkini Þuríðar: Einar Andr- és, f. 1924, d. 2015, Sigurbjörg Árndís, f. 1927, d. 1965, Una, f. 1928, Álfheiður, f. 1929, Jón Hösk- uldur, f. 1932, Valdimar Haukur, f. 1934, Bergsveinn Jóhann, f. 1938, Davíð, f. 1941. Uppeld- isbróðir og frændi: Pétur Kristinn Þórarinsson, f. 1922, d. 1999. Barnsfaðir: Ágúst Steindórs- son, f. 6. september 1925 í Ási, Hrunamannahr., d. 29. nóvember 2006. Foreldrar hans: Steindór Ei- ríksson, bóndi í Ási, og kona hans Guðrún Stefánsdóttir. Sonur Þur- íðar og Ágústs er Sigurleifur, f. 11. ágúst 1954 á Mýrum í Dýra- firði, stýrimaður, nú lagerstjóri Olíudreifingar. Eiginkona 9. júlí sig til heimilisstarfa hjá móð- urbróður sínum í Reykjavík. Það- an lá leiðin í Hafnarfjörð til Unu föðursystur Þuríðar og Davíðs manns hennar. Úr Hafnarfirði lá svo leiðin austur á Hvolsvöll. Þar starfaði Þuríður um skeið hjá sýslumannshjónunum Birni og Margréti. Skólaárið 1945-6 stundaði hún nám við Hús- mæðraskólann á Ísafirði. Um nokkurt skeið starfaði hún við mötuneyti Héraðsskólans á Núpi og einnig oft á heimili foreldra sinna. Haustið 1954 réð hún sig sem ráðskonu við Holtsskóla í Önundarfirði. Þar var Guðmund- ur Ingi skólastjóri. Þuríður hóf snemma að kenna handavinnu við skólann auk þess að sjá um mötuneytið. Eftir að Þuríður og Guðmundur Ingi giftu sig, 2. september 1962, bjuggu þau á Kirkjubóli á sumrin en á veturna í Holtsskóla. Árið 1974 lét Guð- mundur Ingi af skólastjórn í Holti og fluttist þá ásamt Þuríði og Sigurleifi alfarið að Kirkju- bóli. Þar bjuggu þau uns Guð- mundur lést árið 2002. Þuríður flutti eftir það til Reykjavíkur. Hún bjó á Hofteigi 42 til ársins 2011 að hún flutti á Hjúkrunar- heimilið Skjól við Kleppsveg í Reykjavík. Minningarathöfn fór fram frá Laugarneskirkju mánudaginn 7. nóvember. Jarðsett verður í dag, 12. nóv- ember 2016, klukkan 14 í Holti í Önundarfirði. 1988 Þórhildur Sverrisdóttir, f. 14. október 1961 í Reykjavík, starfar við grafíska miðlun. Foreldrar hennar eru Sverrir Jónsson flugstjóri, f. 1924, d. 1966, og kona hans Sólveig Þorsteins- dóttir, f. 1931. Börn Sigurleifs og Þór- hildar eru: 1) Guð- mundur Ingi, f. 30. nóvember 1988, MSc í iðnaðarverkfræði og stjórnun, starfar hjá Marel. 2) Benedikt, f. 18. ágúst 1992, hug- búnaðarverkfræðingur og starf- ar hjá Controlant. Eiginmaður Þuríðar var Guð- mundur Ingi Kristjánsson, f. 15. janúar 1907 á Kirkjubóli í Bjarn- ardal, Önundarfirði, skáld og bóndi þar, einnig skólastjóri í Holti, Önf. Foreldrar hans: Krist- ján G. Guðmundsson, bóndi á Kirkjubóli, og kona hans Bessabe Halldórsdóttir. Hún flutti frá Gljúfurá að Mýr- um árið 1936 ásamt foreldrum sínum, systkinum, afa og ömmu: Vagni Guðmundssyni og Þuríði Gísladóttur. Þuríður veiktist af berklum níu ára gömul en fékk bót meina sinna á Sjúkraskýlinu á Þingeyri. Fyrir tvítugt hleypti Þuríður heimdraganum og réð Þann 30. október lést móðir mín, Þuríður Gísladóttir. Í mínum augum var hún hæglát kona sem tranaði sér ekki mikið fram en gat staðið fast á sínu ef þurfti. Hún reyndist mér góð móð- ir og var