Morgunblaðið - 22.11.2016, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 2016
✝ Ásta Þorvalds-dóttir fæddist í
Reykjavík 22. nóv-
ember 1951. Hún
lést á Landspít-
alanum í Reykja-
vík 17. apríl 2016.
Kjörforeldrar
Ástu voru Sigurást
Guðvarðardóttir
húsmóðir, f. 14.
maí 1910, d. 6.
mars 1978, og Þor-
valdur Brynjólfsson, yfirverk-
stjóri í Landsmiðjunni, f. 15.
ágúst 1907, d. 12. október
1987. Foreldrar hennar voru
Guðlín Þorvaldsdóttir og Kjart-
an Kristófersson. Systkini Ástu
eru Ingiberg Þor-
valdsson, f. 1931,
d. 1991, Guðlín
Þorvaldsdóttir, f.
1936, og Kolbrún
Þorvaldsdóttir, f.
1941. Ásta var gift
Halldóri Waag-
fjörð, f. 2. maí
1947, þau eign-
uðust Jón Waag-
fjörð, f. 4. janúar
1976. Fyrir átti
Ásta Þorvald Þórarinsson, f.
12. nóvember 1969. Barnabörn
Ástu eru fjögur.
Útför Ástu fór fram frá
Oddakirkju á Rangárvöllum 23.
apríl 2016.
Í dag, 22. nóvember, hefði
elsku uppáhaldsfrænka mín og
guðmóðir orðið 65 ára. Við
misstum hana frá okkur allt of
fljótt en hún háði hetjulega
baráttu við krabbamein í nokk-
ur ár og lést hinn 17. apríl síð-
astliðinn. Ég á margar minn-
ingar um Ástu frænku. Þær
fyrstu eru eingöngu í gegnum
myndir og orð frá öðrum en
Ásta frænka hélt mér undir
skírn á fermingardaginn sinn
fyrir 51 ári.
Ég man Ástu frænku sem
mestu skvísu sem ég hafði
nokkru sinni augum litið. Ég sé
hana ljóslifandi fyrir mér ný-
komna úr einhverri utanlands-
ferð með ljósu hárkolluna sína,
í mínipilsi og hælaháum rú-
skinnsstígvélum. Ég fór létt
með það að láta krakkaskarann
í Eyjabakkanum trúa því að
þarna færi fræg Hollywood-
stjarna. Ég man sleðaferð í
Skálafell og ferðir í Eden þar
sem ekkert var slegið af skvísu-
útlitinu.
Ég man kúrustundir á
Laugateignum þar sem Ásta
sagði sögur sem fengu lítil eyru
til að loga og augun til að verða
að undirskálum.
Ég man bæjarferðirnar sem
Ásta átti til að taka mig með í,
það voru afskaplega skemmti-
legar ferðir fyrir litla skottu.
Mér er sérstaklega minnisstæð
ein slík ferð, ætli ég hafi ekki
verið 8 eða 9 ára en þá fengum
við okkur göt í eyrun og fórum
síðan í „smørrebrød“ á Óðins-
véum. Þá hækkaði ég nú aðeins
í loftinu, þetta var góður dagur.
Ég man sumarið þegar ég
var 12 ára og fór í vist til Ástu í
Vestmannaeyjum. Það gekk á
ýmsu það sumarið en ég minn-
ist þess ekki að elsku Ásta hafi
nokkru sinni misst þolinmæð-
ina við guðdóttur sína. Þar
prjónaði ég mína fyrstu kaðla-
peysu undir styrkri leiðsögn
Ástu. Það voru notaleg kvöldin
þegar við sátum saman yfir
prjónaskapnum og spjölluðum
um heima og geima.
Ég man að Ásta frænka
tókst á við alla hluti með já-
kvæðni að leiðarljósi, það þótti
mér einn af hennar dýrmæt-
ustu eiginleikum. Bjartsýni og
gleði fleytti henni örugglega yf-
ir margan erfiðan hjallann.
Ég man listakokkinn, handa-
vinnusnillinginn, gestgjafann,
sögumanninn. Ég man síðustu
stundirnar okkar saman, þær
eru með þeim verðmætustu
sem ég á. Ég man bros, hlátur,
gleði, erfiðleika, sorgir, vænt-
umþykju, ást. Ég man Ástu
frænku.
