Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Page 37
Helgarblað 28.–31. ágúst 2015 Fólk Viðtal 29 meðal eru Colin Firth, Tom Hardy og Emilia Clarke úr Game of Thrones, og ekki má gleyma Steinunni Ólínu Þor- steinsdóttur. Eftir útskrift tók óvissan við. Heiða var ung leikkona í borg fullri af ung- um leikkonum sem hendast í prufur á milli þess sem þær vinna sem þjónar á veitingastöðum. „Ég vann um tíma sem móttöku- dama á afskaplega fínum einka- klúbbi. Ég fékk umboðsmann fyrir út- skrift úr skólanum og var hjá honum fyrstu tvö árin, þá rifti hann samningi við mig því honum fannst ekki ganga nógu vel. Ég fékk annan umboðs- mann og byrjaði að vinna meira, ég var orðin afslappaðri og vanari pruf- unum og fleiri hlutverk buðust sem hentuðu mér. Ég fékk nokkur gesta- hlutverk í góðum þáttum og svo stórt hlutverk í sjónvarpsseríunni Joe, þar sem ég lék á móti Jean Reno. Tök- ur fóru fram í París og það var frá- bær reynsla.“ Eftir þetta gerðist ekkert í marga mánuði og Heiða var orðin mjög vonlítil. „Þá kom símtal frá Ís- landi þar sem mér bauðst hlutverk í Hrauninu.“ Heiða kom heim í hálft ár og var dauðfegin. „Ég þurfti virkilega á því að halda. Það var frábært að geta flutt heim til mömmu og pabba, safn- að pening og byrjað að borga niður skuldirnar mínar.“ Heimilislegt á Íslandi Heiða heldur áfram og lýsir muninum á því að vinna á Íslandi og í alþjóðlegu umhverfi. „Þetta var dálítið stressandi fyrir mig. Þetta voru allt leikarar sem ég var búin að fylgjast með frá því að ég var lítil og bera mikla virðingu fyrir. Þau voru líka mjög náinn hópur, bæði leikarar og aðrir sem komu að tökun- um. Þetta var mikil fjölskyldustemn- ing. Ég var utanveltu þegar ég kom fyrst á sett, það vissi enginn hver ég var eða hvaðan ég kom. Þetta var samt mjög notalegt.“ Heiða dregur ekki dul á að þegar kemur að því að fá hlutverk í ís- lenskum verkefnum skiptir máli fyr- ir leikara að vera menntaðir á Ís- landi. „Það er svo mikilvægt að hafa tengslin og þekkja rétta fólkið. Á Ís- landi eru hlutirnir ekki í eins föst- um skorðum og úti varðandi prufur og val í hlutverk. Smæð samfélagsins skiptir miklu máli í því samhengi. Ég get auðvitað ekki talað fyrir aðra leik- ara eða leikkonur sem hafa lært er- lendis, en mér finnst eins og þetta sé að opnast eitthvað örlítið, að nú eig- um við, sem komum að utan, betri möguleika.“ Heiðu langar mikið til að vinna meira á Íslandi. „Það er eitthvað við það að gera hluti fyrir sitt heimafólk á sínu móðurmáli. Ég er stoltari af því á einhvern hátt, jafnvel þó að hlutverkin úti fái miklu meiri dreifingu. Einhvern veginn verða íslensku verkefnin stærri í hausnum á mér því hér er mitt fólk. Draumurinn væri að koma heim af og til í spennandi verkefni, hvort sem það væri fyrir svið, sjónvarp eða bíó.