alltaf tilbúin að styðja mig í einu og öllu. Mamma var glað- sinna og þótti alltaf gaman að taka þátt í mannfagnaði. Ung að árum fór mamma til Reykjavíkur og Hafnarfjarðar til heimilisstarfa hjá frændfólki sínu. Alltaf þegar við ókum um Miklubraut í Reykjavík og meðfram tjörninni í Hafnarfirði minntist hún á fólkið með hlýhug sem hún bjó hjá tímabundið. Stóru umskiptin í lífi hennar voru þegar hún gerðist ráðskona í skólanum í Holti og dró sig smátt og smátt saman við Guðmund Inga, síðar stjúpföður minn. Henni líkaði alltaf vel starfið í skólanum. Kenndi þar handavinnu og fór suður á sumrin til að bæta við sig þekkingu á því sviði. Þar má telja hekl og prjón, saga út krossvið og gera úr honum ýmsa hluti, svo var bastvinna, tágavinna, leðurvinna og ýmislegt fleira. Á sumrin á Kirkjubóli undi hún líka hag sínum mjög vel. Henni var vel fagnað af öllum á bænum sem voru tvö heimili og var hún strax óskoraður foringi í eldhúsinu. Fyr- ir var Jóhanna Kristjánsdóttir, systir Guðmundar Inga, stjúpföð- ur míns, sem hafði séð um heimilið fram að þessum tíma og hún tók jafn vel á móti mömmu sem og aðrir og myndaðist fljótt mjög gott samband á milli þeirra og minnist ég þess aldrei að þeim hafi orðið sundurorða. Mikil og góð sam- vinna var með þeim alla tíð. Þar sem Ingi stjúpfaðir minn var skólastjóri og auk þess ritari í Búnaðarsambandi Íslands, þá átti hún þess kost að fara í ferðalög með honum á skólastjóramót og búnaðarsambandsþing á hverju sumri. Þessi ferðalög veittu henni mikla gleði. Árið 1974 hætti hún störfum ásamt manni sínum í Holtsskóla og fluttist alfarið að Kirkjubóli. Svo kom að því að Ingi fluttist á hjúkrunarheimilið á Flateyri og þá bjó mamma ásamt Hönnu á Kirkjubóli og þá kom sér vel fyrir þær að eiga góða nágranna í Tröð. Mamma fór reglulega á Flat- eyri í handavinnu með Ástu og Magga í Tröð og til að heimsækja sinn mann. Árið 2002 urðu mikil kaflaskipti í lífi mömmu er Ingi féll frá og hún fluttist suður til Reykjavíkur og Hanna fluttist á Patreksfjörð. Hún fluttist í íbúð á Hofteigi 42 og var fljót að ná áttum. Hún sótti strax handavinnutíma á Dalbraut- inni og aðrar samkomur eins og spilamennsku og lét sér ekki leið- ast. Eins átti hún greiða leið til okkar þar sem við bjuggum svo gott sem í næsta húsi og einnig var hún dugleg að heimsækja aðra ættingja fyrir sunnan. Því miður fór svo minnisleysi að hrjá hana og smátt og smátt fór hún að hætta að rata og ruglast í ríminu. Fljótlega upp úr því fluttist hún á Skjól dvalarheimili þar sem hún fékk góða umönnun og líkaði vel. Hún tók alltaf vel á móti manni með brosi á vör og talaði mikið um hversu heppin hún var að hafa eignast mig. Blessuð sé minning móður minnar. Sigurleifur Ágústsson. Í dag er borin til grafar Þuríður Gísladóttir, systir og vinkona. Hún sleit barnsskónum á Gljúfurá í Arnarfirði, býlinu sem Jón Sig- urðsson forseti eignaðist til að verða kjörgengur. Útsýni af bæj- arhlaðinu á Gljúfurá er vítt og fag- urt og geymist vel í minni þeirra er þarna ólust upp. Gljúfurá er smábýli, það