Þín frænka og guðdóttir,
Íris Guðmundsdóttir.
Ásta
Þorvaldsdóttir
✝ Davíð RúrikHöjgaard
fæddist á Bakka í
Bakkafirði 30.
ágúst 1924. Hann
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 12.
nóvember 2016.
Foreldrar hans
voru Einar
Ásmundur Höjga-
ard, bóndi á Bakka
í Bakkafirði, og
kona hans, Ólöf Stefanía Dav-
íðsdóttir. Davíð var hluti af
stórum systkinahóp, þeim Elsu
(látin), Herdísi (látin), Gunn-
Börn Davíðs og Júlíu eru: 1)
Margrét Svandís, f. 8.6. 1950,
eiginmaður hennar er Ólafur
Eiríksson, f. 20.1. 1951. Þeirra
börn eru: Davíð Rúrik, maki
Þóra Björg Gylfadóttir. Helga,
maki Hjörtur Sindri Harðarson.
Eiríkur, maki Berglind Gunn-
arsdóttir. Haraldur Óli, maki
Jakobína Sigurgeirsdóttir. 2)
Hörður, f. 2.6. 1951, d. 9.11.
1952. 3) Sigurður Einar, f. 4.7.
1954, d. 30.8. 1954. 4) Ólöf Stef-
anía, f. 20.5. 1957, eiginmaður
hennar er Martin Guðmunds-
son, f. 9.1. 1957. Þeirra börn
eru: Davíð Rúrik, maki Burcu
Acem Höjgaard. Guðmundur
Stefán. Barnabarnabörn eru
þrettán og barnabarnabarna-
börn eru tvö.
Davíð verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
22. nóvember 2016, kl. 15.
laugi (dáinn), Jóni
(látinn), Friðriki
(látinn), Ásgeiri (dó
í bernsku), Nönnu
(látin), Pálínu og
Svövu. Auk þess
átti Davíð tvo hálf-
bræður, Þorstein
og Matthías, og
voru þeir sam-
feðra. Davíð giftist
13. júlí 1955 Júlíu
Sæunni Hannes-
dóttur, f. 26. ágúst 1929, d. 18.
febrúar 2011. Hún var dóttir
hjónanna Hannesar Júlíussonar
og Margrétar Einarsdóttur.
Kannski er ég bara orðinn
alltof alltof seinn,
svo heima í koti gamall karl
þar kúra verður einn.
Það verður bara að taka því
og vera ekki að fást um það
því enginn maður ræður alltaf
sínum næturstað.
Elsku pabbi.
Allt er svo tómlegt án þín. Þú
varst alveg einstakur faðir og
gafst mér svo gott veganesti út í
lífið. Ósk mín var ávallt sú að
reyna að líkjast ykkur mömmu
hvað varðar glaðværð, góð-
mennsku og sanngirni. Allar
þær góðu minningar um þig
kæmust ekki fyrir í blaðinu en
varðveitast í hjarta mínu, svo í
minningu þinni set ég hér tvær
af fimm vísum úr ljóðinu Himna-
förin sem þú ortir, lagið sem þú
samdir á harmonikkuna þína við
ljóðið syngjum við fjölskyldan
áfram saman.
En þegar ég í himnaríki
held á Drottins fund.
Með harmonikku og ljóðin mín
ég léttur verð í lund.
Ég veit að Pétur segir þá
við mig, gestinn sinn:
„Svo þú ert Bakkafirði frá
æ, vertu velkominn.“
Takk, elsku pabbi, fyrir að
hafa verið mér góður faðir,
traustur vinur og sáluhjálp. Þín
sárt ég sakna.
Ólöf.
Elsku besti pabbi minn. Mikið
verður erfitt að geta ekki knúsað
þig og heyrt allar sögurnar frá
þér, eins og þegar þú varst á
vertíð í Vestmannaeyjum og við
mamma heimsóttum þig. Við
bjuggum hjá Laugu, systur
þinni, og Þórarni, mági þínum,
þar var yndislegt að vera.
Fórum við niður á bryggju
þegar þú komst að landi, þegar
ég sá þig breyttist allt, ég stökk í
fang þitt, lagði báða lófa mína á
kinnar þínar og sagði: þetta er
hann pabbi minn, sjáið hann
pabba minn, sjáið þið hann.
