Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Blaðsíða 77
Vikublað 8.–10. september 201556 Skrýtið
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Frambjóðandi kanadíska íhaldsflokksins í gruggugu vatni
J
erry Bance, kanadískur
iðnaðar maður og fyrrverandi
frambjóðandi Íhaldsflokksins
þar í landi, hefur dregið fram-
boð sitt til kanadíska þingsins
til baka eftir að þriggja ára gömul
upptaka sýnir hann míga í kaffibolla
á heimili viðskiptavinar hans var
gerð opinber í síðustu viku.
Kanadíska fjölmiðlasamsteypan
The Canadian Broadcast Corp. birti
upptökuna en hún er frá árinu 2012
og var tekin upp af framleiðendum
raunveruleikaþáttar sem vildu fletta
ofan af svikulum iðnaðarmönnum.
Á upptökunni má sjá Bance míga
ofan í kaffibollann, á meðan húseig-
andinn er staddur í næsta herbergi,
og hella þvaginu í eldhúsvask heim-
ilisins. Bance, sem var frambjóðandi
Íhaldsflokksins í kjördæmi í Toronto
og bauð sig einnig fram fyrir flokkinn
árin 2006 og 2008, sagði í yfirlýsingu
í gær, mánudag, að hann væri fullur
eftirsjár.
„Ég reyni að ganga stoltur frá
minni vinnu og þetta myndskeið
endurspeglar alls ekki þá persónu
eða þann fagmann sem ég hef að
geyma,“ sagði Bance í yfirlýsingunni.
Hneykslið í kringum Bance er
sagt vera enn einn áfellisdómur yfir
Íhaldsflokknum og leiðtoga hans,
Stephen Harper, forsætisráðherra
Kanada. Harper hefur undanfarna
mánuði þurft að svara fyrir hina
miklu efnahagslægð sem landið
glímir nú við. Ríkisstjórn forsætisráð-
herrans hefur einnig verið gagnrýnd
fyrir að gera ekki nóg fyrir sýrlenska
flóttamenn í ljósi flóttamannavand-
ans í Evrópu. Kanadískir Twitter-
notendur voru fljótir að grípa fréttina
af Bance og tengja hana við kosn-
ingabaráttu Íhaldsflokksins. Í einni
Twitter-færslu, sem í gær var búið að
deila yfir þúsund sinnum, mátti lesa:
„Kjósið Íhaldsflokkinn eða við míg-
um í bollana ykkar.“ n
Pólitíkus
pissaði í kaffibolla
Varð mál Jerry
Bance er ekki lengur
frambjóðandi
Íhaldsflokksins.
„Kjósið
Íhaldsflokk-
inn eða við mígum
í bollana ykkar.