Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 18
Helgarblað 29. október–2. nóvember 201518 Fréttir www.fondurlist.is / Holtagörðum / s: 553 1800 allt í jólaföndrið Föndurverslun – Námskeið – Netverslun opið virka daga 11-18 og laugar- daga 11-15 annars í Mosfellsbæ, á Selfossi og á Sauðárkróki. Stundum var hann ráð­ inn en yfirleitt staldraði hann stutt við enda gekk Barnaverndarráð Ís­ lands afar hart fram í viðleitni sinni til þess að vara við Grími. Framganga stofnunarinnar vakti talsverða athygli enda hafði hinn meinti kynferðis­ afbrotamaður ekki hlotið dóm. Stofnun eineltissamtaka – Bubbi treður upp Grímur sagði í áðurnefndu viðtali að hann stæði nú uppi „slyppur og snauður, rúinn mannorði“ og hélt því fram að fjölskylda fyrrverandi eigin konu sinnar bæri ábyrgð á ásök­ ununum sem hann sagðist saklaus af. Hann ítrekaði að „sannleikurinn myndi koma í ljós“ og að hann ætl­ aði að hreinsa æru sína af ásökun­ um yfir valda. Málstaður Gríms hlaut talsverða samúð og má sem dæmi nefna að á kynningarfundi um stofn­ un samtaka gegn einelti í lok sept­ ember 1994, þar sem meðal annars Bubbi Morthens og Rúnar Júlíus­ son komu fram endurgjaldslaust, var Grímur aðalnúmerið og sagði frá reynslu sinni í baráttunni gegn yfir­ völdum. Æra Gríms mátti því þola högg þegar DV greindi frá því þann 22. mars 1996 að hann hefði verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Noregi fyrir að hafa með skipulögð­ um hætti beitt börn sín ofbeldi á ár­ unum 1992 til 1994. Í samtali við DV vísar Grímur því algjörlega á bug að hann hafi hlotið dóm í Noregi. „Þetta er tóm þvæla. Þetta voru ásakanir, sem voru úr lausu lofti gripnar. Ég hlaut aldrei neinn dóm,“ segir Grím­ ur. Hann segist hafa viljað hlífa börn­ um sínum við umfjöllun og því ekki leitað réttar síns á sínum tíma vegna fullyrðinga blaðsins. „Samband mitt við börn mín í Noregi er gott. Þau heimsóttu mig meðal annars til Ís­ lands síðasta sumar,“ segir Grímur. „Lýgur, eingöngu lyginnar vegna“ Þann 27. júlí 1995 birtist umfjöllun um Grím í Helgarpóstinum. Titill greinar­ innar var „Svik og prettir“. Þar var Grím­ ur nefndur sem dæmi um mann sem „lýgur, eingöngu lyginnar vegna“ og var vísað til þess að hann hefði sprottið fram á sjónarsviðið sem sérfræðingur í fíkniefnamálum, veifað ýmsum próf­ gráðum því til staðfestingar og sagst vera að vinna í doktorsritgerð sinni í taugasálfræði, með sérstaka áherslu á afbrotahegðun. Einnig sagðist hann hafa starfað með fólki sem glímdi við fíkniefnavanda og að hann hefði hlot­ ið þjálfun í bandarískum lögreglu­ skóla. Þá sagðist Grímur hafa starfað hjá lögreglunni í Michigan og Illino­ is samhliða námi, meðal annars sem tálbeita í fíkniefnakaupum. Í grein­ inni fullyrðir blaðamaðurinn að frá­ sögn Gríms sé uppspuni frá rótum og ástæðu lyganna telur hann vera þá að Grím dreymi um að starfa sem fíkniefnalögreglumaður. Því skal hins vegar haldið til haga að við vinnslu fréttarinnar fékk DV stað­ fest frá Andrews­háskóla í Michig­ an að Grímur lauk B.Sc­gráðu í sálfræði frá skólanum árið 1988. „Enn einu sinni“ dreginn fyrir dómstóla Ekki liggur fyrir hvenær Grímur flutti aftur af landi brott en ljóst er að hann hefur dvalið