Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Qupperneq 4
Helgarblað 28.–31. ágúst 20154 Fréttir Verðlaunað fyrir að byggja stórt Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra segir þró- un skipulagsmála í borginni uggvænlega. Þetta segir hann í pistli á heimasíðu sinni þar sem hann gagnrýnir meðal annars þá tilhneigingu að fylla upp í byggingareiti til þess að há- marka hagnað þeirra sem byggja. Hann segir þetta koma niður á fagurfræði borgarinnar. Ráðherrann telur einnig hættulega hvata til staðar þar sem eigendur húsa og lóða eru verðlaunaðir fyrir að byggja stórt. „Allt það versta við skipulags- nálgun eftirstríðsáranna skýt- ur nú upp kollinum á ný. Eitt af því er sá neikvæði hvati sem skipulagið og framkvæmd þess fela í sér. Skilaboðin eru þessi: Eigendur gamalla húsa sem fjárfesta í húsunum sínum og gera þau fallega upp með ærn- um tilkostnaði, fá ekkert fyrir það. En eigendur húsa sem láta þau drabbast niður og eyðileggj- ast geta vænst þess að fá leyfi til að rífa þau og byggja ný og stærri hús í staðinn. Því stærra sem húsið er, og því ódýrara, þeim mun meiri verður hagnað- urinn. Þess vegna eru kríaðir út eins margir fermetrar og mögu- legt er og þar sem fæst leyfi fyrir nýbyggingum er iðulega öll lóð- in grafin út og stundum jafnvel grafið undan garði nágrannans (eins og dæmi eru um). Svo er byggt alveg að lóðarmörkunum.“ É g er eingöngu að fara frá Hvammstanga því ég get ekki haft barnið mitt lengur í þess- um skóla,“ segir móðir 14 ára stúlku sem varð fyrir miklu einelti í grunnskólanum á Hvamms- tanga frá fyrsta til áttunda bekkj- ar. Mæðgurnar sem voru búsettar þar eru nú fluttar til Reykjavíkur en móðirin segir að illa hafi gengið að fá skólayfirvöld og aðra til að bæta ástandið. Stúlkan hóf nám í nýjum skóla fyrir stuttu. DV setti sig í samband við nokkra foreldra sem eiga börn sem voru í skólanum og þurftu að fara annað vegna eineltis. Eru þeir sammála um að ekki hafi verið tekið vel á eineltis- málum innan skólans. Bæði fyrr- verandi og núverandi starfsmenn skólans taka í sama streng. Enginn þeirra treysti sér til að koma fram undir nafni. Sigurður Þór Ágústsson, skólastjóri grunnskólans á Hvamms- tanga, segir skólann vera með virka eineltisáætlun en hann geti ekki tjáð sig um málefni einstakra nemenda. „Það hefur verið mikil óánægja meðal foreldra og starfsfólks varð- andi hvernig tekið er á eineltismál- um. Skólastjórinn tekur ekki á nein- um vanda,“ segir móðir stúlkunnar í samtali við DV. Á vegum skólans starfar nefnd sem skipuð var til að leysa úr ein- eltismálum. „Eineltisnefndin hefur ekki gert neitt í máli barnsins míns heldur hunsað hana í átta ár.“ Hún segir bæjarbúa hafa rætt málið við sig þegar í ljós kom að mæðgurnar ætluðu að flytja. „Í vet- ur fór fólk að tjá sig um þetta því við vorum á förum. Þá fann ég að ég var ekki ein í heiminum. Margir bjuggu yfir sömu reynslu.“ Alvarlegt einelti í sturtuklefanum „Barnið mitt kom stundum heim úr skólanum og hafði verið grýtt uppi við vegg eða kaffært í snjónum. Hún sagði mér að enginn hefði gripið inn í, ekki einu sinni skólaliðar. Hún upp- lifði þá sem áhorfendur eineltisins. Alvarleg atvik áttu sér einnig stað í sturtuklefanum í skólasundi þar sem enginn vörður var til að fylgjast með. Ég veit að skólastjóranum bár- ust ábendingar þar um. Hann gerði ekkert í málunum.“ Hún segir dóttur sína hafa mætt illa í skólann á liðnum vetri og skóla- yfirvöld ekkert skipt sér af því. „Það var bara eins og þau væru fegin.“ „Ég hef reynt að tala við skólayfir- völd í öll þessi ár, reynt að fá aðstoð og stöðva eineltið en engin viðbrögð fengið. Barnið mitt var í skólanum til 13 ára aldurs og það var aldrei reynt að gera nokkuð í máli þess. Hvorki af hálfu skólastjórans né eineltisnefndarinnar. Skólayfirvöld brugðust.“ Að lokum hafi hún snúið sér til sviðsstjóra fjölskyldusviðs Húna- þings vestra. „Ég fór til hennar fyrir páska og hún ætlaði að útvega dóttur minni hjálp, finna einhvern til að ganga með henni í skólann og ann- að. Það var ekki gert og við heyrðum aldrei í henni.“ Sagði upp störfum vegna óánægju „Ég hafði unnið í grunnskólanum á Hvammstanga meira og minna frá því ég var sextán ára. Nú er ég sextug. Ég vann undir núverandi skólastjóra í átta ár en sagði upp í fyrravetur. Mér þótti vænt um starfið en stemningin í skólanum var slæm og illa var tekið á eineltismálum til að mynda,“ seg- ir fyrrverandi skólaliði sem lét þar af störfum vegna óánægju. Hún segir að skólastjóran- um hafi verið bent á að nemend- ur væru lagðir í einelti en málunum aldrei fylgt eftir. „Hann [skólastjór- inn] lét líka vita af tilteknum málum og starfsmenn fylgdust þá með. Síð- an þegar málið kom aftur til hans þá bara stoppaði það þar. Það átti sér til dæmis stað mikið einelti í sturtuklef- um íþróttahússins en þar var enginn vörður. Skólastjórinn gerði ekkert í málinu.“ Starfsemi eineltisnefndar hafi einnig borið lítinn árangur. Segir eineltisáætlun virka „Ég get ekki tjáð mig um málefni einstakra nemenda. Ég get bara nefnt þær almennu reglur sem við förum eftir. Við erum með virka ein- eltisáætlun og erum með eineltis- nefnd sem tekur á öllum málum. Verklagsreglur skólans gera ráð fyrir mistökum og ef menn er ósáttir við niðurstöður nefnda eða skólastjóra er hægt að vísa því til fjölskyldusviðs til úrlausnar,“ segir Sigurður Þór Ágústsson, skólastjóri grunnskólans á Hvammstanga. Ekki náðist í starfsmenn fjöl- skyldusviðs við vinnslu greinarinn- ar. n „Skóla- yfirvöld brugðuSt“ n Flutti frá Hvammstanga svo barnið gæti skipt um skóla n Illa tekið á eineltismálum Birna Guðmundsdóttir birna@dv.is Dóttirin mætti illa í skólann Skólayfirvöld á Hvamms- tanga skiptu sér lítið af. Grunnskólinn á Hvammstanga Margir eru óánægðir með hvernig tekið er á eineltismálum. MynD HunAtHinG.iS „Þá fann ég að ég var ekki ein í heiminum. Margir bjuggu yfir sömu reynslu Sigurður Þór Ágústsson Segir skólann vera með virka eineltisáætlun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.