Þessari stund gleymdir þú aldrei
og hlóst dátt.
Það var alltaf nóg að gera hjá
þér, þú byggðir húsið þitt einn,
þetta fallega græna með rauða
þakinu við Suðurlandsbrautina,
bústaðinn og alltaf fékk maður
að vera með og taka þátt. Ég hef
aldrei skilið hvað þú gast gert
mikið. Þú kunnir allt, smíða,
skera út, prjóna, spila á harm-
onikku og yrkja. Kenndir elsta
syni mínum skák og er hann
góður skákmaður. Og svo fórst
þú oft til Nönnu systur og Sig-
urjóns mágs þíns með okkur.
Það var sko gaman, þau voru
svo mörg systkinin, alltaf þegar
við komum til þeirra tók allur
barnahópurinn á móti okkur og
kallaði mamma, hann Davíð
bróðir er kominn, síðan hefur þú
verið kallaður Davíð bróðir af
þeim systkinum. Til Bakkafjarð-
ar var farið á hverju ári, komið
við hjá Elsu systur þinni í leið-
inni. Alltaf var hún með heitan,
góðan mat fyrir okkur, sama
hvað klukkan var. Þetta voru
yndislegir tímar. Mikið á ég eftir
að sakna þín, elsku pabbi minn.
En nú ert þú kominn til mömmu
og drengjanna.
Sakna þín svo mikið. Þín dótt-
ir,
Margret.
Davíð Höjgaard fæddist á
Bakkafirði þrítugasta ágúst
nítján hundruð tuttugu og fjög-
ur. Hann ólst þar upp með átta
systkinum sínum ásamt foreldr-
um, Einari og Ólöfu, en þau
bjuggu á jarðarparti út úr jörð-
inni Bakka.
Eins og gefur að skilja var
þetta lítið bú, vel innan við
hundrað fjár, ein kýr og fáeinir
hestar. Mér skildist á Davíð að
þetta hefði oft verið mikið basl
og húsakynni léleg, reyndar ólst
hann upp fyrstu árin í baðstofu
með moldargólfi, en einhverjum
árum síðar komust þau í betra
húsnæði á Bakkanum.
Davíð var örvhentur og leið
oft mikið fyrir það, var hann oft
þvingaður til að nota hægri
höndina og var það ekki alltaf
átakalaust, en móðir hans hélt
yfir honum hlífiskildi og varði
hann hvenær sem hún gat.
Ég kynnist Davíð fyrst árið
1973, þá sextán ára gamall, ég
hafði þá kynnst dóttur hans
Ólöfu, en við höfðum verið við
störf á Vopnafirði, hún í fisk-
vinnslu og ég í vegavinnu. Einn
daginn höfðum við ákveðið að
fara á Hofsball, hann bauðst til
að keyra okkur og útvega tjald,
nú hann keyrir okkur inn að
Hofi og við rjúkum út úr bílnum
og byrjum að tjalda, hann dokar
við til að athuga hvort ekki sé í
lagi með tjaldið, kemur þá í ljós
að hælana vantar, hann bregst
fljótt við þessu og segist bara
fara aftur út á Vopnafjörð og út-
vega hæla. Þarna kynntist ég
strax hjálpsemi hans sem átti
svo eftir að einkenna okkar bú-
skap, hann var alltaf reiðubúinn
að hjálpa þegar eitthvað bjátaði
á hvort sem það var í veikindum
barna okkar eða gæsla á þeim
vegna vinnu, þetta hafa fleiri í
fjölskyldunni reynt.
Davíð hafði mjög gaman af
útiveru alls konar enda fór það
svo að hann og systkini hans
keyptu Dalhús íBakkafirði þar
sem hann dvaldi oft á sumrin
með fjölskyldu sinni, þar var
veiddur silungur og lax, tínd ber
og sumir gengu til rjúpna. Hann
var líka um tíma með lítinn bát á
Vopnafirði og fóru fjölskyldu-
meðlimir oft með honum út á sjó
og bar oft vel í veiði. Þegar frá
leið og ættingjar hans fyrir aust-
an fóru að falla frá dró hann sig
út úr félagsskapnum á Dalhús-
um og dvaldi því meira í sum-
arbústað sínum í landi Miðfells
við Þingvallavatn, en þar hafði
hann byggt sumarbústað 1982
og hóf þar mikið rækturstarf.