meira og minna í Noregi og Svíþjóð undan­ farna tvo áratugi. Í áðurnefndri frétt DV frá 23. mars 1999 segir um Grím að hann hafi „enn einu sinni“ verið dreginn fyrir dóm­ stóla í Noregi. Greint er frá því að Grímur hafi þóst vera sérfræðing­ ur og notað falsað prófskírteini frá Bandaríkjunum. Í greininni eru talin upp nokkur störf sem Grímur var rekinn úr, til dæmis staða skólasál­ fræðings á Sauðárkróki og í Flisa í Austur­Noregi auk stöðu sálfræðings við sjúkrahús í Kirkenesi í Norður­ Noregi. Veitinga- og fyrirtækja- rekstur í Noregi og Svíþjóð Til tíðinda dró í byrjun október 2013 þegar Grímur opnaði veitingastað­ inn Nya Sjöboden í bænum Soll­ efteå. Af því tilefni birtist viðtal við Grím á fréttasíðunni allehanda.se þar sem hann sagði að staðurinn myndi einbeita sér að ferskum fiskréttum. Grímur rak einnig innflutningsfyr­ irtæki fyrir fisk frá Noregi. Fyrirtæk­ ið var nokkuð umsvifamikið en fjór­ ir vörubílar sáu um að flytja fiskinn til Svíþjóðar þar sem hann var seld­ ur, beint úr bílnum, í Ångermanland, Jämtland, Västerbotten og suður­ hluta Lapplands. Þessi fiskur var uppstaðan í matseðli veitingahússins í Solleftå. Í lok viðtalsins segist Grím­ ur stefna á að opna veitingastaði í Kramfors og Sundsvall. Íkveikja og líkamsárás með hafnaboltakylfu Þann 9. nóvember varð heimili Gríms í Bollstabruk, sem er í um 30 mínútna fjarlægð frá Sollefteå, eldi að bráð. Greinilega var um íkveikju að ræða því eldurinn kviknaði á mörgum stöðum samtímis og húsið brann til grunna. Enginn var heima en Grímur bjó ekki í því á þessum tíma. Aðfaranótt annars jóladags varð Grímur fyrir líkamsárás. Hann var þá nýbúinn að loka veitingastaðnum og var að gera upp kvöldið. Annað starfsfólk var enn á staðnum þegar tveir menn réðust inn á staðinn og misþyrmdu Grími gróflega, meðal annars með hafna­ boltakylfu. Samkvæmt vef­ miðlinum allehanda.se var Grímur illa farinn eftir of­ beldið og neyddist til að leita sér aðstoðar á sjúkra­ húsi. Veitingastaðurinn var aðeins opinn í tvo daga í viðbót en var síð­ an lokað fyrir fullt og allt á nýársdag. Málið vakti mikla athygli í fjölmiðlum ytra en aldrei var fjallað um það að fórnarlambið hefði verið Íslendingur. Lögreglumaðurinn sem sá um málið, Lars Andersson, staðfesti í samtali við DV að umrætt fórnar­ lamb væri Grímur Th. Vilhelmsson. Meðal annars birtist umfjöllun um málið í þættinum Efterlyst á TV3 þar sem árásarmannanna var leitað. Í byrjun árs 2014 hélt Grímur til Ís­ lands ásamt seinni eiginkonu sinni, hinni norsku Anitu Vilhelmsson, og fimm sonum þeirra. Skömmu síð­ ar hóf hann rekstur veitingastaðar á Suðurnesjum. Grímur er ekki áfjáður í að ræða málið við blaðamann. „Ég veit allt um hverjir þetta voru en það er frétt út af fyrir sig sem á ekkert heima í þessu samhengi,“ segir Grímur. n „Ég er frekar þrjóskur“ Jóhann Waage var svikinn um laun af Grími É g vann nokkur lógó fyrir Grím sem hann notaði lengi á veitingastöðum sínum,“ segir Jóhann Waage sem elst hefur við Grím í tæplega tvö ár. „Ég er frekar þrjóskur,“ segir hlæjandi en allan þennan tíma hefur Jóhann verið reglulega í sambandi við Grím símleiðis eða í gegnum skilaboð á samfélagsmiðlum. „Hann er búinn að lofa