“ Poldark Hlutverkið í Poldark kom upp í hend- urnar á Heiðu þegar hún var orðin frekar vonlítil um atvinnuhorfur sín- ar. „Ég var komin út eftir Hraunið og allt var rólegt. Samstarfið við þáver- andi umboðsmann minn var engan veginn að ganga upp, ég frétti af alls konar prufum sem hann trassaði að senda mig í en voru fyrir hlutverk sem hefðu hentað mér vel. Hann hafði sem betur fer samband við mig vegna Poldark. Ég fór í prufuna heima hjá konunni sem sá um að velja í hlut- verk. Hún á ótal marga hunda, meðal annars einn eldgamlan eineygð- an Bassett-hund sem lá í körfu við hliðina á henni á meðan prufan fór fram. Hundurinn hraut ótrúlega hátt og ég átti erfitt með að einbeita mér, gat ekki hætt að horfa á hundinn. Mér fannst prufan ganga ágætlega en þetta var mikil truflun og sást ör- ugglega vel. Það reyndist rétt hugboð og ég landaði hlutverkinu.“ Serían er gerð eftir frægri bókaseríu sem fjall- ar um ástir og örlög í Cornwall. Heiða varð strax mjög hrifin af sögunni. „Ég las handritið og gat ekki lagt það frá mér. Sagan er svo vel skrifuð og persónurnar vel gerðar.“ Heiða leikur stelpuna sem aðal- persónan, Ross Poldark, elskar mest af öllum, Elizabeth Poldark. Þau fá þó ekki að eigast því hún er gift frænda hans í þáttunum. Mér leikur forvitni á að vita hversu mikið frelsi hún sem leikkona hefur til að glæða persónuna lífi. „Í tilfelli Elizabeth breytti ég heil- miklu og víkkaði út persónulegt svið hennar. Stundum horfi ég til baka og spái í hvort ég hefði átt að hafa hana aðeins harðari og kaldlyndari. Hún er ekkert svakalega hlý til að byrja með og er þekkt fyrir að vera dálítil tík, en ég sá hana sem góða manneskju al- veg frá byrjun. Mér fannst ekki eins áhugavert að gera hana að metnað- arfullri tæfu og fannst mikilvægt að áhorfendur mundu skilja hvernig Ross getur elskað hana svona mikið. Ég held að sem leikari taki maður sér leyfi til að gera það sem maður vill þar til leikstjórinn segir stopp, eða biður um að maður fari í aðra átt.“ Hvernig ætli að það sé að vera elsk- uð af Aidan Turner, þessum mjög svo kynþokkafulla leikara, þó að það sé í þykjustunni? Heiða skellihlær og seg- ir mér að í þáttunum sé ást þeirra svo forboðin að líkamleg nánd hafi ekki komið til sögunnar ennþá. „Hingað til hefur þetta allt verið mjög erfitt og snúist um augnaráð og svoleiðis. Ekk- ert kelerí eða kossar. Aidan er frábær leikari og mjög duglegur og það er mjög lærdómsríkt að vinna með hon- um.“ Frægð og slúður Ég spyr Heiðu hvort það sé ekki risa- vaxið skref fyrir unga leikkonu að fá burðarhlutverk í þáttum á BBC. Hún jánkar því en segir þó að það taki dá- lítinn tíma að finna fyrir áhrifunum á feril hennar í leiklistinni. „Auðvit- að er greinilegt að fólk hefur horft á þáttinn og séð mig í honum. Ég stefni alltaf hærra, vil fá stærri hlutverk og meiri vinnu, en ég er mjög þakklát og vona að þetta haldi áfram að verða til góðs. Við erum að byrja tökur á annarri seríunni, og búið er að semja um þriðju og fjórðu. Ég er samnings- bundin og verð að leika í komandi seríum, nema auðvitað að ég verði skrifuð út eða látin deyja.“ Heiða segir að það erfiðasta við að öðlast frægð og frama í kjölfar Poldark- þáttanna hafi verið það sem snýr að fjölmiðlum. „Ég hef átt samskipti við fjölmiðla hér heima í mörg ár, sam- félagið er lítið, traustið mikið og mér hefur fundist ég geta sagt það sem mér í brjósti býr og verið ég sjálf. Þegar sýn- ing þáttanna hófst fann ég að ég þurfti að passa mig miklu meira og setja upp ákveðinn skjöld. Pressan úti notar hvert einasta smáatriði sem þú lætur út úr þér. Ég fann að fólk var sólgið í að heyra slúður úr innsta hring.