Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Page 33
Vikublað 8.–10. september 201528 Fréttir Erlent Á morgun, 9. september, slær Elísabet II Englandsdrottning met Viktoríu drottningar og verður sá þjóðhöfðingi Breta sem lengst hefur setið að völdum. Viktoría tók við krúnunni átján ára gömul árið 1837. Samkvæmt útreikningum Buckinghamhallar ríkti hún í 23.226 daga, 16 klukkustundir og 23 mínútur. Hún lést árið 1901, 81 árs. Elísabet tók við völdum árið 1952, 25 ára gömul, var krýnd árið eftir, og er nú 89 ára. Þó að nokkuð hafi dreg- ið úr þrótti hennar mun hún ekki af- sala sér krúnunni til Karls sonar síns. Karl er reyndar sá ríkisarfi Bretlands sem lengst hefur beðið eftir að erfa krúnuna, eða í 63 ár. Hann er nú 66 ára gamall og gæti þurft að bíða í ein- hver ár enn. Drottningarmóðirin, amma hans, varð 101 árs, og ekki er útilokað að Elísabet II verði nokkurn veginn jafn langlíf og móðir sín. Elísabet II hefur alla tíð notið vinsælda meðal þegna sinna. Hún fæddist árið 1926, elsta dóttir hertoga- hjónanna af York, sem seinna urðu Georg VI og Elísabet drottning. Yngri systir hennar, Margrét, fæddist árið 1930. Þegar Georg V, afi Elísabetar, lést árið 1936 tók elsti sonur hans, Játvarð- ur VIII, við krúnunni en afsalaði sér henni, eins og frægt varð, vegna ástar sinnar á fráskilinni konu, Wallis Simp- son. Faðir Elísabetar, sem var feiminn og hlédrægur maður, tók við krúnunni. Yngri kynslóðir kunna sennilega best skil á honum sem hinum stamandi konungi í kvikmyndinni The King‘s Speech, en þar túlkaði Colin Firth hann eftirminnilega og hreppti Óskar- inn. Elísabet var sjálf umfjöllunar efni í kvikmyndinni The Queen sem færði Helen Mirren Óskarsverðlaun. Skyldurækin og skipulögð Elísabet þótti allt frá unga aldri skyldurækin og skipulögð og með mikla ábyrgðartilfinningu. Hún var sem barn, og er enn, einlægur dýravinur og hundar og hestar hafa alla tíð verið þar í uppáhaldi. Hún hefur sagt að hún hafi þrettán ára gömul orðið ástfangin af frænda sínum, Filippusi Mountbatt- en, þau trúlofuðu sig árið 1947 og gengu í hjónaband sama ár. Georg VI, faðir Elísabetar, lést árið 1952 og hún tók þá við völdum, 25 ára göm- ul og var krýnd árið eftir. Hinni hlé- drægu Elísabetu leið ekki alltaf vel í mannfjölda og það átti ekki við hana að halda uppi spjalli. Hún var fámál og fjarlæg, jafnvel kuldaleg. Henni var styrkur að því að hafa hinn ver- aldarvana og félagslynda Filippus sér við hlið. Hún sagði við vin sinn: „Án Filippusar hefði ég ekki ráðið við þetta.“ Árið 1954 í heimsókn í Ástral- íu sást hún henda skóm í eiginmann sinn eftir rifrildi þeirra. Seinna sagði hún: „Mér þótti þetta leitt en svona hlutir gerast í öllum hjónaböndum.“ Elísabet hefur alla tíð verið vönd að virðingu sinni, ekki opinberað til- finningar sínar heldur ætíð haldið ró og yfirvegun. Þótt það sjáist kannski ekki á henni þá er hún sögð búa yfir kímnigáfu, er sögð góð eftirherma og hefur gaman af Ali G. Hún klæð- ist fötum í áberandi litum og er með hatt í stíl, og litadýrðin gerir að Elísabet II slær met Viktoríu n Hefur ríkt lengst breskra þjóðhöfðingja n Nýtur enn mikilla vinsælda Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Árið 1954 í heim- sókn í Ástralíu sást hún henda skóm í eiginmann sinn eftir rifrildi þeirra. Viktoría drottning Elísabet hefur nú setið lengur að völdum en hin fræga formóðir sín. Stolt móðir Með elsta syni sínum Karli Bretaprins. Nýkrýnd drottning Elísabet var 27 ára þegar hún var krýnd drottning.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.