öllu fögru en hefur aldrei staðið við neitt. Eftir mikla ýtni greiddi hann mér 30 þús­ und krónur og lofaði að restin kæmi stuttu síðar en það gerðist ekki,“ segir Jóhann. Þegar hann síðan hótaði að opinbera um málið á Facebook og setja kröfuna í innheimtu þá urðu hins vegar sinnaskipti hjá Grími. „Hann sagði að sameiginleg­ ur kunningi okkar hefði tekið við peningunum og ætlaði að koma þeim til mín. Í kjölfarið fór hann að bulla um að ég skuldaði sér pening og hótaði mér ítrekað handrukkun,“ segir Jóhann og sýnir blaðamanni alla samskiptasöguna við Grím, því til sönnunar. Jóhann var óhræddur við hótanir Gríms og kærði þær til lögreglu. Hann stofnaði síðan lokað­ an Facebook­hóp sem nefnist „Fórnarlömb svikastarfsemi Gríms Vil­ helmssonar“ þar sem saman hefur safnast fólk sem hefur farið illa út úr viðskiptum sínum við Grím. Alls eru 14 manns í hópnum á þessum tímapunkti. Grímur hafnar þessum ásökunum Jóhanns. „Það er alfarið rangt að ég hafi aðeins borgað 30 þúsund krónur, bankayfirlit mitt seg­ ir aðra sögu,“ segir Grímur. Hann segir að Jóhann hafi ætlað að jarða sig frá byrjun og meðal annars birt ósannindi um sig á Facebook­síðu íbúa Reykjanesbæjar. „Ég mun leggja fram kæru vegna þess,“ segir Grímur. Hann hafnar því einnig staðfastlega að hafa hótað Jóhanni og segir það byggt á misskilningi. Á launakröfu upp á milljón Guðmundur Helgi Sigurðsson missti íbúðina sína G uðmundur hóf störf hjá Grími á Grillbarn­ um í nóvember 2014 og starfaði þar fram í mars þegar hann gekk út ásamt öðru starfsfólki sem hafði ekki fengið laun sín greidd. „Ég var búinn að vinna í einn og hálf­ an mánuð hjá honum án þess að fá greitt og þá ætlaði ég að hætta. Hins vegar greiddi hann mér smávegis þá og því vann ég hjá honum yfir jólin en ætlaði þá að láta þetta gott heita. Þá bauð hann mér hins vegar rekstrarstjórastöðu veitingastaðarins með loforði um bót og betrun,“ segir Guðmundur. Það reyndist innistæðulaust loforð. Í heildina fékk hann aðeins um 300 þús­ und krónur greiddar yfir þetta tímabil þrátt fyrir mikla vinnu. „Samkvæmt verkalýðsfélaginu þá á ég launakröfu upp á rúma milljón,“ segir hann en meðal annars höfðu svikin þau áhrif að Guðmundur gat ekki staðið í skilum og missti íbúðina sína. Að hans sögn voru margir samstarfsmenn sem fóru illa út úr viðskiptum sínum við Grím, þar á meðal hælis­ leitandi sem vann á veitingastaðnum í þrjá mánuði án þess að sjá krónu. „Hann sakaði mig síðan um að hafa stolið peningum og vörum en það gerir hann víst við alla sem hætta hjá honum,“ segir Guðmundur. Í samtali við DV gengst Grímur við því að skulda Guðmundi laun. „Það er alveg klárt en það er aðeins deilt um hversu há upphæðin er,“ segir Grímur. Hann segir að deilan snúist meðal annars um það að Guðmundur hafi tekið vörur úr veitingastaðnum án þess að skrifa þær á sig. „ Aðfaranótt annars jóla- dags varð Grímur fyrir líkamsárás Íkveikja Skjáskot úr umfjöllun TV3 um íkveikjuna á heimili Gríms. Húsið brann til grunna. Grímur Vilhelmsson Þessi mynd af Grími birt ist í um- fjöllun þáttarins „Efterlyst“ á TV3 þar sem fjallað var um íkveikjuna og líkamsárásina sem hann varð fyrir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.