“ Heiðu finnst vinsældirnar erfiðar og nýtur þess ekkert sérstaklega að vera þekkt. „Auðvitað er allt í lagi að einhver komi upp að mér og segi eitt- hvað fallegt, en það getur verið óþægi- legt til dæmis í lest sem er full af fólki sem glápir á mig. Ég verð eiginlega ör- lítið vænisjúk í þeim aðstæðum. Mér fannst líka erfitt að brynja mig gegn gagnrýni og umræðu í kjölfar þátt- anna. Í dag eru allir gagnrýnendur og setja sína skoðun á samfélagsmiðlana. Í byrjun gat ég ekki annað en skoðað þetta því ég hafði aldrei verið í svona stóru verkefni áður. Ég lærði fljótt að horfa framhjá þessu, einfaldlega til að halda geðheilsu. Það er líka mikilvægt að bera sig ekki saman við aðra. Aidan til dæmis er þekktur fyrir að vera bara mikið heima hjá sér á Írlandi og fylgj- ast ekkert með fjölmiðlum – hann vill ekki sjá þetta og líður best þannig.“ Ætlar ekki í samband Heiða er einhleyp um þessar mundir og hefur ekki hug á að breyta þeirri stöðu á næstunni. „Ég er að reyna eins og ég get að forð- ast það. Það hefur svo mikil áhrif á mig og truflar einbeitinguna. Vinnan er mjög krefjandi og ég þarf að vera mikið að heiman og svona vil ég hafa þetta núna.“ Eftir að tökum á næstu seríu Poldark lýkur stefnir Heiða á að freista gæfunnar í Bandaríkjunum. „Ég er með umboðsskrifstofu í New York en mun líklega eyða mestum tíma í Los Angeles núna. Það er svo miklu meira af hlutverkum í boði í Bandaríkjunum og ég er bjartsýn á að fá eitthvað bitastætt, þó svo að samkeppnin sé harðari.“ Spínat og fegurð Heiða er sláandi fögur, og þrátt fyrir að beita mig hörðu get ég ekki látið hjá líða að inna hana eftir því hvort útlitinu fylgi mikil vinna. Þarf hún að stunda tryllingslega líkams- þjálfun marga tíma á dag og drekka spínat í hvert mál? „Nei,“ segir Heiða og skellir upp úr, „en ég óska þess oft að ég mundi breytast í þannig manneskju. Ég er reyndar með einkaþjálfara en hitti hann örsjaldan. Ef ég þyrfti að koma mér í ákveðið form fyrir hlut- verk mundi ég að sjálfsögðu gera það því það væri hluti af vinnunni. Í Poldark er ég alltaf hulin íburðar- miklum búningum og þarf litlar áhyggjur að hafa. Ég borða það sem ég vil og held mér í sömu fatastærð. Ég hugsa að mér muni líða öðruvísi í Los Angeles, þar eru allir einhverj- ir heilsuróbótar. Ég fann fyrir þessu þegar ég dvaldi í mánuð þar í fyrra, en ég mun berjast á móti og reyna að verða ekki ein af þeim. Jennifer Lawrence sagði einhvern tíma að hún mundi frekar vilja líta út fyrir að vera pínu þybbin í sjónvarpi og líta út eins og venjuleg manneskja í eig- in persónu, en að vera mjó í sjón- varpi og eins og vannærður fugl í raun. Fáum gengur jafnvel og henni í dag svo ég hugsa oft til hennar.“ Á þessum nótum endum við spjallið og Heiða gengur brosandi út í síð- asta sumardaginn. n „Ég borða það sem ég vil og held mér í sömu fatastærð. Ég hugsa að mér muni líða öðruvísi í Los Angeles, þar eru allir einhverjir heilsuróbótar. Heiða og Aidan Elskendurnir í Poldark sem þurfa að láta sér nægja lostafullar augn- gotur og djúp samtöl. Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is ALLAR GERÐIR LÍMMIÐA Nánari upplýsingar á www.pmt.is eða í síma 567 8888

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.