Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Page 31
Helgarblað 28.–31. ágúst 2015 Bílar og viðhald - Kynningarblað 7
Rafstilling sérhæfir sig í alternatorum og störturum
Hjarta rafkerfisins
Þ
að er hughreystandi að vita
af traustum aðila sem getur
hlúð að lykilþáttum rafkerf-
isins í bílnum þínum eða
vinnutæki, þ.e. alternator-
inum og startaranum. Kristinn
Ágústsson hóf rekstur á fyrirtæk-
inu Rafstilling ehf. árið 1979 og í
gegnum tíðina hefur hann lagað
hina ýmsu kvilla sem leggjast á raf-
magnsbúnað bíla. Upp úr síðustu
aldamótum brást Kristinn aftur á
móti við breyttum þörfum á mark-
aðnum og hóf að sérhæfa sig alfarið
í sölu og viðgerðum á störturum og
alternatorum. Og það er vissulega
leitun að fróðari manni um þenn-
an búnað.
Þjónusta fyrir allt landið
Rafstilling býr að áratugareynslu
í viðgerðum fyrir einstaklinga og
fyrirtæki og þjónustar stóra og
smáa aðila um allt land. Það selur
varahluti til verkstæða, umboða,
verktaka og opinberra aðila. Eins
tekur Rafstilling við alternator-
um og störturum frá öllu landinu
til viðgerðar, einkum úr vinnu-
tækjum og landbúnaðarvélum.
Verkstæðið er með öll nauðsyn-
leg tæki og tól til þessara verka
og er með lager af bæði uppruna-
legum og eftirmarkaðs varahlut-
um. Allir viðgerðir hlutir eru próf-
aðir í prufubekk til að tryggja að
allt sé í lagi. Þeim er einnig skilað
hreinum og máluðum. Í dag eru
þau fjögur sem starfa í fyrirtækinu
og það er alltaf nóg að gera. Raf-
stilling hefur verið í sömu húsa-
kynnunum í 25 ár, á horninu á
Dugguvogi 23. Nánari upplýsingar
um þjónustuna hjá Rafstillingu
má finna á heimasíðu þeirra raf-
stilling.is. n
Rafstilling
Fyrirtækið er til
húsa á horninu á
Dugguvogi 23.