Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2015, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2015, Qupperneq 6
6 Fréttir Vikublað 17.–19. nóvember 2015 Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • Opið kl. 12-18 Lengri og breiðari parketpLankar n Vinna við deiliskipulag hefur seinkað framkvæmdum Íslandsbanka um rúmt ár F ramkvæmdir við stækkun höfuðstöðva Íslandsbanka á Kirkjusandi hefjast ekki fyrr en í fyrsta lagi á fyrri hluta næsta árs en þær áttu upp­ haflega að hefjast árið 2014. Ástæða seinkunarinnar er að vinna við deiliskipulag svæðisins hefur tafist. Ekki er vitað hvort breytingar verði á áformum bankans þegar ríkið eign­ ast hann að fullu. Þetta kemur fram í svari Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslands­ banka, við fyrirspurn DV. Bank­ inn kynnti í febrúar 2014 áform um sameiningu starfsemi höfuðstöðva fyrirtækisins sem fer fram á fjórum stöðum í dag. Birna segir nú unnið að kostnaðarathugun vegna sjö þúsund fermetra viðbyggingar sem bankinn hefur stefnt að. „Þegar það liggur fyrir þá tökum við lokaákvörðun um framhaldið,“ segir Birna. Tekur um tvö ár Sameiningin á að fela í sér stækkun á 6.700 fermetra húsnæði bankans á Kirkjusandi með um sjö þúsund fer­ metra viðbyggingu við suðvestur­ enda þess. Framkvæmdin átti sam­ kvæmt upphaflegri áætlun að taka um tvö ár og fela í sér töluverða hagræðingu fyrir bankann. Er þar meðal annars horft til þess að leigu­ kostnaður Íslandsbanka lækki sem og rekstrarkostnaður vegna upplýs­ ingakerfa. Stærsta breytingin á að felast í flutningi á upplýsingatækni­ og rekstrarsviði bankans og um 300 starfsmönnum þess frá Lyng­ hálsi í Reykjavík. Aðspurð svarar Birna að ekki sé hægt að segja til um hvort breytingar verði á áformun­ um þegar ríkið tekur við eignarhlut slitabús Glitnis í bankanum sem hluta af stöðugleikaframlagi þess. „Tímalínur verkefnisins hafa breyst þar sem seinkun er á deiliskipulagi. Um ræðir stóra lóð og umtalsvert byggingarmagn og því var mikilvægt að vanda til verks. Báðir aðilar vildu skipu­ leggja spennandi og framsýna upp­ byggingu á þessu mikilvæga svæði í borginni. Við héldum að við gætum farið af stað óháð þessum breyting­ um og endurgerð á skipulagi en svo var ekki. Við erum mjög ánægð með niðurstöður og teljum okkur hafa náð að hanna spennandi upp­ byggingu,“ segir Birna. „Það er ekki búið að taka ákvörðun um veigamiklar breytingar á stærð hússins, það stendur enn til að byggja og sam­ eina alla starfsmenn höfuðstöðva á einn stað með tilliti til framtíðar­ þarfa bankans.“ Auglýst á næstunni Páll Gunnlaugsson, arkitekt og framkvæmdastjóri ASK arkitekta sem var falið að útfæra hugmynd­ ir lóðarhafa á Kirkjusandsreitnum að skipulagi svæðisins, segir nýtt deiliskipulag verða auglýst á næstu dögum. Framkvæmdir á reitn­ um hefjist því ekki fyrr en eftir að minnsta kosti tvo til þrjá mánuði. „Það gætu liðið tveir til þrír mánuðir þangað til framkvæmdir geta hafist á Kirkjusandssvæðinu. Þetta er flókið svæði og mikið byggingamagn og mikilvægur reitur og þarf sína meðgöngu í kerf­ inu og hjá bankanum og öllum. Það er alls ekkert óeðlilegt við það,“ segir Páll. n Stækkunin á Kirkjusandi tefst fram á næsta ár Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Bankastjórinn Birna Einars- dóttir segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um veigamiklar breytingar á stærð hússins frá því áformin voru fyrst kynnt í byrjun árs 2014. Mynd SiGTryGGur Ari Við Kirkjusand Íslandsbanki vill stækka húsnæði sitt við Kirkjusandi um 7.000 fermetra. Höfuðstöðvar bankans yrðu þá um 14.000 fermetrar en starfsemi Arion banka í Borgartúni er til samanburðar rekin í húsnæði sem er um 8.200 fermetrar. Mynd SiGTryGGur Ari „Við héldum að við gætum far- ið af stað óháð þessum breytingum og endur- gerð á skipulagi en svo var ekki. Hafa flutt tíu tonn af fötum Rauði kross Íslands, Eimskip og Eimskip flytjandi hafa undirrit­ að samning um áframhaldandi samstarf á sviði fatasöfnunar og flutninga. Frá árinu 2009 hefur Eimskip veitt Rauða krossinum aðstoð við fatasöfnun á yfir 80 afgreiðslustöðum Flytjanda um land allt og flutninga á notuð­ um fatnaði og vefnaðarvöru til Evrópu. Alls hefur Eimskip flutt um 10 þúsund tonn af fatnaði fyrir Rauða krossinn. „Stuðningur Eimskips er Rauða krossinum ómetanlegur og gerir okkur kleift að halda úti metnaðarfullum verkefnum á sviði fatasöfnunar, fataúthlutun­ ar og dreifingar. Þetta samstarf hefur verið til fyrirmyndar í gegn­ um árin og það er einstaklega já­ kvætt og hvetjandi fyrir stöndug fyrirtæki að sýna samfélagslega ábyrgð með þessum hætti,“ seg­ ir Sveinn Kristinsson, formaður Rauða krossins á Íslandi, Gylfi Sigfússon forstjóri skrif­ aði undir samninginn fyrir hönd Eimskipafélagsins. Hann fagnaði einnig endurnýjun samningsins og sagði við undirritunina að það skipti félagið afar miklu máli að vera gildandi á sviði mannúðar­ mála og ekki síst á þeim tímum sem tímum sem við nú lifum á. 19,4 milljarða þrot fasteignafélags Lítið sem ekkert fékkst upp í lýstar kröfur A ðeins fengust 4,6 milljón­ ir króna upp í almennar kröfur sem lýst var í þrotabú Landic funds ehf. sem námu í heildina tæpum 19,4 milljörðum króna. Landic funds var dótturfélag íslenska fasteignafélagsins Landic Property sem áður hét Stoðir og heit­ ir í dag Reitir. Samkvæmt útreikn­ ingum skiptastjóra sem finna má í Lögbirtingablaðinu greiddist aðeins 0,000238% upp í lýstar kröfur. Landic funds var úrskurðað gjald­ þrota í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 1. júlí síðastliðinn en sam­ kvæmt síðasta ársreikningi fé­ lagsins námu skuldir félagsins við móðurfélagið einmitt tæpum 19,4 milljörðum. Eða nánast sömu upp­ hæð upp á krónu og lýstar kröfur í búið námu. Aðalkröfuhafi Landic funds virðist því hafa verið móður­ félagið, Landic Property, sem lýst var gjaldþrota árið 2010. Fasteignafélagið var stórtækt í ís­ lensku útrásinni og fjárfesti með­ al annars umtalsvert í Danmörku. Reitir fasteignafélag var síðan stofn­ að á grunni annars félags sem orðið hafði til utan um innlendar eignir Landic. Félagið á í dag meðal annars húsnæði verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar. n Litlar heimtur Lýstar kröfur í þrotabú Landic funds námu 19.367.129.525 króna. Mynd Eyþór ÁrnASon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.