Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2015, Síða 25
Gæðakaffi Kynningarblað Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 13. nóvember 2015 Laundromat: Barnaleiksvæði og framúrskarandi morgunverður L aundromat er afar vinsælt kaffihús í Austurstræti sem bæði erlendir ferðamenn og Íslendingar sækja í stríðum straumum. Laundromat er ekki síst þekkt fyrir geysistórt barnaleiksvæði á neðri hæðinni svo staðurinn er mjög vinsæll hjá barnafjölskyldum. Geta foreldrar stærri barna setið ótruflaðir á efri hæðinni á meðan börnin una sér á leiksvæðinu. Annað sem gefur Laundromat mikla sér­ stöðu er þvottahús niðri sem fólk notar mikið og fær sér kaffibolla á meðan það bíður eftir vélinni. Kaffibaunirnar í kaffinu í Laundro mat koma frá ítalska gæða­ framleiðandanum Illy. Laundro­ mat kaupir hráefnið í gegnum Öl­ gerðina og þangað fara kaffiþjónar staðarins reglulega á námskeið. Staðurinn er opnaður klukkan átta á morgnana og er opið til kl. 23 á kvöldin nema fimmtudags­, föstudags­ og laugardagskvöld þegar opið er til miðnættis. Um helgar er bröns í boði frá kl. 9 til 15. Morgunmaturinn í öndvegi Laundromat er bistró sem býður upp á létta rétti sem gjarnan eru pantaðir í hádeginu en einnig er í boði íburðarmeiri matur eins og lax og steikarsamlokur sem vin­ sælla er að panta sér á kvöldin. Staðurinn er þó einna þekkt­ astur fyrir rómaðan morgun­ verð sem er í boði frá klukkan 8 á morgnana til 11.30. Margir erlendir ferðamenn koma, jafnvel beint frá flugvellinum eftir næturflug, í morgunmat. Annars er gott jafn­ vægi milli erlendra ferðamanna og Íslendinga í gestaflóru staðarins. n Kaffibaunirnar í kaffinu koma frá ítalska gæðaframleiðandanum Illy

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.