Hann ræktaði aðallega ösp og
alaskavíði af miklum eldmóði og
gróðursetti allt í kringum bú-
staðinn og er svo komið í dag að
bústaðurinn sést ekki frá þjóð-
veginum.
Nágrannarnir fengu líka að
njóta ræktunargleði hans og var
hann óspar á að gefa þeim
plöntur og má glöggt sjá þess
merki í dag. Þegar Davíð hætti
að vinna fékk hann mikinn
áhuga á útskurði og eru til ótal
verk eftir hann, t.d. klukkur,
hillur og speglar, einnig skar
hann út mikið af fuglum, sam-
hliða öllu þessu hafði hann gam-
an af því að yrkja og spila á
harmonikku, sem hann gerði frá
unga aldri.
Um leið og ég þakka Davíð
fyrir samveruna síðastliðin
fjörutíu og þrjú ár vil ég geta
þess að Davíð lést ekki saddur
lífdaga, hann naut hverrar
stundar með fjölskyldunni og
fylgdist vel með hverjum og ein-
um. Takk, Davíð, fyrir sam-
veruna, þín minning mun lifa.
Þinn tengdasonur.
Martin Guðmundsson.
Hjartkæri tengdapabbi, mig
langar að kveðja þig og þakka
allt sem þú hjálpaðir mér með í
lífinu, innréttaðir með okkur
húsnæði þrisvar sinnum og
margt fleira. Aldrei mátti borga
neitt, en ég gat þó gert þér svo-
lítinn greiða, að taka þig með
mér nokkrar ferðir til sjós og í
einni slíkri stoppuðum við í
Hamborg. Fórum við þá í Plan-
ten un Blomen þar sem þú hafðir
mikið yndi af gróðri. Gengum
þar um og skoðuðum gróðurinn,
þegar rökkva tók vildir þú halda
til skips, en ég sagði: það er ekki
allt búið enn, kl. 20 byrjaði
vatnsorgel að spila, mikill varð
undrunarsvipurinn hjá þér, leist
á andlit mitt og sagðir: er ég nú
kominn til himnaríkis? Einnig vil
ég þakka þér góðvildina við alla
mína afkomendur sem allir voru
hrifnir af afa, langafa og langa-
langafa sínum. Eins og ein lítil
dama sem flutti til Svíþjóðar á
síðasta ári. Hún Jara Liv hélt
mikið upp á langa, skottaðist
mikið með ömmu sinni að hugsa
um leiði langömmu sinnar. Þeg-
ar pabbi hennar sagði að langi
væri kominn í Sumarlandið leit
hún stórum augum á pabba sinn
og sagði: hann hefði nú líka get-
að farið til himna. Þinn tengda-
sonur,
Ólafur (Óli).
Elsku besti afi okkar. Við
höldum að það sé nú alveg klárt
að við höfum aldeilis unnið afa-
lottóið; mikið vorum við heppin.
Ekki skemmdi fyrir þegar það
var alltaf hægt að koma í heim-
sókn í næstu götu, fá sér köku
sem þú varst alltaf svo duglegur
að baka og kíkja inn í smíða-
herbergið, þvílíkur lúxus.
Það verður erfitt að kveðja,
en okkur langar að þakka þér
fyrir allar frábæru stundirnar og
minningarnar sem munu aldrei
gleymast. Þú varst svo frábær í
alla staði og hugsaðir svo vel um
allt og alla, það er erfitt að finna
betri langafa en þig.
Þín langafabörn,
Gylfi, Júlía Margrét
og Ólafur Þór.
Hann afi minn átti langa ævi.
Að hluta til erfiða en að mestu
leyti góða og ánægjulega. Ég
naut þeirra forréttinda að vera
mjög tengdur afa (og náttúrlega
ömmu líka) frá unga aldri og má
segja að þau og þá sérstaklega
afi hafi mótað að miklu leyti upp-
vöxt og áhugamál mín. Eins og
flestir vita þá hefur skák verið
afar stór þáttur í mínu lífi en afi
kenndi mér að tefla í kringum
heimsmeistaraeinvígi Fischers
og Spasskís í Laugardalshöllinni
og studdi mig í skákiðkuninni
með stöðugum keyrslum til og
frá í Taflfélagið eftir að hann
hætti að geta veitt mér keppni
sjálfur. Reikningur og stærð-
fræði er annað sem ég hef afar
mikið notað í gegnum mitt líf.
