Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Síða 10
10 Fréttir Helgarblað 28.–31. ágúst 2015 Við elskum umslög - en prentum allt mögulegt • Nafnspjöld • Reikninga • Veggspjöld • Bréfsefni • Einblöðunga • Borðstanda • Bæklinga • Markpóst • Ársskýrslur Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is #iamhappyis IamHappy.is Íslenska lífræna barnafatalínan MÓI fæst eingöngu í I AM HAPPY á Íslandi I AM HAPPY Barnavöruverslun • Brekkuhúsum 1 www.iamhappy.is Verðtryggingarmisvægi aukist um 50 milljarða n Eiga 285 milljörðum meira af verðtryggðum eignum en skuldum n Vildi gera misvægi óheimilt V erðtryggingarmisvægi stóru viðskiptabankanna hefur aukist um nærri 50 millj­ arða króna á undanförnum átján mánuðum og var um mitt þetta ár samtals 285 milljarðar. Landsbankinn sker sig sem fyrr úr í þessum efnum en verðtryggðar eignir bankans – umfram verð­ tryggðar skuldir – eru 159 milljarðar króna, eða liðlega 66% af eiginfjár­ grunni. Í ársbyrjun 2014 lagði meirihluti sérfræðingahóps um afnám verð­ tryggingar á nýjum neytendalánum það til að fjármálafyrirtækjum yrði gert skylt að hafa jafnvægi á milli verðtryggðra eigna og skulda. Við­ varandi verðtryggingarmisvægi yrði þannig óheimilt. Hugmyndin var sú að ýta undir þá þróun að vægi verð­ tryggðra skulda heimilanna myndi minnka og um leið skapa hvata fyrir bankana til að bjóða neytendum aukið framboð af óverðtryggðum íbúðalánum. Sumir hafa enn fremur talið að slíkt viðvarandi misvægi á verð­ tryggðum eignum og skuldum fjár­ málastofnana geti orsakað kerfis­ lægan verðbólguþrýsting þar sem bankar hagnast til skemmri tíma þegar verðlag reynist hærra en verð­ bólguvæntingar markaðsaðila höfðu gert ráð fyrir. Frá því að nefndin setti fram þessar tillögur sínar hefur verð­ tryggingarmisvægi á bókum bank­ anna því engu að síður haldið áfram að aukast. Þar skiptir mestu að Íslandsbanki, sem var með nán­ ast ekkert misvægi á verðtryggð­ um eignum og skuldum sínum í ársbyrjun 2014, er núna með verð­ tryggingarójöfnuð upp á 40 millj­ arða króna, eða ríflega 20% af eigin­ fjárgrunni bankans. Þetta misvægi hefur þó minnkað um 17 milljarða í tilfelli Íslandsbanka það sem af er þessu ári á meðan það hefur nán­ ast staðið í stað hjá Arion banka og Landsbankanum. Aukin ásókn í verðtryggt Í fyrrnefndri skýrslu um afnám verðtryggingar var á það bent að þrátt fyrir að fjármálafyrirtæki hafi í sjálfu sér ekki sérstaka hagsmuni af því hvort þau veiti verðtryggð eða óverðtryggð lán þá geti þau – við til­ teknar kringumstæður – haft hag af því að eiga meira af verðtryggð­ um eignum en skuldum. Verð­ tryggingarjöfnuður stóru bankanna var um hundrað milljarðar í árs­ byrjun 2010 og á síðustu fimm árum hefur hann því nærri þrefaldast. Sem hlutfall af eiginfjárgrunn allra bankanna þá er misvægið tæplega 50% borið saman við 30% árið 2010. Þrátt fyrir að meira en átján mánuðir séu liðnir frá útgáfu skýrslunnar þá hefur ekkert frést af því hvort stjórn­ völd hafi í hyggju að fara eftir tillög­ um nefndarinnar og innleiða slíkar reglur á grundvelli þess að tryggja aukinn fjármálastöðugleika. Helsta skýringin á áfram­ haldandi aukningu verðtrygginga­ misvægis bankanna, eins og útskýrt hefur verið í ritum Seðlabankans um fjármálastöðugleika, er aukning í veitingu verðtryggðra íbúðalána og sömuleiðis lækkun verðtryggðra langtímaskulda bankanna, en þær eru einkum bundnir verðtryggðir innlánsreikningar sparifjáreigenda. Á síðasta ári voru þannig um 64% allra nýrra íbúðalána verðtryggð. Aukin eftirspurn eftir verðtryggðum íbúðalánum hefur haldist í hend­ ur við hækkun fasteignaverðs og hækkun vaxta á óverðtryggðum lán­ um. Ólíkt því sem gildir um gjaldeyris­ jöfnuð fjármálafyrirtækja þá hafa engar reglur verið í gildi um hversu hátt hlutfall verðtryggingarójafnað­ ar má vera af eiginfjárstöðu þeirra. Samkvæmt reglum Seðlabankans má gjaldeyrisjöfnuður banka ekki nema meira en 15% af eiginfjár­ grunni þeirra. Sambærilegar reglur um verðtryggingarmisvægi voru afnumdar á tíunda áratugnum. Ef slíkar reglur væru hins vegar í gildi, sem kvæðu á um að misvægi milli verðtryggðra eigna og skulda mætti ekki fara umfram 15% af eigin fé, þá myndi það þýða að bankarnir þyrftu að óbreyttu að minnka verðtryggðar eignir sínar um ríflega 240 milljarða. Hagnast á verðbólguskoti Í umræðu um verðtryggingarmis­ vægi hefur því stundum verið haldið fram að það sé beint samband á milli aukningu í verðbólgu og hagnaðar bankanna. Þannig myndu bankarnir – miðað við núverandi 285 milljarða misvægi – hagnast samtals um tæp­ lega þrjá milljarða króna við hverja prósentustigs aukningu í verðbólgu. Slíkur útreikningur er aftur á móti nokkur einföldun enda er þá ekki tekið tillit til þess að vextir ákvarð­ ast meðal annars af væntingum um verðbólguþróun. Ef vísitala neysluverðs þróast í samræmi við verðbólguvæntingar markaðsaðila þá ættu bankarnir því að hagnast álíka mikið af óverð­ tryggðum eignum og skuldum eins og verðtryggðum. Við óvænt verð­ bólguskot þá geta bankarnir hagnast talsvert af því að eiga mun meira af verðtryggðum eignum en skuldum. Reynist verðbólgan hins vegar und­ ir væntingum, eins og hefur gerst undanfarin misseri, þá tapa bank­ arnir á því að vera með slíkt misvægi á bókum sínum. n Stóru bankarnir Verðtryggingarmis­ vægið hefur aukist úr 239 milljörðum í 285 milljarða frá því í ársbyrjun 2014. Hörður Ægisson hordur@dv.is 159 milljarðar 66% af eigið fé 86 milljarðar 51% af eigið fé 40 milljarðar 21% af eigið fé Verðtryggingarmisvægi bankanna Heimild: Árshlutareikningar bankanna á öðrum fjórðungi 2015. Landsbankinn Arion banki Íslandsbanki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.