varð því þröngt í búi hjá foreldrum okkar þegar barna- hópurinn stækkaði. Við vorum orðin sjö auk fósturbróður og afa og ömmu, 12 manns í heimili. Fyr- ir aðstoð góðra manna tókst föður okkar að fá ábúð á Mýrum í Dýra- firði 1936 og síðan að kaupa þá jörð 1937. Þura, eins og við kölluðum hana jafnan, varð 11 ára árið sem við fluttum að Mýrum. Hún hafði fengið berkla en sigrast á þeim og var langt komin með að jafna sig eftir glímuna við þá þegar hún flutti að Mýrum. Bjó hún jafnan við góða heilsu eftir þetta, þurfti þó að fara í aðgerð á hnjáliðum á fullorðinsárum. Þura var elst fjögurra systra og næstelst níu systkina. Það kom því í hennar hlut að aðstoða móður sína við uppeldi yngri systkina. Komu þá fljótt í ljós skapgerðar- eiginleikar sem entust henni til æviloka, glaðværð og hlýtt viðmót. Þessa nutum við systkini hennar í ríkum mæli og ég hygg að svo hafi verið um allt hennar samferða- fólk. Þura vann víða við heimilisstörf en var jafnan heima á Mýrum þess á milli. Það var mikil gæfa fyrir hana að eignast soninn Sig- urleif. Hann varð strax mikill gleðigjafi alls heimilisfólks á Mýr- um. Það má segja að undirritaður hafi verið heimagangur á Kirkju- bóli hjá Þuru og Guðmundi Inga eiginmanni hennar meðan við Guðmundur störfuðum saman í stjórn Búnaðarsambands Vest- fjarða. Þá voru stjórnarfundir iðu- lega haldnir á Kirkjubóli og þá kom það í hlut Þuru að sjá fund- armönnum fyrir mat og kaffi. Gestrisnin var mikil og gestakom- ur tíðar. Þura var mikil hannyrða- kona, gagnaðist vel námið í Hús- mæðraskólanum á Ísafirði. Hún prjónaði, heklaði, saumaði púða og veggteppi og var vandvirk við allt sem hún tók sér fyrir hendur. Margir eiga ýmiss konar prjónles og púða úr hennar smiðju. Eftir að Þura komst nokkuð á níræðisaldurinn fór að bera á minnisleysi hjá henni. Varð þá að ráði að hún flyttist á Hjúkrunar- heimilið Skjól. Þar naut hún ágætrar aðhlynningar sem ber að þakka fyrir. Þá naut hún jafnan umhyggju Sigurleifs sonar síns og hans fjölskyldu. Við sem búum á Mýrum heim- sóttum jafnan Þuru þegar við komum til Reykjavíkur. Það var gott að koma til hennar. Hún tók á móti gestum með gleði, þakklæti og hlýju. Hún lýsti jafnan yfir ánægju með dvölina á Skjóli og þann lúxus að þurfa hvorki að elda eða þvo upp. Skammtímaminni hennar var farið en enn leyndust í hugskotum hennar minningar frá bernskustöðvunum, einkum Gljúfurá. Hún mundi útsýnið af bæjarhellunni þar og kannski hef- ur hinn máttugi hljómur frá foss- inum Dynjanda fylgt þeirri mynd. En í góðviðrum má greina óm frá fossinum út að Gljúfurá. Að leiðarlokum þökkum við Þuru samfylgdina. Sigurleifi og fjölskyldu vottum við innilega samúð. Valdimar H. Gíslason og fjölskylda, Mýrum. Þura á Kirkjubóli er látin á 92. aldursári. Hún var ekkja Guð- mundar Inga Kristjánssonar skálds. Sjö ára gamall fór ég í sveit að Kirkjubóli í Bjarnardal í Önund- arfirði. Var þar í sex sumur 1959- 64. Eitt mesta happ sem ég hef orðið fyrir í lífinu. Ég var hjá Guðmundi Inga, afa- bróður mínum, sem hélt heimili með móður