Það má einnig segja að afi hafi
líka vakið áhuga minn á því.
Strax á unga aldri hafði ég afar
gaman af því að vera með afa og
fékk ég oft að hanga með honum
heilu dagana í sendibílnum þeg-
ar hann var að keyra á sendibíla-
stöðinni. Það vakti áhuga minn
að hann var alltaf að leggja sam-
an tölur þegar hann var að gefa
út reikninga, sem leiddi til þess
að hann kenndi mér að reikna
löngu áður en ég hóf skólagöngu.
Ekki er hægt að minnast afa
öðruvísi en að nefna sumarfríin.
Frá mjög ungum aldri og fram
yfir fermingu fór ég alltaf austur
í sumarfrí með afa og ömmu á
heimaslóðir afa á Bakkafirði.
Þar dvöldum við venjulega um
mánaðartíma á Vopnafirði og
síðar Bakkafirði eftir að systk-
inin keyptu Dalhús. Þetta var
alltaf yndislegur tími við veiðar í
vötnum og ám, berjatínslu og
ýmislegt annað í þessu fallega
umhverfi. Þetta eru tímar sem
ég aldrei mun gleyma. Síðar
kom að því að afi ákvað að fá sér
sumarbústaðarlóð á Þingvöllum
og auðvitað eyddi ég þá miklum
tíma með honum þar. Fyrst í
tjaldi á meðan skúr var byggður
og svo í skúrnum á meðan sum-
arbústaðurinn var byggður í ró-
legheitum. Það voru sannarlega
forréttindi að fá að taka þátt í
þessu.
Annars var alltaf gaman í
kringum afa enda kallinn með
afbrigðum uppátækjasamur og
forvitinn. Þegar sodastream-
tækin komu til sögunnar fékk
kall sér eitt slíkt enda sá hann
mikið sparnaðartækifæri í þessu.
Ekki hafði hann átt tækið lengi
þegar hann varð auðvitað að
prófa ýmislegt.
Versta tilraunin var líklega
þegar hann ákvað að prófa að
bæta gosi í malt sem endaði með
því að það gaus hroðalega upp
úr flöskunni (tækið nánast
sprakk) og allt fór út um allt. Ég
Davíð Rúrik
Höjgaard
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og
afa,
AÐALSTEINS GÍSLASONAR
vélfræðings,
Klapparstíg 1.
.
Kristín Jóhanna Hólm,
Rúnar J. Aðalsteinsson, Sigríður Ásta Árnadóttir,
Bára Aðalsteinsdóttir,
Sigurbjörn G. Aðalsteinsson, Kristín Gísladóttir,
Gunnar K. Aðalsteinsson, Bryndís Harðardóttir
og barnabörn.
Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, stjúpmóðir, systir, mágkona, amma
og langamma,
J. SIGRÍÐUR ELENTÍNUSDÓTTIR,
Ásbraut 15, Kópavogi,
lést á LSH í Fossvogi mánudaginn 14.
nóvember. Útförin fer fram frá Kópa-
vogskirkju fimmtudaginn 24. nóvember klukkan 13.
.
Haukur Reynir Ísaksson,
Sigurður Sverrir Witt, Rachel Parker Witt,
Ingunn Hildur Hauksdóttir, Þröstur Þorbjörnsson,
Svanhildur Elentínusdóttir, Einar Hjaltested,
Margeir Elentínusson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug við andlát
og útför
SVANHILDAR STEFÁNSDÓTTUR
kennara,
er lést 6. október síðastliðinn. Sérstakar
þakkir færum við þeim sem veittu
umönnun, aðstoð og samveru á undanförnum árum.
.
Jón Jóhann Vigfússon,
Steinunn K. Jónsdóttir, Sigurður Jakob Halldórsson,
Ingi Þór Jónsson, Dalla Rannveig Jónsdóttir.