Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Qupperneq 2
Helgarblað 28.–31. ágúst 20152 Fréttir Sársauki minnkar strax • Kaldur gelsvampur & gel • Lækkar hita í brunasárum um 6-7 °C • Gelsvampur helst vel á, dettur ekki af • Tea Tree & Lavender - sótthreinsar, róar & deyfir • Sterílar umbúðir Virkar á sviða og sársauka af: sólbruna - skordýrabiti brenninettlum - húðflúrum laser og núningsbruna Fæst í apótekum. Celsus ehf. www.celsus.is AbsorBurn® Kælir brunasár, hratt og lengi Hlaupaskór ársins hjá Runners World Saucony Triumph 12 Verð kr. 24.990,- Fann illa falinn fjársjóð sóða n Rúmdýnur, húsgögn og sorgmæddir bangsar við vinsælan áningarstað H vað er það sem fær fólk til að gera þetta? Því ég held að engum sé kennt að vera umhverfissóði,“ segir Tómas J. Knútsson, kafari, þús- undþjalasmiður og stofnandi Bláa hersins, sem sótti 140 kílóa hluta úr búslóð sem einhver hafði losað sig við úti í náttúrunni á Suðurnesjum. Meðal þess sem Tómas hirti voru fimm rúmdýnur, baunapokastól- ar, garðhúsgögn og leikfangabangs- ar sem hann segir að hafi grátið yfir örlögum sínum. Vinsæll áningarstaður „Þetta var við Þórshöfn, á landa- merkjunum á milli Reykjanesbæjar og Sandgerðis úti við Ósabotna,“ seg- ir Tómas aðspurður hvar hann hafi fundið hinn illa falda fjársjóð um- hverfissóðanna að þessu sinni. Hann segir að þetta svæði hafi verið lokað þegar herinn var hér á landi en síðan kom Ósabotnavegur þarna á milli og vinsælt sé að keyra þarna um. „Þarna eru margar og skemmtilegar nátt- úruperlur en þetta er fyrst og fremst vinsæll áningarstaður og ég hef lagt mig í líma við að hafa það í lagi sem ber fyrir augu þegar fólk er að keyra hér um þessi svæði. Þess vegna er alltaf jafn leiðinlegt þegar fólk fer út á heiði og hendir rusli,“ segir Tómas sem fyrst fékk að vita af ruslinu á Facebook, á vef Sandgerðinga. Hann hafi ákveðið að rúlla eftir þessu og sækja þetta á fimmtudagsmorgun þar sem ljóst var að Sandgerðingar hefðu sjálfir nóg á sinni könnu þessa dagana með bæjarhátíð. Tómas stofnaði Bláa herinn árið 1995 og hafa hann og samtökin síð- an fjarlægt þúsundir tonna af rusli úr umhverfinu, aðallega við strendur, opin svæði og í höfnum. Eitthvað að í höfðinu á fólki Hann skilur ekki hvað gerist hjá fólki sem dettur svona nokkuð í hug. „Það er eitthvað að í kerfinu sem gerir það að verkum að fólk er með þessa lausn í höfðinu; að keyra bara út í móa og henda þessu þar. Og þetta er ekki bara vandamál hér á Suðurnesjum, þetta er víða. Svo má ekki gleyma því að ef þetta fær að liggja þarna og ofsaveður gengur yfir þá splundrast þetta, dreifist um allt og endar úti í sjó, sem mér finnst alltaf sorglegt.“ Hann segir að sá grunur læð- ist að honum þegar hann kemur að sorphaugum sem þessum úti í nátt- úrunni að þangað hafi fólk sturtað þessu því einhver förgunargjöld hafi staðið í því. „Vonandi förum við að fara að taka okkur á í þessum efnum því við verðum að hafa landið okkar í lagi,“ segir umhverfishetjan Tómas að lok- um. n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is „Vonandi förum við að fara að taka okkur á í þessum efnum því við verðum að hafa landið okkar í lagi. Sá mynd og sótti ruslið Tómas J. Knútsson hefur í tuttugu ár sinnt hreinsunarstarfi í sjálfboðavinnu með samtökum sínum Bláa hernum. Hann sá mynd af ruslinu á Facebook og gekk í málið. Mynd Úr EinkaSafni Sorglegt að sjá Hér má sjá hvernig einhver sóði hefur sturtað hluta úr búslóð sinni við veginn og skilið eftir. Tómas segir 140 kíló af drasli hafa legið þarna í vegkantinum. Mynd TóMaS J. knÚTSSon Grunaður um smygl á fólki Lögreglan á Suðurnesjum er með serbneskan karlmann í haldi vegna gruns um að hann hafi smyglað fólki hingað til lands. Fréttastofa RÚV greindi frá þessu í gær, fimmtudag, og sagði manninn hafa komið hing- að til lands um liðna helgi ásamt unglingi sem hann sagði vera son sinn. Það hafi ekki reynst rétt en hugsanlegt sé að þeir séu skyldir. Ekki hafi tekist að fá skyldleikann staðfestan og mað- urinn því færður í varðhald á meðan málið sé til rannsóknar. Landsvirkjun hagnast um 8,5 milljarða króna Landsvirkjun hagnaðist um 63,9 milljónir Bandaríkjadala, jafn- virði um 8,5 milljarða króna, á fyrri helmingi ársins. Hagnað- ur fyrirtækisins á fyrri hluta 2014 nam 34,5 milljónum dala og jó- kst því um 85% milli ára. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkj- unar, segir í afkomutilkynningu að rekstur fyrirtækisins hafi al- mennt gengið vel á fyrri helm- ingi ársins og bendir hann á að skuldirnar hafi lækkað um 23 milljarða króna á tímabilinu. „Blikur eru þó á lofti í ytra um- hverfi þegar litið er til skemmri tíma. Álverð hefur lækkað mik- ið á síðustu mánuðum, sem hefur neikvæð áhrif á tekjur Landsvirkjunar. Þá hefur köld tíð valdið því að innrennsli í lón Landsvirkjunar hefur verið með minnsta móti í sumar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.