sinni, Bessu (fullu nafni Bessabe), systur sinni Jó- hönnu og Kolfinnu, dóttur Hönnu. Halldór afabróðir minn hélt annað heimili í húsinu ásamt Rebekku konu sinni og börnunum Ósk, Siggu og Bjössa. Fjöldi sumar- barna tók virkan þátt í félagsbú- skapnum á Kirkjubóli. Sumarið 1962 kom ég frá því að reka kýrnar og sá að dúkað borð var í stofunni. Hvað var á seyði? Upplýst var að Ingi og Þura væru að gifta sig niðri í Holti. Smásveini brá. Hann hafði nefnilega fengið að sofa í herbergi skáldsins þetta sumar. Margt var þar gáfulegt spjallað. Nú yrði þeirri skemmtan lokið. Sem og varð. Þura hafði verið ráðskona í Barnaskólanum í Holti um árabil, en Ingi var þar skólastjóri. Sam- dráttur þeirra hafði lengi verið kunnur. En nú flutti hún að Kirkjubóli með syni sínum, Sigur- leifi. Þetta reyndist ekki bara Inga sérstakur happafengur – heldur heimilismönnum öllum. Þura var einstakt ljúfmenni, brosti við öll- um – ekki síst börnum. Og svo var hún snillingur í eldhúsinu, enda verið á Húsmæðraskólanum Ósk á Ísafirði. Maturinn á Kirkjubóli áður en hún kom hafði að vísu ver- ið góður – og afar þjóðlegur: hafragrautur með eldsúru slátri, fiskur með mörfloti, harðfiskur með floti, feitt sauðakjöt, áfasúpa, blóðpönnukökur, gamalhænsna- kjöt. En nú jókst fjölbreytnin svo um munaði: alls konar réttir úr samtímanum, danska eldhúsið, heimabökuð vínarbrauð, margar sortir af kökum. Ungum munnum þótti þetta ekki vond viðbót. Ingi var 18 árum eldri en Þura. Í minningarathöfn um Þuru sunn- an heiða (fyrir útför í Holti) flutti síra Davíð Þór Jónsson einkar fal- lega líkræðu í Laugarneskirkju – og las þetta ástarljóð Inga til konu sinnar frá 1975: Vorið kom hlæjandi hlaupandi niður hlíðina vestan megin. Engri sjón hef ég orðið jafn bundinn og allshugar feginn. Ég tók það í fang og festi mér það sem fegurst og best ég þekki. Mánuður leið, mannsaldur leið, og ég missti það ekki. Varðveist hefur afmælisdaga- vísnabók, handskrifuð af lista- skrifaranum Inga; vísurnar orti hann 1923-32 (en systkini hans fengu að yrkja sjálf við sína af- mælisdaga!) Þura saumaði síðar út fagra bókarkápu utan um grip- inn. Ingastofa í Holti gaf þetta listaverk út á prenti fyrir fáeinum árum. Einstakur gripur. Við af- mælisdag Þuru í bókinni er þessi fallega vísa – kannski fyrirboði? Ég vildi hingað heilla þig um hálfa stund að finna mig, að syngja hjá mér sönginn þinn og sjá og skilja dalinn minn. Þrjár systur mínar, Sigrún Ágústa, Elín Soffía og Kristín Bessa, voru líka í sveit á Kirkju- bóli og fengu að kynnast Þuru og öðru góðu fólki sem bjó á því mikla menningarheimili. Við systkinin þökkum Þuru samfylgdina. Ætt- ingjum vottum við samúð. Ólafur Þ. Harðarson. Brosandi skaltu ganga þinn veraldar- veg ef von þín er traust og ætlunin fram- bærileg. Ekki skaltu með andvörpum ryðja þér leið. Ánægja þín á að vígja þitt baráttuskeið. Daglætin renni sem dáðir í göngunnar sjóð, Dagmálagleðin skal semja þitt kvöld- vökuljóð. Það er líkt og Ingi hafi verið í þessu ljóði að semja um þann leiðarvísi sem Þura hafði til að ganga æviveginn. Um það geta samferðamenn hennar vottað. Það var gott að vera um stund samferða Þuru þegar við bjuggum á Kirkjubóli. Við fjölskyldan nut- um mannkosta hennar og var notalegt að „skreppa yfir“ til að eiga stund með henni. Hún var hæglát kona en geislandi, æðru- laus og natin við menn og muni. Oft sá ég eftir krökkunum mínum litlum yfir, með sængina sína í eft- irdragi til að njóta hafragrautar- ins og notalegs skvaldurs við mat- arborðið, kannski var klastrað í sokk sem táin hefði brotist í gegn- um eða nýir vettlingar þegnir af prjónum Þuru, 66 ° norður máttu sín lítils í samburðinum, þetta var ekta. Ég valdi á yngstu dóttur mína nafnið hennar í þeirri vissu að fjórðungi bregði til nafns, það var líka af virðingu og þökk fyrir aðkomu hennar og nærveru í upp- eldi barna minna. Þau búa að því og minnast hennar með mikilli hlýju. „Ertu úr Mýrarhreppnum?“ sagði Þura og brosti breitt þegar ég kynnti mig fyrir henni. Þetta var í síðustu heimsókn minnar til hennar þar sem hún dvaldi á Skjóli. Flest orðið falið í þoku, en æskuheimilið stóð enn í ljósinu, annað gleymt en samt var hún svo geislandi glöð. Nú hefur hún sungið sitt kvöldvökuljóð og renn- ir sér sjálfsagt fótskriðu niður að Mýrarmelnum þar sem leitað er að fallegri skel eða steini í minn- ingarskrínið. Hún valdi það alltaf að sjá hið fallega í samferðafólki sínu eða einfaldlega í því sem hún var að fást við, það vakti hjá henni mikla undrun ef hún mætti öðru. Við sem eftir erum lútum höfði í þakklæti og virðingu. Sigurleifi og fjölskyldu sendum við fjölskyldan innilegar samúðarkveðjur. Halla Signý Kristjánsdóttir og fjölskylda. Þuríður Gísladóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, RAGNAR SCHEVING SIGURJÓNSSON, lést 22. október 2016. Jarðsungið verður frá Hvammstangakirkju föstudaginn 18. nóvember klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. . Svala Hulda Alexander Ólafur Petra Bjarki Hekla Hera Elías Isak Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR INGI INGIMUNDARSON HLERINN (1950-2016), rafveituvirki, Vindakór 1, Kópavogi, andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans 9. nóvember. Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítalans. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Ljósið. . Soffía Amanda T. Jóhannesdóttir Inga Björk Færseth Ólafsdóttir Gunnar Bachmann Færseth Ólafsson Lilja Dögg Færseth Ólafsdóttir Sæmundur Þór Guðmundsson Ármann Freyr Hermannsson Ingiberg Ólafur Jónsson Guðmundur Oliver Sæmundsson stjúpbörn og stjúpbarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN HELGI BJÖRNSSON prentari, lést á líknardeild Landspítalans 10. nóvember. Útförin fer fram frá Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði föstudaginn 18. nóvember klukkan 13. . Jóhanna Sigfúsdóttir Ásta Björk Björnsdóttir Rúnar Björnsson Hjörtur Geir Björnsson Hrönn Ljótsdóttir Björn Freyr Björnsson Katrín Edda Svansdóttir Sverrir Örn Björnsson Kristín Höskuldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.